Fréttablaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 6
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Í hversu mörgum löndum er Eim-
skip með starfsstöðvar?
2. Hver var kjörinn besti þjálfarinn í
seinni hluta Dominos-deildarinnar í
körfubolta?
3. Hvaðan er tónlistarmaðurinn Ben
Frost sem býr hér á landi?
SVÖR:
1. Í nítján löndum. 2. Israel Martin. 3.
Melbourne í Ástralíu.
Konukvöld
í Smáralind
Módel: Andrea Stefánsdóttir
Umgjörð: Victoria Beckham
afsláttur af
öllum vörum
www.facebook.com/OpticalStudio
OPIÐ FRÁ 10 TIL 23
FERÐAÞJÓNUSTA Boðaðar verk-
fallsaðgerðir Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) munu hafa mikil
áhrif á ferðaþjónustuna. Helga
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF), hefur áhyggjur af launa-
kröfum sambandsins en vonar að
samningsaðilar nái samningum
áður en til verkfalla kemur.
„Farið er fram á 50 til 70 pró-
senta hækkun launa allra félags-
manna og þá er gert ráð fyrir
að hækkun þeirra hæst launuðu
sé hlutfallslega mest. Ef gengið
yrði að þessum kröfum myndi
það hafa mikil og alvarleg áhrif
á ferðaþjónustuna og ekki síst á
minni fyrirtæki á landsbyggð-
inni sem hafa verið að byggja upp
starfsemi sína með tilheyrandi
fjárfestingum. Hlutfall launa í
ferðaþjónustu er almennt hátt og
því ljóst að áhrifin yrðu gríðar-
leg,“ segir Helga. „Íslensk ferða-
þjónusta er í mikilli samkeppni
við aðra áfangastaði. Nú þegar
þykir landið frekar dýrt ferða-
þjónustuland og því myndi slík
hækkun launa veikja verulega
samkeppnis hæfni þess.“
Björn Snæbjörnsson, for-
maður Starfsgreinasambands-
ins, segir það á ábyrgð SA ef til
verkfalls kemur. „Það er alveg
ljóst að ef til verkfallsaðgerða
kemur mun það hafa gríðarleg
áhrif á ferðaþjónustuna úti á
landi. Við megum ekki gleyma
því að við erum að fara í verkfall
vegna þess að Samtök atvinnu-
lífsins vilja ekki ræða við okkur.
Það er því á þeirra ábyrgð ef til
verkfalla kemur. Einnig megum
við ekki gleyma því að starfs-
fólk í ferðaþjónustu er yfirleitt á
lægstu laununum,“ segir Björn.
SGS, sem fer með samnings-
umboð fyrir ríflega tíu þúsund
manns, hefur boðað verkfalls-
aðgerðir frá og með tíunda apríl
næstkomandi. Krafa þeirra er að
grunnlaun hækki á næstu þrem-
ur árum upp í þrjú hundruð þús-
und krónur á mánuði. Frá 10.
apríl til 26. maí verða tímabund-
in verkföll á hinum ýmsu stöðum
á landinu. Ef ekki verður samið
fyrir þann tíma skellur á ótíma-
bundið allsherjarverkfall þeirra
16 aðildarfélaga sem veitt hafa
SGS umboð sitt.
Yfirvofandi verkfall getur farið
að hafa áhrif strax á afbókan-
ir erlendra ferðamanna að mati
Helgu. Fyrri reynsla sýni að
afbókanir byrji að hrannast inn
hjá ferðaþjónustuaðilum áður en
til verkfalls kemur. „Við sáum það
í verkfallsaðgerðum flugstéttanna
síðastliðið vor. Þá urðum við strax
vör við töluvert margar afbókanir
með tilheyrandi tekjutapi. Ferða-
menn eru fljótir að afbóka ferðir
þegar óvissuástand skapast. Orð-
spor og ímynd íslenskrar ferða-
þjónustu skiptir okkur öllu máli
en óróleiki sem þessi er fljótur að
spyrjast út,“ segir Helga.
sveinn@frettabladid.is
Það er
alveg ljóst að
ef til verk-
fallsaðgerða
kemur mun
það hafa
gríðarleg áhrif á ferða-
þjónustuna úti á landi
Björn Snæbjörnsson,
formaður Starfsgreinasambandsins.
Farið er fram á 50 til 70 prósenta hækk-
un launa allra félagsmanna og þá er gert ráð
fyrir að hækkun þeirra hæst launuðu sé
hlutfallslega mest. Ef gengið yrði að þessum
kröfum myndi það hafa mikil og alvarleg
áhrif á ferðaþjónustuna.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF.
AFBÓKANIR Fyrri reynsla ferðaþjónustunnar sýnir að mögulegt verkfall hefur fljótt áhrif
á afbókanir í greininni og veldur íslensku efnahagslífi miklum búsifjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ferðafólk hættir við að
koma vofi verkföll yfir
Yfirvofandi verkfall SGS hefur mikil áhrif á ferðaþjónustu. Fyrri reynsla af verkföllum sýni að ferðamenn af-
bóki áður en til verkfalls kemur. „Verkfall er algjörlega á ábyrgð SA,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS.
SAMFÉLAG ,,Ég giska á að það hafi
verið um fjögur til fimm þúsund
ferðamenn í norðurljósaferðum á
þriðjudaginn,“ segir Kári Jónasson
leiðsögumaður. Tvö hundruð erlend-
ir ferðamenn og vísindamenn eru
nú á Íslandi á vegum bandarískr-
ar ferðaskrifstofu sem Kári vinnur
fyrir. Ferðamennirnir komu hingað
til lands vegna sólmyrkvans á föstu-
dag.
„Á þriðjudag fórum við í norður-
ljósaferð í Hafnarfjarðarhraun og
sáum mögnuð norðurljós enda mikil
virkni,“ segir Kári. Ferðamennirn-
ir á vegum bandarísku ferðaskrif-
stofunnar ætla að fylgjast með
sólmyrkvanum úr flugvél en Ice-
landair mun leigja út þrjár stórar
þotur til þeirra. „Ferðamennirnir
komu hingað í þeim tilgangi að sjá
sólmyrkva og hafa margir hverjir
séð marga áður. Það er til dæmis
einn Ástrali í hópnum sem er búinn
að elta tuttugu sólmyrkva.“
Þá eru nokkur skemmtiferðaskip
væntanleg til Íslands vegna sól-
myrkvans. - ngy
Norðurljós og sólmyrkvi laða ferðafólk hingað:
Þúsundir sáu ljósin
NORÐURLJÓS Á þriðjudagskvöld og aðfaranótt miðvikudags skörtuðu norðurljós
sínu fegursta víða um land. Hér myndar maður dýrðina í Hvalfirði.. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EVRÓPUMÁL Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar samþykkti á fundi sínum
í gær áskorun til ríkisstjórnar og
Alþingis um að standa við gefin
fyrirheit og halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um framhald ESB-við-
ræðna. Tillagan var samþykkt
með sex atkvæðum bæjarfulltrúa
Samfylkingar, Vinstri grænna og
Bjartrar framtíðar. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks hvorki studdu áskor-
unina né tóku þátt í umræðum.
Í greinargerð segir um svo stórt
hagsmunamál að ræða að eðlilegt
sé að þjóðin fái aðkomu að ákvörð-
un um framhald þess. - ngy
Áskorun um þjóðaratkvæði:
Vilja að staðið
sé við loforð
FÁNAR Bæjarstjórn segir ekki hægt að
segja til um ávinning af ESB-aðild fyrr
en niðurstöður viðræðna liggi fyrir.
SAMGÖNGUR Markaðsstofa
Norður lands, sem hefur umsjón
með starfi Flugklasans Air 66N á
Norðurlandi, biður nú sveitarfélög
í landshlutanum að styrkja vinnu
að því að koma á beinu millilanda-
flugi um Akureyrarflugvöll allt
árið, um 300 krónur á hvern íbúa.
Óskað er eftir framlaginu næstu
þrjú ár. Akureyrarbær hyggst
greiða 500 krónur á íbúa. „Hag-
ræn áhrif yrðu mikil á Norður-
og Austurlandi, ekki aðeins fyrir
ferðaþjónustuaðila heldur einnig
aðra þjónustu og starfsemi sem
hagnast á auknum umsvifum,“
segir í erindi Air 66N. - gar
Vilja millilandaflug nyrðra:
Biðja um 300
krónur á íbúa
VEISTU SVARIÐ?
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
F
-5
3
4
0
1
4
2
F
-5
2
0
4
1
4
2
F
-5
0
C
8
1
4
2
F
-4
F
8
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K