Fréttablaðið - 12.02.2015, Side 48
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
FIMMTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
12. FEBRÚAR 2015
Tónleikar
20.30 Gummi Jóns og Vestanáttin
flytja úrval laga Guðmundar Jónssonar
í Salnum, Kópavogi. Miðaverð er 3.900
krónur.
21.00 Jón Páll Bjarnason, Richard
Andersson og Matthías Hemstock leika
þekkt jazzlög í Mengi í kvöld. Miðaverð
2.000 krónur.
22.00 Hljómsveitin Dorian Gray spilar á
Dillon í kvöld.
22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangur ókeypis.
Opnanir
17.00 Sýning á verkum Poul Gernes
verður opnuð í gallerí i8. Sýningin
stendur til 11. apríl næstkomandi.
Félagsvist
20.00 Félagsvist í samvinnu við Skaft-
fellinga í Skaftfellingabúð í Reykjavík
í kvöld.
Hátíðir
18.00 Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík
hefst í Hörpu.
Sónar Reykjavík
20.00 Uni Stefson í SonarClub
Kohib í SonarPub
Arnljótur í SonarComplex,
21.00 Balsamic Boys í SonarPub
Jón Ólafsson & Futuregrapher í Sonar-
Complex
21.10 Sin Fang í SonarClub
21.45 DJ Steindór Jónsson í SonarPub
22.00 Mankan í SonarComplex
22.30 Samaris í SonarClub
22.45 LaFontaine í SonarPub
23.00 M-Band í SonarComplex
23.40 Todd Terje í SonarClub
23.45 DJ Yamaho í SonarPub
00.00 Valgeir Sigurðsson í SonarComp-
lex
Uppákomur
18.00 Katalónska í Café Lingua í
Grófarhúsi. Hægt verður að finna
smjörþefinn af katalónsku og bragða á
katalónskum kræsingum.
20.00 Opið spilakvöld í Spilavinum.
Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Bókmenntir
17.00 Útgáfu bókarinnar Hreint mat-
aræði fagnað í Lifandi markaði, Borgar-
túni 24. Guðrún Bergmann heldur
fyrirlestur og dregið verður úr forsölu-
happdrætti.
Dansleikir
16.00 Síðdegisdans í Félagi eldri borg-
ara, Stangarhyl 4. Matthildur og Anna
Norðfjörð sjá um tónlistina. Dansaðir
samkvæmisdansar, gömlu dansarnir,
línudans og hringdansar. Kaffihlé og
spjall.
Málþing
15.00 Málþing um íslensk torfhús á
Litla torgi Háskóla Íslands. Markmið
málþingsins er að tengja saman ólíkar
aðferðir og kenningar sem eru efst á
baugi í gagnrýnni skoðun á torfhúsum
sem menningararfi. Fundarstjóri er
Hannes Lárusson myndlistarmaður.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Uppistand
21.30 Best of Uppistand.is á Bar 11 í
kvöld. Á uppistandinu koma fram þeir
sem þykja hafa skarað fram úr í Til-
raunauppistöndum, reyndari grínisar og
góðir gestir. Fram koma meðal annars
Jón Víðis, Leifur Leifsson, Snjólaug
Lúðvíksdóttir og Helgi Jónsson. 1.000
krónur inn.
Leiðsögn
12.00 Hádegisleiðsögn með Krist-
ínu Gunnlaugsdóttur um sýninguna
Nýmálað 1 sem stendur yfir í Hafnar-
húsi. Aðgangseyrir er 1.400 krónur.
Fræðsla
17.00 Kristín Sigurðardóttir, slysa- og
bráðalæknir, Gyða Dröfn Tryggvadóttir,
lýðheilsufræðingur, jógakennari og
zen hugleiðsluiðkandi, og Margrét
Alice Birgisdóttir hjá Á heildina litið
bjóða upp á fræðslu um streitu og í
kjölfarið verður slökun og hugleiðsla á
Hannesarholti í tengslum við Friðsæld
í febrúar. Öllum opið og þátttaka er
ókeypis.
Fyrirlestrar
20.00 Guðrún Hildur Rosenkjær, klæð-
skera- og kjólameistari, flytur fyrir-
lesturinn Skautbúningur– íslenskur
hátískufatnaður um miðja 19. öld í
Hönnunarsafni Íslands.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
SÓNAR
Katalónska húsið á Íslandi, í sam-
starfi við Café Lingua, bjóða í
kvöld áhugasömum í Grófarhús á
viðburð þar sem hægt verður að
fræðast um Katalóníu, katalónsku
og bragða á tapasréttum og þjóð-
legum kræsingum.
„Það verður kennsla í hvernig á
að gera réttinn Pa amb tomàquet
og við munum kynna hvernig við
gerum þetta, sem er alveg hundr-
að prósent katalónskt. Það verð-
ur tilbúið eftir þrjátíu sekúndur,“
segir Xavier Rodriguez, stofnandi
Katalónska hússins á Íslandi ,og
hlær.
Pa amb tomàquet er einfaldur
og bragðgóður réttur sem gerður
er úr tómötum, brauði, ólífuolíu
og salti.
Félagið Katalónar á Íslandi,
sem stofnað var af Xavier árið
2008, stendur fyrir ýmiss konar
dagskrá og segir hann starfið ein-
kennast af félagsstarfi en helsta
markmið félagsins er að Katalón-
ar og aðrir áhugamenn á Íslandi
um sjálfsstjórnarhéraðið hittist
og njóti menningar og samskipta
hverjir við aðra.
Í febrúar stendur félagið fyrir
árlegum viðburði sem einkennist
af katalónskum mat og skemmt-
un og Xavier segir að kalla megi
það eins konar katalónskt þorra-
blót. „Við köllum það bara þorra-
blót, það er smá svona brandari
á milli okkar,“ segir hann glaður
í bragði. En ætla má að matar-
menningin í Katalóníu eigi ekki
mikið sameiginlegt með íslensk-
um þorramat.
Á katalónska þorrablótinu verð-
ur boðið upp á sérstakan þjóðar-
rétt sem búinn er til úr calçot,
lauk sem svipar mjög til púrru-
lauks, og er í hávegum hafður
en hann er ófáanlegur hérlendis
og því pantar félagið allt að sjö
hundruð stykki að utan.
Allir eru boðnir velkomnir á
viðburðinn sem haldinn er í sam-
starfi við Café Lingua og fer fram
í Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15,
og hefst klukkan sex.
Café Lingua er tungumálavett-
vangur á vegum Borgarbóka-
safnsins sem hefur það að mark-
miði að virkja þau tungumál sem
hafa ratað til Íslands með fólki
hvaðanæva og auðgað mannlíf
og menningu ásamt því að vekja
forvitni borgarbúa á heiminum
í kringum okkur. Café Lingua
stendur fyrir reglulegum viðburð-
um sem allir eru velkomnir á.
gydaloa@frettabladid.is
➜ Pa amb tomàquet er ein-
faldur og bragðgóður réttur
sem gerður er úr tómötum,
brauði, ólífuolíu og salti.
Bragðað á mat
frá Katalóníu
Fræðst verður um katalónska menningu, mat
og bragðað á kræsingum í Grófarhúsinu í kvöld.
ALLIR VELKOMNIR Xavier Rodriguez er stofnandi Katalónska hússins á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Save the Children á Íslandi
Í kvöld koma saman í menningar-
húsinu Mengi djassleikarinn Jón Páll
Bjarnason ásamt Richard Andersson
og Matthíasi Hemstock.
Tríóið mun leika og spinna góðkunn
djasslög og eru tónleikarnir á morgun
þeirra fyrstu formlegu tónleikar þótt
þeir hafi áður leikið saman í öðrum
verkefnum.
„Við höfum spilað saman áður, ég og
Richard, og svo Matthías sem ég kann-
ast við líka,“ segir Jón Páll glaður í
bragði.
Hann segir efnisskrána að miklu
leyti byggða upp á spuna. „Við ætlum
að spinna nýjan vef yfir lög sem eru
svokallaðir „standardar“,“ segir hann
en Jón Páll hefur bæði leikið undir
eigin nafni auk þess að leika með
öðrum, til dæmis Útlendingahersveit-
inni og Sigurði Flosasyni.
Þetta eru fyrstu tónleikar Jóns Páls
í Mengi og er hann hrifinn af hús-
næðinu. „Þetta er dásamlegur stað-
ur,“ segir Jón Páll sem staddur var við
æfingar í Mengi.
Hann lofar góðri stemningu í kvöld
og lofar félaga sína í hástert: „Þetta
eru miklir heiðursmenn sem ég er að
fara að spila með.“
Tónleikarnir hefjast í Mengi, Óðins-
götu 2, klukkan níu í kvöld og er miða-
verð 2.000 krónur. - gló
Spinna nýjan vef yfi r góðkunn djasslög
Jón Páll Bjarnason, Richard Andersson og Matthías Hemstock halda tónleika í Mengi í kvöld.
MEÐ GÍTARINN Jón Páll Bjarnason kemur fram í Mengi í
kvöld ásamt Richard Andersson og Matthíasi Hemstock.
MYND/JÓNPÁLL
Hann lofar góðri stemn-
ingu í kvöld og lofar félaga
sína í hástert: Þetta eru miklir
heiðursmenn sem ég er að
fara að spila með.
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
6
-E
C
9
0
1
3
C
6
-E
B
5
4
1
3
C
6
-E
A
1
8
1
3
C
6
-E
8
D
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K