Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 4
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ORKUMÁL Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi í uppsveitum Árnessýslu, segir nauðsynlegt að vinna að sameiginlegri stefnu sveitarfélaga vegna vaxandi áhuga á orkuvinnslu úr vindafli. „Í nágrannalöndum Íslands hefur verið að byggjast upp tölu- verð reynsla í þessum málaflokki og hefur vindmyllum, bæði stök- um og vindmyllugörðum, fjölg- að mikið á undanförnum árum. Fyrsta skref í vinnu við stefnu- mörkun gæti því verið að kynna sér hvernig staðið er að þessum málum í löndum sem eru „sam- bærileg“ Íslandi,“ skrifar Pétur til sveitarfélaganna sex á Suðurlandi sem hafa hann sem sameiginlegan skipulagsfulltrúa. Að sögn Péturs er nú, í gegnum Skipulagsstofnun, verið að kanna möguleika á heimsóknum fulltrúa sveitarfélaganna til Noregs eða Skotlands, eða jafnvel til beggja landanna. „Í kjölfar ferðarinnar yrði sett í gang vinna við stefnumörkun um vindmyllur á svæðinu,“ segir í bréfi Péturs þar sem hann rekur að á undanförnum mánuðum hafi komið upp tvö mál sem tengj- ast mögulegri vinnslu vindorku. Fyrra málið varði vindmyllur sem Landsvirkjun hafi sett upp vestan við Bjarnalón ofan Búrfellsvirkj- unar og hið síðara snerti beiðni um uppsetningu tveggja stórra vind- mylla í landi Vorsabæjar. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp- verjahrepps hafi hafnað beiðninni í Vorsabæ þar sem stefnumörkun um myllur af þeirri stærðargráðu lægi ekki fyrir. „Þegar þetta lá fyrir leituðu umsækjendur til nágrannasveitar- félags og hafa tvær vindmyllur nú verið reistar í Þykkvabæ,“ bendir Pétur á. Til viðbótar sé Landsvirkjun að marka stefnu um frekari uppbygg- ingu vindmylla í Búrfellslundi norðan Búrfells. Óskað hafi verið eftir að setja upp stóra vindmyllu í landi Bergsstaða í Bláskógabyggð. „Þá hafa borist nokkrar óformleg- ar fyrirspurnir um möguleikann á uppbyggingu á öðrum svæðum, til dæmis í Flóahreppi, án þess að formleg erindi hafi verið send inn,“ segir skipulagsfulltrúinn. gar@frettabladid.is SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Uniq 4202 Glæsilega hannaður og vandaður sturtuklefi. Auðveldur í uppsettningu FRÁBÆR GÆÐI / GOTT VERÐ 11% starfandi fólks í landinu, rúmlega, eru opinberir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga. Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá HELDUR HLÝNANDI Í dag má búast við 10-15 m/s NA-til en hægari vindi annars staðar. Rigning eða skúrir S- og V-til en él annars staðar. Léttir til í kvöld og á morgun verður fínasta veður fram eftir degi. Þá hvessir af suðaustri, fyrst SV-til. 2° 6 m/s 3° 6 m/s 5° 5 m/s 7° 7 m/s Hvessir S- og V-til síðdegis með vaxandi úrkomu. SA-átt, víða 8-13 m/s. Gildistími korta er um hádegi 5° 29° 8° 11° 18° 9° 14° 8° 8° 19° 9° 19° 18° 13° 15° 11° 11° 15° 5° 6 m/s 5° 8 m/s 2° 11 m/s 1° 14 m/s 3° 9 m/s 5° 8 m/s 1° 10 m/s 3° 5° 0° 2° 5° 6° 1° 2° 3° 4° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN Stefna um vindmyllur mörkuð í uppsveitum Útsendarar sex sveitarfélaga á Suðurlandi fara til Noregs eða Skotlands að skoða vindmyllur til að marka stefnu um þær. Tvær stórar myllur, sem hafnað var í Vorsabæ vegna skorts á umgjörð þar, voru í staðinn reistar í næsta sveitarfélagi. VIÐ BÚRFELL Landsvirkjun hefur þegar sett upp vindmyllur ofan Búrfellsvirkjunar og er með fleiri myllur á öðrum stöðum á teikniborðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þegar þetta lá fyrir leituðu umsækjendur til nágrannasveitarfélags og hafa tvær vindmyllur nú verið reistar í Þykkvabæ. Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi í uppsveitum Árnissýslu. ELDSVOÐI Mikið tjón varð þegar eldur kviknaði í tengibyggingu á milli tveggja stórra gróðurhúsa á garðyrkjubýlinu Brúnalaug í Eyjafjarð- arsveit í fyrrinótt. Þegar slökkviliðið á Akureyri kom á vettvang hafði eldurinn náð að teygja sig eitthvað inn í gróðurhúsin en slökkvistarf gekk vel. Miklar skemmdir urðu á húsunum en ekki er vitað hvort uppskeran, papriku- rækt sem komin var á lokastig, hafi eyðilagst í eldinum. Eldsupptök eru enn ókunn en lögreglan á Akureyri rannsakar málið. - sa Mikið tjón í eldsvoða í gróðrarstöð í Eyjafirði í fyrrinótt: Eldur kom upp í tengibyggingu BRÚNALAUG Eins og sjá má er tjónið mikið. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan á Akureyri rannsakar málið. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN SAMFÉLAG „Átakið hvetur landsmenn til að koma fram hver við annan af virð- ingu sama hvaðan þeir koma,“ segir Þór- unn Lárusdóttir, verkefnastýra átaks- verkefnis Rauða krossins. Rauði krossinn ákvað á aðalfundi sínum í desember að fjármagna tveggja ára átaksverkefni, Vertu næs, til að berjast gegn fordómum gagnvart fólki á Íslandi sem er af erlendum uppruna. Með átakinu er leitast við að hvetja fólk til að líta í eigin barm, skoða hvern- ig það kemur fram við fólk sem hefur annan bakgrunn, annað litaraft eða aðra trú en það sjálft og athuga hvort það geti gert betur. „Þetta gerum við af því að það hefur borið við á undanförnum árum að for- dómar í garð þeirra sem eru af erlend- um uppruna hafa aukist, en það kom fram í skýrslu Rauða krossins, Hvar þrengir að?“ Rauði krossinn á Íslandi hvetur lands- menn til þess að bera virðingu fyrir náunganum sama hvaðan hann er upp- runninn. „Fordómar byggjast oft á van- þekkingu og ætlar Rauði krossinn að taka á því með því að upplýsa fólk.“ - ngy Rauði krossinn berst gegn fordómum gagnvart fólki á Íslandi sem er af erlendum uppruna: Reyna á að ráðast gegn vanþekkingu VERKEFNA- STÝRA „VERTU NÆS“ Verk- efnið hefur það að markmiði að vekja íslenskt samfélag til umræðu um stöðu fólks af erlendum upp- runa hér á landi og upplýsa þjóð- ina um afleið- ingar fordóma í þeirra garð. DANMÖRK Sjö sveitarfélög í Danmörku hafa fengið leyfi til að raða nemendum í bekki eftir áhuga þeirra og þroska en ekki eftir aldri. Um er að ræða til- raunaverkefni á vegum danska menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðherra Dan- merkur, Christine Antorini, bendir á að þetta þýði þó ekki að eingöngu verði raðað í bekki eftir hæfileikum nemenda. Óðinsvé er eitt sveitarfélag- anna sem þátt taka í verkefninu næstu þrjú ár. - ibs Nýung prófuð á nemendum: Raða í bekki eftir þroska SVÍÞJÓÐ Sænsk þingnefnd leggur til að ríkisstjórnin kanni skjótt möguleikana á áfengismælingu við hafnir til að koma í veg fyrir að ökumenn, sem koma með ferj- um til Svíþjóðar, aki undir áhrif- um áfengis inn í landið. Tilraun með slíka mælingu hefur á undanförnum árum verið gerð í Gautaborg og Stokkhólmi. Niðurstaðan er sú að umferð hafi ekki tafist vegna þess. Allir flokkar styðja tillöguna um að áfengismæling verði til fram- búðar. - ibs Með ferju til Svíþjóðar: Áfengi mælt í ökumönnum FOR- DÆMI Víða í Evrópu virkja lönd vindorkuna til þess að spara í orku- málum. Hér má sjá vind- myllur sem settar hafa verið upp í Grikklandi. NORDIICPHOTOS/ AFP 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -3 F 8 0 1 4 2 F -3 E 4 4 1 4 2 F -3 D 0 8 1 4 2 F -3 B C C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.