Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 10
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Framleiðslugeta orkuvinnslu-
svæðis Hellisheiðarvirkjunar fell-
ur nákvæmlega á þeim hraða sem
vísindamenn Orkuveitu Reykjavík-
ur gerðu ráð fyrir um mitt ár 2013.
Uppsett afl virkjunarinnar er 303
megavött (MW) en orkuvinnslu-
svæðið stendur undir innan við 270
MW í dag.
Fallið 6 megavött á ári
Fréttablaðið greindi frá því fyrst
miðla í júní 2013 að rannsóknir á
jarðhitasvæðum í Henglinum leiddu
í ljós að núverandi vinnslusvæði
Hellisheiðarvirkjunar standa ekki
undir fullri framleiðslu til fram-
búðar, og á þeim tímapunkti hafði
verulega verið dregið úr rafmagns-
framleiðslu. Vinnslusvæðið reyndist
minna og ekki eins orkuríkt og talið
hafði verið við uppbyggingu virkjun-
arinnar, sem í því ljósi var of hröð.
Þegar fréttin var skrifuð hafði
virkjunin framleitt á fullum afköst-
um til ársloka 2012 en gat um sum-
arið mest framleitt 276 megavött.
Sérfræðingar töldu raunhæft að
afköst hennar myndu falla um sem
nemur 5-6 megavöttum á ári sem
hefur gengið eftir.
269 MW
Þetta staðfestir Páll Erland, fram-
kvæmdastjóri Orku náttúrunn-
ar (ON), dótturfyrirtækis OR sem
virkjanir fyrirtækisins falla undir,
í viðtali við Fréttablaðið. Þær upp-
lýsingar fengust til viðbótar frá ON
að undanfarnar vikur var virkjunin
að skila 269 MW. Í skriflegu svari
ON til Fréttablaðsins kemur fram
að heildarframleiðsla Hellisheiðar-
virkjunar var árið 2012, fyrsta heila
árið sem allar sjö aflvélar virkjun-
arinnar voru í notkun, rúmlega 2,49
milljónir megavattstunda (MWst).
Sambærilegar tölur ársins 2013 og
2014 eru reyndar litlu lægri, eða
2,39 milljónir MWst. Þessar fram-
leiðslutölur eru hins vegar hærri en
geta orkuvinnslusvæðis virkjunar-
innar gefur tilefni til, en fyrir því
eru nokkrar ástæður.
Tæknilausnir skila miklu
Aðgerðir hvortveggja í gufuveitu
Hellisheiðarvirkjunar og í niður-
rennslisveitunni hafa spornað gegn
framleiðsluminnkun. Tæknifólk ON
hafa undanfarna mánuði haldið
framleiðslunni uppi með því t.d. að
taka inn á gufuveitu virkjunarinnar
blautari holur (hærra hlutfall vökva
á móti gufu) en æskilegt er í eðli-
legu árferði. Gripið hefur verið til
aðgerða til að auðvelda að losna við
það aukna vatnsmagn í vinnslurás-
inni sem þessu fylgir. Tæknilegar
lausnir hafa einnig gert það kleift
að halda uppi framleiðslu með því
að fresta eða breyta viðhaldsáætl-
unum.
Vatnsskortur
Margt spilar hér inn í. Landsnet
fór fram á það fyrir vorleysingar í
fyrra að raforkuframleiðendur leit-
uðust við að halda uppi sem mestri
framleiðslu til að mæta viðvarandi
vatnsskorti sem Landsvirkjun bjó
þá við – en lónstaða virkjana Lands-
virkjunar var töluvert í fréttum á
þeim tíma og skerðingar á orku til
stórra viðskiptavina fyrirtækisins.
Þessu kalli svaraði ON með því að
fresta upptekt á aflvélum sem aftur
skiluðu svipaðri heildarframleiðslu
Hellisheiðarvirkjunar árin 2014 og
2013 í heildina.
Því hefur framleiðsla í Hellis-
heiðarvirkjun verið allmiklu meiri
en hún væri ef rekstur virkjunar-
innar væri samkvæmt því sem best
er með tilliti til álags og fleiri þátta.
Aftur á móti má ætla að tekjutap
ON sé ekki eins mikið og gert var
ráð fyrir árið 2013.
Tekjutap ON vegna sex mega-
vatta minni afkastagetu Hellis-
heiðarvirkjunar hefði verið tæplega
fjórtán milljónir króna á mánuði ef
ekki væri gripið til aðgerða. Það eru
um 160 milljónir á ársgrundvelli en
sú upphæð tvöfaldast á hverju ári
án aðgerða. Þessi kostnaður kemur
til vegna nauðsynlegra kaupa OR á
orku frá Landsvirkjun til að vega
upp framleiðslutapið og uppfylla
samninga um orkuafhendingu.
Hverahlíð
Þegar ljóst var sumarið 2013 að
vinnslusvæðið stæði ekki undir
væntingum og gæti því ekki keyrt
allar sjö aflvélar Hellisheiðarvirkj-
unar fæddist sú hugmynd að tengja
Hellisheiðarvirkjun við háhita-
svæðið í Hverahlíð, þar sem OR
áætlaði að byggja næstu stóru jarð-
hitavirkjun sína. Þetta verkefni er
nú komið af stað.
Páll Erland kynnti fjárfestinga-
áætlun ON á útboðsþingi á dögun-
um, en hún hljóðar upp á þrettán
milljarða króna á næstu fimm
árum. Stærsta einstaka verkefnið
er lagning Hverahlíðarlagnar frá
borholum við Hverahlíð á Hellis-
heiði að Hellisheiðarvirkjun. Mest-
ur þungi framkvæmda er nú í ár;
frágangi lagnarinnar mun ljúka
2016. Um 2,5 milljarðar renna til
þess verkefnis á árinu en fjárfest-
ingin alls er áætluð tæpir fjórir
milljarðar króna.
Jafnvægislist
Markmið ON er að jafnvægi náist í
rafmagnsframleiðslu Hellisheiðar-
virkjunar með fullum afköstum, en
ljóst er að það næst ekki án Hvera-
hlíðarlagnar og gufunnar sem færð
er á milli virkjunarsvæðanna.
Hvert þetta jafnvægi er, er ekki
vitað nákvæmlega en vonir standa
til að gufan frá Hverahlíð dugi til
þess að koma því á.
Í fjárfestingaáætlun ON skýra
umhverfismál að stærstum hluta
fjárfestingar árin 2017 til 2019 –
gangi áætlunin eftir. Verkefnin
snúa að því að draga úr hveralykt
og mengun frá Hellisheiðarvirkjun
og því að skila vinnsluvatni aftur
niður í jarðhitageyminn. Að sögn
Páls Erland standa vonir til að
þurfa ekki að leggja í allan þenn-
an kostnað, heldur þvert á móti.
Áætlunin sé varfærin leið til að
eiga handbæra peninga ef þarf að
fara út í miklar aðgerðir, segir Páll
og staðfestir að engin ný virkjana-
uppbygging sé inni í áætluninni til
2019 heldur snúist hún um að hlúa
að núverandi virkjanasvæðum; á
Hellisheiði, á Nesjavöllum og Anda-
kílsvirkjun.
Fjórir milljarðar
Skiljuvatnslögn frá Hellisheiðar-
virkjun til sjávar, sem yrði 23,5
kílómetra löng, er innan þessara
áforma. Um er að ræða lögn með-
fram Þrengslavegi og áfram með
Þorlákshafnarvegi til sjávar við
Þorlákshöfn, eins og kemur fram
í drögum að aðalskipulagi Ölfuss.
Óvissa um niðurdælingu skilju-
vatnsins skýrir hugmyndir um
lögnina. Hún er hins vegar háð
ýmsum leyfum og verkefnið stutt
á veg komið. Fyrsta kostnaðarmat
gerir ráð fyrir að lögnin kosti fjóra
milljarða króna. Beri aðgerðir sem
nú er unnið að á virkjanasvæðinu
árangur verður ekki í hana ráðist.
Spár um orkutapið hafa allar ræst
Afköst Hellisheiðarvirkjunar minnka nákvæmlega í samræmi við spár vísindamanna Orkuveitu Reykjavíkur árið 2013. Virkjunin skilar nú
269 metavöttum, en gæti framleitt 303 metavött ef orkan væri næg. Gufulögn frá Hverahlíð verður lögð í ár að stærstum hluta.
HELLISHEIÐARVIRKJUN Framleiðslugetan er 303 MW en vinnslusvæðið stendur
ekki undir uppsettu afli verksmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Niður-
dráttur á
svæðinu hefur
þróast
nákvæmlega
eins og búist
var við.
Páll Erland
Eftir að Hellisheiðarvirkjun var keyrð með fullum afköstum fylgdust sérfræð-
ingar Orkuveitunnar náið með viðbrögðum jarðhitasvæðisins. Þá kom í ljós
allnokkur lækkun á þrýstingi [niðurdráttur] í jarðhitageyminum. Ástæðan er
að það svæði sem talið var að gæfi mikla orku, eða Skarðsmýrarfjall, gefur
mjög lítið.
Til greina kom að leita nýrra svæða og rannsaka hvort aðrir hlutar af nú-
verandi vinnslusvæði virkjunarinnar gætu gefið meira. Miðað við fjárhags-
stöðu Orkuveitunnar árið 2013 vildu forsvarsmenn forðast það, enda kostar
ein háhitahola fullkláruð og tengd virkjun á bilinu 400 til 500 milljónir króna.
Vandi Hellisheiðarvirkjunar
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Stjórn Orku náttúrunnar krafðist þess í sumar sem leið að stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur virti trúnað um yfirlit sem var gert um framleiðslutölur Hellis-
heiðarvirkjunar frá maí 2013 til sama mánaðar 2014. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn og í stjórn OR gagnrýndu þessa kröfu ON með þeim
formerkjum að upplýsingarnar ættu að vera uppi á borðum– almenningi til
upplýsingar.
Á fundi stjórnar OR frá því 26. janúar sl. ítrekuðu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins þær óskir sínar að leynd yrði aflétt af framleiðslutölum
virkjana ON.
Borgarráð beindi því jafnframt til stjórnar OR, í samráði við stjórn ON, að
tryggt væri að uppskipting OR leiddi ekki til minna gagnsæis og upplýsinga-
gjafar til almennings.
Rök ON eru hins vegar að um samtímaupplýsingar var að ræða sem sam-
keppnisaðilar gætu nýtt sér, og birting framleiðslutalna hefði ekkert breyst
frá því sem var áður en rekstrarformi OR var breytt.
LEYND YFIR FRAMLEIÐSLUTÖLUM GAGNRÝND
(2.120.968 kr. án vsk)
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
F
-3
A
9
0
1
4
2
F
-3
9
5
4
1
4
2
F
-3
8
1
8
1
4
2
F
-3
6
D
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K