Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 22
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22
BJÓÐUM KONUR VELKOMNAR
Á BÁSINN Á KVENNAKVÖLDIÐ Í SMÁRALIND Í KVÖLD
Kolla Björns og Sasa kynna stelpuhjólaferðina sína til Mallorca.
Einnig kynning á Valencia, Lissabon og Sólardögum.
Gunnlaugur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Eykons Energy,
segir að miðað við sínar upp-
lýsingar ætti að vera hægt að
afnema þær undanþágur sem
veittar eru frá gjaldeyrishöft-
um og setja almennar reglur á
grundvelli þeirra. Nema að það
sé verið að mismuna umsækjend-
um verulega um undan þágur.
Hann gagnrýnir þá leynd sem
hefur verið um þær undanþág-
ur sem hafa verið veittar. „Það
er grundvallarregla í réttarsam-
félagi að rétturinn sé þekktur
fyrir fram. Til dæmis er gerð sú
krafa að lög gilda ekki fyrr en þau
hafa verið birt, reglugerðir gilda
ekki fyrr en þær hafa verið birt-
ar. En undanþágur sem augljós-
lega eiga að hafa fordæmisgildi ef
allir eiga að vera meðhöndlaðir á
sama hátt, þær eru ekki birtar,“
segir hann.
Gunnlaugur bætir því við að
fólk hafi ekki hugmynd um hvern-
ig undanþágu það á að sækja
um. „Kannski skiptir þá máli að
þekkja einhvern í Seðlabankan-
um sem veit þá hvernig undan-
þágu maður á að sækja um,“ segir
Gunnlaugur.
Hann segir að fólk standi frammi
fyrir tvenns konar vandamálum.
Í fyrsta lagi að það viti ekki um
hvers konar undanþágur það á að
sækja. Í öðru lagi að það sé ekk-
ert aðhald. „Maður getur ekki sótt
neitt mál, maður getur ekki beitt
neinum rökum um jafnræði vegna
þess að maður veit ekki hvað
hefur verið gert annars staðar,“
segir Gunnlaugur.
Gunnlaugur segir að Eykon hafi
sótt um undanþágu sem var hafn-
að í sinni ýtrustu mynd en síðar
fengið vægari undanþágu. Eykon
fékk þá undanþágu frá formreglu,
en undanþágan hafði ekki áhrif á
gjaldeyrisflæði frá Íslandi.
Gunnlaugur segist enga ástæðu
hafa til þess að telja að Seðlabank-
inn misbeiti valdi sínu. Hann
skilji niðurstöðuna varðandi
umsókn Eykons, ef ekki eru ein-
hverjar aðrar undanþágur sem
ganga í berhögg við þau vinnu-
brögð sem Seðlabankinn viðhafði
þá. „En það sem mér finnst ef til
vill gagnrýnivert og ég veit ekki
hvort ég get gagnrýnt eða rök-
rætt er hvort einhverjir aðrir
hafi fengið betri fyrirgreiðslu. Ég
hef heyrt um nokkur slík dæmi,“
segir Gunnlaugur. Hann hafi hins
vegar engar áreiðanlegar heim-
ildir um það þar sem upplýsingar
um undan þágurnar eru ekki opin-
berar.
„Það hlýtur að vera eðlilegt að
stjórnvald eins og Seðlabankinn
gefi nægar upplýsingar til þess að
orðrómur sem þessi skipti engu
máli. Ég er sem sagt ekki að setja
orðróminn fram vegna þess að ég
trúi á hann, heldur sem rök fyrir
því að þetta eigi að opna til að
taka af öll tvímæli,“ segir hann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
undanþágurnar frá gjaldeyris-
höftum hafa sætt gagnrýni. Bæði
Viðskiptaráð og Páll Harðarson,
forstjóri Kauphallar Íslands,
hafa gagnrýnt ógagnsæið.
jonhakon@frettabladid.is
Undanþágur verði afnumdar
Framkvæmdastjóri Eykons telur hægt að afnema undanþágur frá gjaldeyrishöftum, ef allir sitja við sama borð.
Hann gagnrýnir leynd sem ríkir um undanþágurnar og að fólk þurfi að byggja upplýsingar á sögusögnum.
VILL UPPLÝSINGAR Gunnlaugur Jónsson segir ómögulegt að þurfa að byggja heimildir sínar á sögusögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er grundvallar-
regla í réttarsamfélagi að
rétturinn sé þekktur
fyrirfram.
Gunnlaugur Jónsson.
Tilkynnt var í gær að Seðlabanki
Íslands myndi halda vöxtum
óbreyttum. Meginvextir bankans
verða því áfram 4,5 prósent. Már
Guðmundsson seðlabankastjóri
og Arnór Sighvatsson aðstoðar-
seðlabankastjóri gerðu grein fyrir
ákvörðun Peningastefnunefndar á
fundi í gær.
Þar er vísað í nýbirta þjóðhags-
reikninga þar sem fram kemur að
hagvöxtur var á síðasta ári 1,9%,
sem er í takt við það sem Seðla-
bankinn áætlaði í febrúar. „Nýju
gögnin staðfesta það mat nefndar-
innar, sem fram kom í síðustu yfir-
lýsingu, að fyrri áætlanir um hag-
vöxt á fyrstu þremur fjórðungum
ársins hafi falið í sér vanmat og
breyta því ekki í meginatriðum
mati nefndarinnar á nýlegum hag-
vexti og efnahagshorfum,“ segir í
greinargerð Peningastefnunefndar.
Þá segir að verðbólga hafi mælst
0,8% undanfarna mánuði og lítils
háttar lækkun verðlags mælist sé
horft fram hjá áhrifum húsnæðis-
kostnaðar.
„Lítil alþjóðleg verðbólga og
stöðugt gengi krónu halda aftur
af verðbólgu og vega á móti
áhrifum töluverðra launahækk-
ana innanlands,“ segir í greinar-
gerðinni. Vísbendingar séu um að
verðbólguvæntingar hafi hækkað
undanfarnar vikur sem mögulega
endurspegli væntingar um að nið-
urstaða komandi kjarasamninga
muni ekki samrýmast verðbólgu-
markmiðinu.
Þá ítrekar Seðlabankinn að hald-
ist verðbólga undir markmiði og
launahækkanir verði í komandi
kjarasamningum í samræmi við
verðbólgumarkmiðið gætu skap-
ast forsendur fyrir frekari lækkun
nafnvaxta. Miklar launahækkanir
og vöxtur eftirspurnar gætu hins
vegar valdið því að hækka þurfi
vexti á ný. - jhh
Telja að nýbirtar hagtölur bendi til þess að Hagstofan hafi vanmetið hagvöxt á fyrstu þremur fjórðungum síðasta árs:
Þróun vaxta ræðst af komandi kjarasamningum
SEÐLABANKI Már Guðmundsson og
Arnór Sighvatsson hittu blaðamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lítil alþjóðleg verð-
bólga og stöðugt gengi
krónu halda aftur af
verðbólgu.
HOB-vín ehf. skilaði 42,2 millj-
óna króna hagnaði á síðasta ári,
samkvæmt samandregnum árs-
reikningi sem nýlega var birtur
í ársreikningaskrá. Það er mun
betri niðurstaða en árið áður
þegar hagnaðurinn nam 17 millj-
ónum króna.
Eigið fé félagsins er tæpar 108
milljónir. Eignir félagsins námu
201 milljón króna við síðustu ára-
mót og höfðu aukist um 50 millj-
ónir á milli ára. Þar af er eigið fé
107,8 milljónir. - jhh
Áfengissala gaf vel af sér:
Hagnaður HOB
jókst verulega
Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær
tillögur nefndar um heildarendur-
skoðun á lögum um Seðlabankann
verða birtar almenningi. Nefndin
starfaði undir forystu Þráins Eggerts-
sonar hagfræðings, en auk hans sátu
Friðrik Már Baldursson hagfræðingur
og Ólöf Nordal, núverandi innanríkis-
ráðherra, í nefndinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
fjármála- og efnahagsráðuneytinu
hafa tillögurnar ekki verið kynnt
þingmönnum stjórnarflokkanna.
Ráðherra hefur frest til mánaðamóta
til þess að leggja frumvarpið fram,
vilji hann gera það á þessu þingi. - jhh
Ný lög um Seðlabankann:
Ekki búið að
kynna tillögur
RÁÐHERRA Nefnd um heildarendur-
skoðun laga hefur skilað tillögum. Þær
hafa hvorki verið kynntar þingi né
almenningi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Virðing hf. skilaði 60 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári. Þetta var fyrsta árið sem Auður Capital
og Virðing störfuðu saman undir nafni hins síðar-
nefnda.
Heildartekjur á árinu námu 921 milljón og eigið
fé var 697 milljónir. Töluverður einskiptiskostnaður
féll til vegna sameiningarinnar og var hann að fullu
gjaldfærður á árinu, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu.
Stjórnendur búast við að hagræðingaraðgerðir
sem ráðist hefur verið í síðustu mánuði skili sér að
fullu á árinu 2015.
„Sameining Auðar Capital og Virðingar hefur
reynst vera mikið gæfuspor. Félagið nýtur mikils
trausts á markaðnum sem sést einna best á breidd
viðskiptavinahóps félagsins. Sameinað félag er með
alla helstu lífeyrissjóði landsins í viðskiptum auk
annarra stórra fagfjárfesta og efnameiri einstak-
linga. Árangurinn í ávöxtun verðbréfasjóða og í
eignastýringu á síðasta ári talar sínu máli og er til
vitnis um hæfni og reynslu þess öfluga fólks sem
hér starfar,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson for-
stjóri í tilkynningu. - jhh
Töluverður einskiptiskostnaður varð vegna sameiningar Virðingar og Auðar:
Hagnaðurinn 60 milljónir króna
FORSTJÓRI Hannes Frímann segir að Virðing sé með alla
helstu lífeyrissjóði landsins í viðskiptum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
F
-4
4
7
0
1
4
2
F
-4
3
3
4
1
4
2
F
-4
1
F
8
1
4
2
F
-4
0
B
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K