Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 64
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 48
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Elísabet Gunnars-
dóttir, tískubloggari
á Trendnet, hefur
fyrst íslenskra
bloggara hannað
fatalínu í samstarfi
við NTC. „Þau leit-
uðu til mín fyrir ári
og báðu mig að gera
línu. Ég var nú ekki
alveg tilbúin í þetta
fyrst, þar sem ég er
alls enginn fatahönn-
uður, en ákvað svo að
slá til,“ segir Elísabet.
Hún ákvað frá upphafi að
línan skyldi innihalda klass-
ískar flíkur sem virka allt-
af í fataskápnum. „Það var
aldrei ætlunin að finna
upp hjólið. Ég var með
mínar hugmyndir sem ég
vann svo með fatahönn-
uði hjá NTC.“ Línan sam-
anstendur af tólf flíkum;
kápum, skyrtum, bolum,
leðurbuxum og biker-
jakka. „Í gegnum árin
hef ég imprað á því
við lesendur mína að
„basic sé best“ og það
hefur alltaf verið mitt
mottó. Ætli setning-
in lýsi ekki línunni
best,“ segir Elísa-
bet og bætir við;
„Lesendur bloggs-
ins míns hafa alltaf
verið duglegir að
senda mér póst með
fyrirspurnum varð-
andi outfit, þannig
að ætli lesendurn-
ir séu ekki minn
helsti innblástur
fyrir línuna.“
Hugmynda-
vinnan byrj-
aði fyrir ári og
segir Elísabet
að línan hafi
tekið
mikl-
um
breytingum síðan þá. Elísabet
starfaði hjá NTC í mörg ár og
var því gaman fyrir hana
að taka þátt. „Ég ber mjög
sterkar taugar til fyrir-
tækisins og því fannst
mér mjög gaman að
koma inn og vinna
með þeim aftur á
annan hátt. Þetta er
búið að vera langt
en mjög skemmti-
legt ferli.“
Erlendis er
algengt að
fyrirtæki fái
tískublogg-
ara með sér í
lið til þess að
hanna fatnað
eða fylgi-
hluti, en þetta
er líklega í
fyrsta sinn
sem íslensk-
ur bloggari
hannar fyrir
verslun. „Það
eru mörg for-
dæmi fyrir þessu úti í
heimi og gaman að við
Íslendingar séum að
taka þátt. Ég hef búið
lengi erlendis en er allt-
af að sjá betur og betur
hvað Íslendingar eru
framarlega og dugleg-
ir í tísku- og blogg-
heiminum.“ Að auki
hannaði Elísabet
taupoka sem seldir
verða í Sautján
og rennur allur
ágóði af þeim til
Krabbameins-
félagsins. Línan
er væntanleg í
verslun Sautj-
án í Kringl-
unni á föstu-
dag klukkan
12.
adda@frettabladid.is
Hannar klassíska fatalínu
fyrir verslunina Sautján
Trendnetbloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir hefur hannað fatalínu undir merki MOSS fyrir tískuverslunina
Sautján sem kemur í verslanir á föstudag. Er þetta í fyrsta sinn sem bloggari hannar fatalínu hérlendis.
SPENNT Elísabet er spennt að kynna nýju línuna sína, Elísabet Gunnars by MOSS.
MYND/SAGA SIG.
Það eru
mörg for-
dæmi fyrir
þessu úti í
heimi og
gaman að við
Íslendingar
séum að taka
þátt. Ég hef
búið lengi
erlendis en er
alltaf að sjá
betur og
betur hvað
Íslendingar
eru framar-
lega og erum
dugleg í
tísku- og
bloggheim-
inum.
ELISABET
GUNNARS
BY MOSS
Hluti af
línunni.
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
siAMS
Sýnd með ísl. texta
Sýnd með ísl. texta
Æðisleg ný stuttmynd
Frozen Fever er sýnd á undan
VILLAGE VOICE
Frá Paul Thomas Anderson, leikstjóranum sem
færði okkur Magnolia, There Will Be Blood og
Boogie Nights
CINDERELLA 5:25, 8
CHAPPIE 10:10
STILL ALICE 5:50, 8
VEIÐIMENNIRNIR 8, 10:35
HRÚTURINN HREINN 5:50
10:30
THE LITTLE DEATH KL. 8 - 10.40
THE GRUMP KL. 5.30
CHAPPIE KL. 10.20
ANNIE KL. 5.30
VEIÐIMENNIRNIR KL. 8
BIRDMAN KL. 10.20
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - ÍSL TEXTI
THE LITTLE DEATH KL. 5.45 - 8 - 10.20
THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 - 8
CHAPPIE KL. 8 - 10.40
ANNIE KL. 5
HRÚTURINN HREINN KL. 3.30
FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20
KINGSMAN KL. 8 - 10.45
KINGSMAN LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45
PADDINGTON KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
Save the Children á Íslandi
Kanye West er vinsamlegast beðinn
um að halda sig frá Glastonbury-há-
tíðinni sem fram fer í Bretlandi í lok
júní. Krafan kemur frá um tuttugu
þúsund manns sem skráð sig hafa á
undirskriftarlista
gegn komu kauða.
Sé horft á heildar-
samhengið er um
að ræða tæplega
fimmtán prósent
allra þeirra sem
keypt hafa miða á
hátíðina.
Hefur fólk
hreinlega sagst
ætla að skila
miðunum sínum
verði hann ekki afturkallaður úr hópi
listamanna.
Þykir mörgum hann ekki eiga
heima á sviðinu og kalla eftir rokk-
hljómsveit í hans stað. Talið er að
framkoma hans undanfarið eigi hér
stærstan hluta í máli, en hann hefur
farið stórum í yfirlýsingum á eigin
ágæti og lagt tilveru sína að jöfnu
við tilveru Jesú Krists.
Undirskrift alisti
gegn Kanye West
WEST ÞYKIR
VERSTUR „Haltu
þig heima“ segja
Glastonbury-farar.
FÁIR ÍSLENDINGAR hafa staðið
frammi fyrir öðru eins verkefni og Of
Monsters and Men gerir í dag. Það er
stundum talað um að plata númer tvö sé sú
erfiðasta. Það þarf að standast vænting-
ar án þess að hjakka í sama farinu, heilla
nýjan hóp hlustenda án þess að styggja
þann gamla, og í tilviki þeirra: Standast
himinháar væntingar alþjóðlegs útgáfu-
fyrirtækis eftir að hafa selt tvær milljónir
eintaka af fyrstu plötunni.
SUMUM finnst vinna ekki vera raun-
veruleg nema ef það er hægt að veiða
hana upp úr sjó, nætursalta og senda
til Spánar. Og við erum alltaf að
heyra um útflutningsfyrirtæki og
viðskiptajöfra sem hóta því að
fara úr landi, gera upp í evrum,
stofna dótturfélög erlendis eða
skjóta undan hagnaði í erlend
skattaskjól.
OF MONSTERS AND MEN gerir út
frá Garðabæ og markhópurinn dreifist
um allan heim. Landkynningin sem
felst í því að eiga hóp sendiherra sem
ferðast um heiminn og spilar tónlist er
ómetanleg. Þetta er utanríkisþjónusta sem
við fáum frítt.
OF Monsters and Men tók plötuna sína
upp í Mosfellsbæ. Platan verður gefin út
um allan heim af alþjóðlegum útgáfurisa
en þrátt fyrir það er útgáfan hér heima á
vegum Record Records, sem var stofnað af
trommuleikara í Hafnar firði.
ÞEGAR kom að því að gefa fyrsta lagið
út, lag sem aðdáendur hljómsveitarinnar
um allan heim biðu í ofvæni eftir, var Siggi
Sigurjóns fenginn til að leika í sérstöku
textamyndbandi sem hefur verið streymt
milljón sinnum á YouTube. Barnaspítali
Hringsins hefur notið góðs af farsæld Of
Monsters and Men. Rétt eins og íslensk-
ir hljóðfæraleikarar sem hafa ferðast um
heiminn með þeim ásamt hljóðmönnum
og öðrum tæknimönnum. Ég gæti haldið
áfram.
EF Of Monsters and Men er ekki þegar
orðin stærsta hljómsveit Íslandssögunnar
þá verður hún orðin það í lok árs. Og þegar
það gerist, þá verður tónlist hljómsveitar-
innar öflugri útflutningsvara en þorskur.
Öfl ugri útfl utningsvara en þorskur
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-3
F
8
0
1
4
2
F
-3
E
4
4
1
4
2
F
-3
D
0
8
1
4
2
F
-3
B
C
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K