Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 19. mars 2015 | SKOÐUN | 25 Á fyrri tíð gerðist það með all- reglulegu millibili, að kjarasamn- ingar á vinnumarkaði fóru úr böndum. Verklýðsforingjar báru jafnan mestan hluta ábyrgðarinn- ar á þessu ástandi í þeim skiln- ingi, að þeir gerðu stundum kaup- kröfur langt umfram greiðslugetu vinnuveitenda í þeirri von og vissu, að ríkisstjórnin myndi leysa vinnuveitendur úr snörunni með ríkishallarekstri, peninga- prentun og gengisfellingum. Það gekk jafnan eftir. Verðbólgubælið Ísland Vinnuveitendur báru einnig ábyrgð í þeim skilningi, að þeir töldu sig yfirleitt ekki þurfa að hafa miklar áhyggjur af niður- stöðu kjarasamninga, þar eð ríkið myndi bjarga þeim eftir á. Kunnir eru sólstöðusamningarnir 1977. Þar var samið um 25% kaup- hækkun eða þar um bil, og verð- bólgan rauk á nokkrum árum upp í hæstu hæðir og varð 83% 1983 í krafti víxlgengis verðlags og launa. Ábyrgðarleysi vinnuveit- enda lýsti sér einnig í því, að þeir undu markaðsfirringu efnahags- lífsins og meðfylgjandi spillingu mætavel. Allt efnahagslífið var svo njörvað niður, að við lá, að enginn gæti hrært legg eða lið nema með leyfi stjórnmálaflokk- anna. Vinnuveitendur hegðuðu sér eins og framlengdur armur Sjálfstæðisflokksins: þeir boðuðu markaðsbúskap í orði, en börðust gegn honum á borði. Þeir sýndu aðild að ESB ekki áhuga fyrr en eftir dúk og disk, einir í hópi evr- ópskra atvinnurekenda. Verklýðs- hreyfingin var einnig flokkspóli- tísk, en þó þannig að þar komu allir flokkar við sögu. Ríkið bar einnig mikla ábyrgð á verðbólg- unni með lausatökum í efnahags- málum, sem rýrðu kaupmátt og ýttu þannig undir kaupkröfur í kjarasamningum. „Þjóðarsáttin“ Þessum langa darraðardansi lauk 1990, þegar nokkrir verklýðsfor- ingjar og forustumenn vinnu- veitenda ákváðu að hætta gömlu vitleysunni og semja heldur um hóflega kauphækkun í þeirri von, að verðbólgan hægði þá á sér. Verðtrygging fjárskuldbindinga var þá nýkomin til skjalanna og dró úr aðdráttarafli áframhald- andi verðbólgu. Það lýsti hug- mynd samningsaðila um eigin mátt og megin, að þeir kenndu samkomulagið sín í milli við „þjóðarsátt“. Hugsunin á bak við „sáttina“ var þessi: Kaupmáttur launa getur aukizt meira með hóf- legri kauphækkun en með gamla laginu. Þetta reyndist rétt eins og vita mátti, enda ber reynslan órækt vitni víðs vegar að. Mikil verðbólga hefur alls staðar og ævinlega óhagkvæmni í för með sér og kemur iðulega verst við þá, sem minnst mega sín. Tilraunin tókst. Verðbólga hefur mælzt í eins stafs tölum hér heima síðan 1991 nema eftir hrun, þegar hún rauk upp fyrir 10% 2008 og 2009. Nú er hún næstum engin aldrei slíku vant, ekki sízt vegna lækk- andi verðs á innfluttri olíu. Ófriðlegar horfur Nú bendir ýmislegt til aftur- hvarfs til fyrri hátta í kjarasamn- ingum, enda hefur lagaumgerð vinnumarkaðarins haldizt óbreytt í grundvallaratriðum frá 1938. Að þessu sinni bera vinnuveit- endur ásamt stjórnvöldum höfuð- ábyrgð á ófriðlegum horfum á vinnumarkaði. Vinnuveitendur hafa storkað launafólki með hroka („Viðskiptaráð leggur til að Ísland hætti að bera sig saman við Norðurlöndin enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum“) og hirðuleysi, sem lýsir sér m.a. í ofurháum forstjóralaunum og rausnarlegum starfslokasamning- um. Þetta er ný staða. Það hefur ekki gerzt áður, að vinnuveitend- ur hafi beinlínis storkað laun- þegum til að leggja fram miklar kaupkröfur í næstu samningalotu. Ríkisstjórnin gerði illt verra með því t.d. að láta það vera eitt sitt fyrsta verk í fyrra að aftur- kalla áður ákveðna hækkun veiði- gjalda útvegsfyrirtækja. Þetta skiptir máli í ljósi aðkomu ríkis- ins að kjarasamningum á fyrri tíð, ýmist fyrir fram eða eftir á, og einnig vegna þess, að ríkið er stærsti vinnuveitandinn. Með því að skáka læknum í verkfall tefldi ríkisstjórnin endanlega frá sér getunni til að hafa hemil á launaþróuninni. Stórir hópar launþega munu því að miklum lík- indum gera kröfur um svipaðar kjarabætur og læknar fengu (og flugmenn). Spurt verður, hvers vegna ríkið og fyrirtækin séu ekki borgunarmenn fyrir mann- sæmandi launum. Spurningin er réttmæt eftir allt, sem á undan er gengið. Launþegar mættu einnig líta í eigin barm. Ríkisstjórnin situr í umboði þeirra sem kjósenda. Óveður í aðsigi Í DAG Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor Það hefur ekki gerzt áður, að vinnuveit- endur hafi beinlínis storkað launþegum til að leggja fram miklar kaupkröfur í næstu samningalotu. VELKOMIN Á LANDSFUND! FÖSTUDAGUR 20. MARS 11:00-13:30 Setning landsfundar Tillögur kynntar, fyrri umræða 14.00-16:00 OPNAR MÁLSTOFUR á föstudegi, allir velkomnir! Kl. 13:30 Landsþing 60+ Þriðja æviskeiðið – ný tækifæri Sveitarstjórnaráð Hinn mannlegi þáttur stjórnmálanna Ungir jafnaðarmenn Ísland – best í heimi? 16.00-16:30 Feðginin Sigurður Flosason og Anna Gréta Sigurðardóttir leika djass 16:30-17:30 SETNINGARHÁTÍÐ í Súlnasal Hótel Sögu Setningarræða formanns, Árna Páls Árnasonar og ávarp Evin Incir, framkvæmdastýru IUSY Sigríður Thorlacius syngur og fjallkonan minnist 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna með áhættuatriði! 18:00-22:00 Málefnanefndir að störfum LAUGARDAGUR 21. MARS 09:30-11:30 Landsfundi fram haldið Tillögur málefndanefnda, síðari umræða og afgreiðsla 11:30-12:30 OPNAR MÁLSTOFUR á laugardegi, allir velkomnir! Húsnæðismálin! Að geta hvorki keypt né leigt Kvennahreyfingin Sókn gegn heimilisofbeldi Græna netið Látum Drekann sofa en samviskuna vaka 13:30-17:00 Umræður, afgreiðsla tillagna og önnur mál 17:00-17:30 Lokaathöfn og afhending Hvatningarverðlauna Samfylkingarinnar 20:00 Hátíðarkvöldverður og skemmtun í Iðusölum SAMFYLKINGIN – AÐ STÖRFUM FYRIR ALMENNING #xslandsfundur www.xs.is Stéttvísi forstjóraveldisins Þetta er það sem stjórnarseta í fyrir- tækjum gengur alltof oft út á– að skammta nógu andskoti há laun. Það má nota gamalt hugtak yfir þetta og kalla það „stéttvísi“. Því miður virðist for- stjóravaldið núorðið hafa meiri stéttvísi en allur almenningur. Hún felst í því að forstjóra/ stjórnarmanni eru skömmtuð ofurlaun– í þeirri vissu að þegar kemur að honum að skammta öðrum forstjóra/stjórnarmanni ofurlaun þá gerir hann það og þykir ekkert tiltökumál. Og svo koll af kolli. Þetta festir svo í sessi ójöfnuð- inn sem er að verða eitt helsta bölið í vestrænum hagkerfum– og hefur ekki verið meiri síðan fyrir heimsstyrjöldina. http://eyjan.pressan.is Egill Helgason Hræðsluáróðurinn stenst ekki Allt frá lýðveldis- stofnun fyrir tæpu 71 ári hafa íslenskir valdamenn ávallt heykst á því að halda þjóðaratkvæða- greiðslur um pólitísk málefni á þeim forsendum sem nú er haldið á lofti eina ferðina enn: „Þjóðar- atkvæðagreiðsla myndi ógilda alþingiskosningar.“ Reynslan hér hefur þó sýnt allt annað, því í þau þrjú skipti sem forsetinn hefur vísað málum til þjóðarinnar, fjölmiðlafrumvarpinu og tveimur Icesave-málum, sátu báðar ríkisstjórnirnar, sem í hlut áttu, áfram, og næstu alþingis- kosningar fóru síðan fram eins og ekkert hefði í skorist. http://omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson AF NETINU 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 F -6 2 1 0 1 4 2 F -6 0 D 4 1 4 2 F -5 F 9 8 1 4 2 F -5 E 5 C 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.