Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 58
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING KVIKMYNDIR | 42 „Þetta kom okkur mjög á óvart,“ segja Birnir Jón Sigurðsson og Elmar Þórarinsson en stuttmynd þeirra, Heimanám, bar sigur úr býtum á alþjóðlegri kvikmyndahá- tíð á Tahítí sem fram fór um helgina. Myndin sigraði í flokki fyrstu mynda á hátíðinni Courts des Îles en yfir tvö þúsund myndir tóku þátt í forvali fyrir hátíðina. Mynd Birnis og Elmars náði í gegnum nið- urskurðarferlið og endaði á því að verða hlutskörpust. Ein kvikmynd- in sem laut í lægra haldi fyrir þeim hafði áður verið sýnd á Cannes og verið tilnefnd til BAFTA New Tal- ents-verðlauna. „Aðstandendur hátíðarinnar báðu okkur um að senda út stutta þakkar- ræðu sem við gerðum,“ segir Birnir. „Hún var öll á voða bjagaðri ensku og hálfgert grín af okkar hálfu því við áttum engan veginn von á þessu.“ „Við sóttum um að vera í Skap- andi sumarstörfum hjá Kópa- vogsbæ,“ segir Elmar en hann var nokkuð nálægt því að skila umsókn- inni of seint. Það slapp þó fyrir horn og myndina unnu þeir í sumar. Líkt og áður segir heitir myndin Heimanám og fjallar um dreng sem hefur í hyggju að vinna heima. Það plan fer þó út í veður og vind sökum þess hve ótrúlega frjótt ímyndunar- afl hann hefur. Elmar leikur aðal- hlutverkið og Kristín Ólafsdóttir leikur lítið hlutverk. Myndataka, handritsgerð og leikstjórn var í höndum Birnis en klippinguna unnu þeir saman. „Við gerðum þetta tveir saman með eina myndavél og Volkswagen Golf,“ segir Elmar og Birnir bætir við að í myndinni sé atriði þar sem Elmar sé í sjávarháska. „Þá stóð ég yfir honum með myndavélina í ann- arri og garðkönnu í hinni.“ Myndin var að stærstum hluta tekin upp á þremur dögum heima hjá aukaleikkonunni Kristínu. Í kjöl- farið fór af stað vinna við að koma hljóði myndarinnar í toppstand. „Hljóðið hefur stundum verið ákveðinn Akkilesarhæll íslenskra kvikmynda svo við lögðum tals- verða vinnu í að taka það upp eftir á,“ segir Elmar. „Það er rétt,“ svarar Birnir. „Meðan myndin var tekin upp var HM í fótbolta í gangi og faðir Kristínar var að fylgjast með í næsta herbergi. Hljóðið af setti var algerlega ónothæft.“ Spurðir um framhaldið segjast þeir ekki vera vissir um hvað taki við. Upplýsingarnar frá hátíðinni hafi allar verið á frönsku en í því hafi meðal annars verið minnst á Cannes. „Við höldum að við séum komnir inn í forvalið þar en það skýrist betur síðar,“ segja þeir að lokum. Sigruðu á tahítískri kvikmyndahátíð Birnir Jón Sigurðsson og Elmar Þórarinsson framleiddu stuttmynd í starfi sínu hjá Skapandi sumarstörfum Kópavogsbæjar. Í kjölfarið sendu þeir hana til aðstandenda ýmissa kvikmyndahátíða. Kvikmyndin stóð uppi sem sigurvegari í fl okki fyrstu mynda á einni slíkri hátíð. Pá Pá Úrval af mildum og ómótstæðilegum ostum á veisluborðið. Dala-Auður, Dala-Kastali og Dala-Camembert fullkomna veisluna. Leikstjórinn Clint Eastwood hefur lengi ætlað að endurgera myndina A Star is Born. Það sem hins vegar stendur í veginum fyrir því að gera hana er það að hann vill fá söng- konuna Beyoncé í aðalhlutverkið, en vandamálið er að hún er hreinlega of upp- tekin. „Ég hef reynt að fá tíma með henni til að skipuleggja, en hún er mjög vinsæl og upptekin. En ég hef ekki gefið upp alla von enn,“ segir Eastwood. Beyoncé of upptekinNæsta frú Tekanna Mikil dulúð hvílir yfir leikaraskipan myndarinnar Beauty and the Beast, eða Fríða og dýrið. Disney hefur þó staðfest að Emma Thompson mun fara með hlutverk í myndinni. Hún mun bregða sér í hlutverk frú Tekönnu, eða Mrs. Potts eins og hún kallast á frummál- inu. Ljóst þykir að kvikmyndin verður stjörnum prýdd. Gert er ráð fyrir að myndin muni koma í kvikmyndahús vestanhafs 17. mars árið 2017. Jóhann Óli Eiðsson johannoli@frettabladid.is BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS 60 ára Bruce Willis leikari Þekktastur fyrir Die Hard og The Sixth Sense The Gunman Spennumynd Helstu leikarar: Sean Penn, Idris Elba, Jasmine Trinca. The Divergent Series: Insurgent Spennumynd Helstu leikarar: Shailene Woodley, Ansel Elgort, Theo James. FRUMSÝNINGAR 5,9/10 6,9/1029% 38% SIGURVEGARAR Elmar og Birnir áttu ekki von á því að sigra á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Court de Îles-stuttmyndahátíðin fer fram á eynni Tahítí sem er partur af Frönsku Pólýnesíu. Nafn hátíðar- innar myndi útleggjast á íslensku sem Eyjastuttmyndirnar. Þetta var í annað skipti sem hátíðin var haldin. Til að mega taka þátt þurfti höfundur kvikmyndarinnar að vera fæddur á eyju sem er minnst ferkílómetri að flatar- máli og með minnst fimmtíu íbúa. Minnst kílómetri verður að vera að landi. Að auki máttu myndirnar vera í mesta lagi tuttugu mínútur að lengd. Leikstjórar frá löndum um allan heim tóku þátt. Þar má nefna Nýja-Sjáland, Ísland, Madagaskar og Filippseyjar. Einnig tók þátt fólk frá eyjum sem tilheyra öðrum löndum, t.d. Jövu, Kanaríeyjum, Havaí og Tasmaníu. Til að vera gildir þátttakendur í flokki fyrstu mynda, líkt og Birnir og Elmar, máttu þeir ekki hafa sent frá sér fleiri kvikmyndir en tvær. 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 F -4 4 7 0 1 4 2 F -4 3 3 4 1 4 2 F -4 1 F 8 1 4 2 F -4 0 B C 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.