Fréttablaðið - 05.03.2015, Page 18
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Akureyri - Hvolsvelli - Reykjavík
Verksmiðju
útsala
afsláttur
40-70%
Sölustaðir
Varma Akureyri
Austursíðu 2
Varma Hvolsvelli
Ormsvöllum 10
Varma Reykjavík
Ármúla 31
Verksmiðjuútsala verður
hjá Varma Dagana 5-7 mars
Opið Fimmtudag og Föstudag milli kl. 16-19
og Laugardag milli kl. 11-15
Lítið útlitsgallaðar vörur
og vörur sem hættar eru í framleiðslu.
Hlökkum til að sjá ykkur
Norðurál stefnir að því að hefja
framleiðslu á svokölluðum boltum
eða börrum. Ef farið verður í slíka
framleiðslu mun það þýða allt að 10
milljarða fjárfestingu sem meðal
annars væri falin í stækkun á hús-
næðinu að Grundartanga um 7.000
fermetra og kaup á tækjum sem yrðu
notuð við framleiðsluna.
„Markmiðið er að auka verð-
mæti útflutnings hjá okkur og skapa
okkur sterkari samkeppnisstöðu. Við
höfum verið að skoða markaðinn í
Evrópu, hvar tækifærin gætu legið.
Við teljum að þarna gæti verið tæki-
færi til þess að auka verðmæti og
bæta samkeppnisstöðuna til lengri
tíma,“ segir Ragnar Guðmundsson,
forstjóri Norðuráls.
Þessi viðbótarframleiðsla fæli í
sér að öðrum efnum yrði blandað út
í álið til þess að gefa því mismunandi
eiginleika. „Þarna kemur inn kísil-
málmur sem dæmi og ýmis önnur
efni eftir atvikum,“ segir Ragnar.
Það fari allt eftir því hvaða vöru
menn vilja framleiða. „Það er verið
að vinna verkfræðilegan undirbún-
ing, meta kostnað og hanna verk-
efnin. Það hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun enn þá.“ Auk
þess sem öðrum efnum er blandað í
álið fæli þess nýja framleiðsla einnig
í sér vörur með ólíka lögun. Fram-
leiddir yrðu sívalningar eða völsun-
arbarrar.
Einnig segir Ragnar að sú
ákvörðun hafi verið tekin í fyrra
að hefja framleiðslu á melmi. „Það
eru álblöndur sem er ekki búið að
steypa í form heldur er það í hleifa-
formi sem við höfum notað hingað
til. Þar er innihaldi vörunnar breytt
en ekki forminu. Það er minni fjár-
festing en við ráðgerum að selja 50
þúsund tonn af þessu melmi á ári,“
segir hann. Ragnar bætir því við að
þetta auki tekjumöguleika Norður-
áls. „Það er aukafjárfesting líka. En
við teljum að hún skili sér á ásætt-
anlegum tíma,“ segir hann. Fram-
leiðsla og sala á melmi hófst núna í
janúar en tilraunaframleiðsla á síð-
asta ári.
Ragnar segir að Norðurál hafi
fundið fyrir áhuga frá aðilum sem
framleiða felgur undir bíla. Fram-
leiðsla á melminu þýði að þeir geti
fengið málm beint frá Norðuráli sem
hentar í þá framleiðslu í stað þess að
áður hefðu þeir þurft að fara í gegn-
um millilið til að fá slíka blöndu. „Við
höfum verið að selja ál til bílafram-
leiðenda eins og Mercedes Benz,
en það er þá í gegnum aðra aðila
og þarna komumst við skrefi nær
endan legum notanda.“
Ragnar segir að það sé mun meiri
fjárfesting að baki framleiðslu á
boltunum eða börrunum. „Enda
ertu þá farinn að blanda og að breyta
forminu. Það kostar sitt að breyta
forminu. Þetta er fjárfesting upp á
10 milljarða. Það yrði stór bygging
og mikill búnaður,“ segir Ragnar.
Til að mynda þyrfti að byggja við og
stækka verulega steypuskálann.
7.000 fermetrum yrði bætt við
Norðurál íhugar að hefja framleiðslu á svokölluðum boltum eða börrum. Fjárfesting fyrir 10 milljarða króna.
Húsnæðið á Grundartanga myndi stækka um 7.000 fermetra. Markmiðið að auka virði framleiðslunnar.
Á GRUNDARTANGA
Húsnæði álversins
mun stækka ef fyrir-
hugaðar breytingar
verða að veruleika.
Við
höfum verið
að selja ál til
bílaframleið-
enda eins og
Mercedes
Benz, en það
er þá í gegnum aðra aðila
og þarna komumst við
skrefi nær endanlegum
notanda.
Ragnar Guðmundsson,
forstjóri Norðuráls
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Útlit er fyrir að skráð íslensk
félög í Kauphöll Íslands greiði
samtals um 24 milljarða til hlut-
hafa nú á vormánuðum. Grein-
ingardeild Arion banka segir
þessar arðgreiðslur eða kaup
eigin bréfa samsvara um 4,4 pró-
sentum af markaðsvirði félag-
anna.
Heildarfjárhæð byggir á tillög-
um sem stjórnir félaganna hyggj-
ast leggja fyrir aðalfundi nú í
vor og svo spá Greiningardeild-
ar um arðgreiðslu Haga á þessu
ári. Uppgjörstímabil Haga er
frábrugðið því sem gerist meðal
annarra félaga á markaðinum.
- jhh
Spá Greiningardeildar Arion:
24 milljarðar
fara til hluthafa
Framtakssjóðurinn Edda hefur
keypt fjórðungshlut í Pizza-
Pizza ehf. sem rekur pitsustaði
Domino‘s á Íslandi. Sjóðurinn er
rekinn af verðbréfafyrirtækinu
Virðingu. Hluthafar í Eddu eru líf-
eyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar.
Kaupin eru gerð með fyrir-
vara um samþykki Samkeppnis-
eftirlitsins og sérleyfisveitanda
Domino‘s.
Aðrir eigendur Pizza-Pizza ehf.
eru Birgir Þ. Bieltvedt, stjórnar-
formaður félagsins, og eiginkona
hans Eygló Björk Kjartansdótt-
ir, Högni Sigurðsson, Birgir Ö.
Birgisson framkvæmdastjóri og
nokkrir aðrir lykilstjórnendur
Domino‘s á Íslandi. - jhh
Eignast hlut í Domino‘s:
Lífeyrissjóðir
kaupa fjórðung
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
4
-6
A
8
C
1
4
0
4
-6
9
5
0
1
4
0
4
-6
8
1
4
1
4
0
4
-6
6
D
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K