Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 2
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 DÓMSMÁL Guðjón St. Marteins- son, héraðsdómara og dómsfor- mann, og Ólaf Þór Hauksson, sér- stakan saksóknara, greinir á um það hvort sá síðarnefndi hafi vitað um ættartengsl eins meðdómara í Aurum-málinu svokallaða. Þetta kemur fram í gögnum sem lögð voru fram í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Guðjón segir rangt að sérstak- ur saksóknari hafi ekki vitað um ættartengsl meðdómarans, en haft var eftir Ólafi Þór í fjölmiðlum eftir að sýknudómur var kveðinn upp í Aurum-málinu, að hann hefði ekki haft upplýsingar um að Sverr- ir Ólafsson meðdómari og Ólafur Ólafsson fjárfestir, oft kenndur við Samskip, væru bræður. Í viðtalinu sagði Ólafur Þór að hefði hann haft þær upplýsingar undir höndum, hefði hann gert athugasemdir við skipan Sverris í dóminn. Sérstakur saksóknari hefur áfrýjað sýknudómi í Aurum- málinu til Hæstaréttar og krefðst ómerkingar vegna vanhæfis með- dómarans. Í grein sem Guðjón skrifaði kemur fram að þann 12. mars í þinghaldi hafi hann tilkynnt hverj- ir tækju sæti sem meðdómarar í málinu við aðalmeðferð málsins. Daginn eftir hafi sérstakur sak- sóknari hringt í sig og greint frá tengslum Sverris og Ólafs Ólafs- sonar. Símtalinu lauk með því að sérstakur saksóknari kvað ákæru- valdið ekki ætla að gera athuga- semd við hæfi meðdómarans og var það ekki gert. Guðjón bætir við að með yfirlýsingu sérstaks saksóknara í fjölmiðlum hafi hann vegið gróflega að starfsheiðri sínum og það sem verra væri, að heiðri og heil- indum Sverris sem tók sæti í dóminum. „Ég hef nú þegar gert ríkis- saksóknara grein fyrir því að þetta sé rang- minni dómarans,“ segir Ólaf- ur Þór. Hann segir nú, að í sím- tali þeirra Ólafs og Guðjóns, þar sem Guðjón segir Ólaf hafa greint sér frá ættartengsl- unum, hafi hann verið að benda á allt önnur tengsl. „Ég talaði ekki um nein bræðra- tengsl, heldur benti ég á að meðdóm- arinn hefði unnið fyrir skilanefnd Glitnis og Glitnir var kærandi í þessu máli. Einnig var skilanefnd Glitnis með bótakröfu sem tengdist sama máli,“ segir Ólafur Þór og bætir við að þessi atriði muni liggja fyrir í Hæsta- rétti á næstunni. Ómerkingarkrafa ríkissak- sóknara verður tekin fyrir í Hæstarétti þann 13. apríl næstkomandi og fer Helgi Magn- ús Gunnarsson rík- issaksóknari með málið. nadine@frettabladid.is Segir vegið gróflega að starfsheiðri sínum Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari segir sérstakan saksóknara hafa vitað um ættartengsl Sverris Ólafssonar, meðdómara í Aurum-málinu, og Ólafs Ólafssonar, kennds við Samskip. Sérstakur saksóknari neitar því og segir Guðjón misminna. ALÞINGI Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suður- kjördæmi, hefur sent heilbrigðis- ráðherra fyrirspurn um hvar á landinu ómskoðunartæki séu til staðar og hvar þau séu í notkun. Þá vill hún vita hvort ómskoð- unartæki liggi einhvers staðar ónotuð og þá af hverju. Fréttablaðið hefur greint frá því að verðandi foreldrum á Vestfjörð- um verði ekki boðið upp á sónar- skoðun á Heilbrigðisstofnun Vest- fjarða það sem eftir lifir ársins. Þar er tækjabúnaður til reiðu en þekking til að nota hann ekki. - sa Þingmaður Framsóknar spyr: Vill vita hvar sónartæki eru MENNTAMÁL Verslunarskóli Íslands mun stíga stórt skref í 110 ára sögu sinni en skólinn mun byrja að útskrifa nemendur á þremur árum á nýju skólaári. Skólinn hefur tekið upp nýja námskrá sem býður upp á braut- skráningu á þremur árum en boðið verður upp á fjórar námsbrautir til stúdentsprófs; alþjóðabraut, lista- og nýsköpunarbraut, nátt- úrufræðibraut og viðskiptabraut. Skólinn verður opinn tíundu- bekkingum og forráðamönnum til kynningar á náminu frá klukkan fimm til sjö síðdegis í dag. - srs Stórt skref í sögu skólans: Útskrifa nema á þremur árum Dómur féll í Aurum-málinu síð- asta sumar og voru sakborning- arnir Lárus Welding, Jón Ásgeir Jóhannesson, Magnús Arnar Arn- grímsson og Bjarni Jóhannesson sýknaðir. Þeir voru ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Dómur í Aurum-málinu GUÐJÓN MARTEINSSON STJÓRNMÁL Starfsmannaleysi, fjár- svelti og agaleysi gerir EES-samn- inginn munaðarlausan að mati Sverris Hauks Gunnlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Þetta kom fram á málfundi í Háskóla Íslands um stöðu EES- samningsins í ljósi þess að stjórn- völd leggi mikla áherslu á að draga til baka aðildarviðræður að Evr- ópusambandinu og efla hagsmuna- gæslu gagnvart EES. „Menn eru svo vanir fjórfrelsinu á Íslandi, það að geta keypt vörur, keypt þjónustu og geta farið til útlanda í vinnu, að þeir halda að þetta sé allt bara til staðar. Að það þurfi ekki að halda utan um hlut- ina,“ segir Sverrir í samtali við fréttastofu. „Það þarf að halda utan um hlutina því að við verðum að verja ákveðinn trúverðugleika okkar gagnvart bæði EFTA-ríkj- unum tveimur en ekki síður gagn- vart þessum 28 ríkjum ESB,“ segir hann. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra segir að búið sé að greina innleiðingarhallann og hann felist í því magni reglugerða sem þarf að gefa út. „Ráðuneytin ráða ekki við það flóð af reglugerðum sem til þeirra streyma og gefa út reglu- gerðir til að uppfæra stöðu okkar innan EES-samningsins,“ segir Bjarni. „Staða EES-samningsins að öðru leyti er ágæt. Það breytir því ekki að hann er skýr og allir aðilar sem að honum standa hafa framfylgt honum,“ Íslendingum hefur verið stefnt tuttugu og tvisvar sinnum fyrir samningsbrot frá árinu 2012 sem er met. - þká, srs Fyrrverandi ráðuneytisstjóri segir fólk vera svo vant fjórfrelsinu að það gleymi hagsmunagæslunni: Agaleysi teflir EES-samningnum í tvísýnu HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON BJARNI BENEDIKTSSON SVERRIR H. GUNNLAUGSSON SPURNING DAGSINS Kertastjaki 3.495 kr. KRINGLUKAST 19.-23. mars 20% afsláttur af öllum vörum í HOME deildinni Diskar frá 2.295 kr. Pappaegg 895 kr. Gleregg lítið 695 kr. Eggjabikar 1.295 kr. Karfa 4.495 kr. Hörður, finnið þið fyrir með- byr? Já, vindurinn er greinilega að sækja í sig veðrið. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er ánægður með vindmyllur Landsvirkjunar á Hafinu svokallaða fyrir ofan Búrfell sem skila nýtingu sem er langt yfir heimsmeðaltali. ÞÝSKALAND Hundruð manna voru handtekin í gær í Frankfurt fyrir utan nýjar höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópusambandsins. Efnt var til mótmæla gegn aðhaldsaðgerðum og niðurskurði. Tugir manna særðust í átökum við lögregluna. Kveikt var í bifreið- um og grjóti kastað. Lögreglan notaði meðal annars vatnsþrýstislöng- ur til að dreifa mannfjöldanum. Dregist hefur árum saman að opna nýju höfuðstöðvarnar, en bygg- ing þeirra er talin kosta um 1,3 milljarða evra eða ríflega 191 milljarð króna. - gb Fjöldamótmæli við opnun höfuðstöðva Seðlabanka ESB: Hundruð manna handtekin ÓEIRÐIR Lögreglubifreið brennur og lögregluþjónar bíða átekta í Frankfurt í gær. NORDICPHOTOS/AFP TÚNIS Vopnaðir menn réðust í gær inn á fornminja- safn í Túnis, tóku þar gísla og myrtu nítján manns, þar af sautján erlenda ferðamenn. Árásarmennirnir féllu fyrir byssuskotum frá lögreglu. Líklegt þótti að árásarmennirnir væru herskáir íslamistar, hugsanlega liðsmenn Íslamska ríkisins sem hefur hótað árásum í Túnis. Að minnsta kosti þrjú þúsund Túnisbúar hafa haldið til Sýrlands og Íraks að berjast þar með vígasveitum Íslamska rík- isins. Ferðamennirnir sem létust voru meðal annars frá Spáni, Ítalíu, Þýskalandi og Frakklandi. Einn hinna myrtu var lögreglumaður. Þetta er alvarlegasta árás af þessu tagi í Túnis frá árinu 2002 þegar liðsmaður Al Kaída gerði sjálfs- vígsárás á bænahús gyðinga á ferðamannaeyjunni Djerba og myrti þar um 20 manns. Bardo-safnið er við hliðina á þinghúsinu í Túnis. Þar á safninu getur að líta fjölda ómetanlegra forn- gripa frá Grikklandi og Rómaveldi. Arabíska vorið svonefnda hófst í Túnis í desemb- er árið 2010 eftir að fátækur götusali kveikti í sér vegna ofríkis lögreglunnar. - gb Sautján erlendir ferðamenn og tveir heimamenn myrtir á safni í Túnis: Lögregla felldi árásarmennina UMSÁTUR Lögregluþjónar utan við Bardo-safnið í Túnis, þar sem vopnaðir menn höfðu hreiðrað um sig og myrt fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -2 B C 0 1 4 2 F -2 A 8 4 1 4 2 F -2 9 4 8 1 4 2 F -2 8 0 C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.