Fréttablaðið - 12.02.2015, Page 62

Fréttablaðið - 12.02.2015, Page 62
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 bara mjög skemmtilegt starf og allt indælismenn, hver öðrum betri að vinna með. Oft var ég nú beðinn um að keyra aðra ráðherra þegar ekki var annar bílstjóri við höndina. Þetta var bara eins og eitt heimili og allir hjálpuðust að,“ bætir hann við. Lárus segir ráðherrabílana hafa verið marga og mismunandi. „Ég man nú ekki allar tegundirn­ ar, sumir voru á jeppum og aðrir fólksbílum. En ég hef alltaf verið hrifinn af Chevrolet,“ segir hann og hlær. adda@frettabladid.is Lárus Sigfússon, fyrrverandi ráð­ herrabílstjóri, fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 5. febrúar. Hann starfaði sem ráðherrabílstjóri í alls tuttugu og eitt ár, lengst af fyrir Steingrím Hermannsson. Lárus hætti alfarið að keyra í nóvember í fyrra, rétt fyrir aldar­ afmælið, og fékk sér rafmagns­ skutlu sem hann hyggst keyra þegar snjóa leysir. „Hún jafnast nú ekkert á við bílinn,“ segir Lárus hress, en síðasti bíll sem hann átti var Hyundai Galloper. Lárus hefur átt mikinn fjölda bifreiða yfir ævina, en auk þess að keyra ráð­ herrabifreiðar var Lárus leigubíl­ stjóri lengi vel. „Ég fékk þær upp­ lýsingar frá tryggingafélaginu mínu um daginn að ég hef átt hátt í tvö hundruð bíla á áttatíu árum og þann fyrsta tryggði ég hjá Sam­ vinnutryggingum,“ segir hann. Fyrsta bílinn eignaðist Lárus árið 1933 en það var Ford­vöru­ bíll. Bíllinn var notaður til að flytja steypuefni þegar Lárus vann að stækkun Reykjaskóla í Hrúta­ firði. „Mér leist svo vel á bílinn að ég ákvað bara að kaupa hann,“ segir hann. Lárus hætti að keyra fyrir ráðu­ neytin 73 ára og síðustu árin vann hann skrifstofustarf í ráðuneytinu. „Ég var að ljósrita og raða skjölum fyrir næsta ríkisstjórnarfund, það mátti aldrei neitt vanta á fundina.“ Aðspurður hvort eitthvert atvik standi upp úr í starfi hans sem ráðherrabílstjóri segist hann ekki muna eftir neinu einu. „Þetta var „Nýja myndin sem ég leik í, Webcam. Svona mynd hefur aldrei áður sést á Íslandi og hún mun án efa brjóta blað í íslenskri kvik- myndagerð.“ Júlí Heiðar Halldórsson, leikari, söngvari og verðandi leiklistarnemi. BÍÓMYNDIN Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdóttur er nú komin út í þýskri þýðingu. „Við erum virkilega ánægð með að bókin sé komin út í Þýskalandi“ segir Berglind. Bókaútgáfan heitir Neuer Umschau Buchverlag, sem er jafnframt einn stærsti marsipan­ framleiðandi Þýskalands. „Hugmyndin að þýskri útgáfu kviknaði í framhaldi mikils ferðamannastraums á veitinga­ staðinn okkar Gott í Vestmanna­ eyjum þar sem Þjóðverjar voru stór hópur,“ segir Berglind og bætir við að Þjóðverjar séu býsna áhugasamir um heilnæma matar­ gerð. Hún gefur lítið fyrir frekari útrás þar sem hún hefur mörgum hnöppum að hneppa með fjögur börn, bækur og veitingastað á hraðri uppleið, en hún rekur Gott ásamt manni sínum Sigurði Gísla­ syni matreiðslumeistara. Jónas Sigurgeirsson hjá Bóka­ félaginu, sem gaf Heilsurétti fjöl­ skyldunnar út hérlendis, er að vonum ánægður með samninginn. „Í raun eru þetta mjög jákvæðar fréttir fyrir íslenska matarmenn­ ingu og þjóðina almennt,“ segir hann en nokkuð óvenjulegt þykir að íslenskar matreiðslubækur fái brautargengi á þýskri grund. - ga Góðgæti úr Vestmannaeyjum til Þýskalands Metsölubókin Heilsuréttir fjölskyldunnar er komin út í þýskri þýðingu á vegum marsipanframleiðanda. Heilsuréttir fjölskyld- unnar hefur fimm sinnum farið í endurprentun hérlendis. 5 www.betrabak.is Leggur grunn að góðum degi Upplifðu tilfinninguna að svífa í þyngdarleysi Komdu til okkar í Betra Bak og upplifðu óviðjafnanlega hvíldartilfinningu. Hið einstaka TEMPUR® efni í heilsudýnum og koddum aðlagast líkama þínum og gefur þér þá tilfinningu að þér finnst þú svífa. Hafðu það stillanlegt og þægilegt! Eitt mest úrval landsins af stillanlegum heilsurúmum. 25% afsláttur af öllum TEMPUR® koddum í febrúar 25% afsláttur af stillanlegum rúmum í febrúar 25% AFSLÁTTUR af TEMPUR® í febrúar Seldi bílinn 100 ára og keypti sér skutlu Lárus Sigfússon, fyrrverandi ráðherrabílstjóri, fagnaði 100 ára afmæli sínu á dögunum. Þrátt fyrir háan aldur hætti hann ekki að keyra fyrr en í nóvember. ELDHRESS Lárus er enn nokkuð hress þrátt fyrir háan aldur og segist ganga í Kringluna ef hann þarf að kaupa í matinn. VIRÐINGARVOTTUR Guðni Ágústsson afhendir Lárusi ostakörfu í tilefni afmælisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kristján Eldjárn forseti Halldór Sigurðsson Steingrímur Hermannsson Kjartan Jóhannsson Einar Ágústsson Sverrir Hermannsson Þorsteinn Pálsson Forseti og ráðherrar sem Lárus ók fyrir ➜ Nokkrir af ráðherrabílunum sem Lárus ók n Chevrolet Malibu n Chevrolet Impala n Mercedes Benz módel ’60 Ég fékk þær upplýsingar frá trygg- ingafélag- inu mínu um daginn að ég hef átt hátt í tvö hundr- uð bíla á áttatíu árum. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /G VA STOLT Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdóttur er komin út á þýsku. MYND/LIND HRAFNSDÓTTIR 1 1 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 C 6 -F 6 7 0 1 3 C 6 -F 5 3 4 1 3 C 6 -F 3 F 8 1 3 C 6 -F 2 B C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.