Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 12

Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 12
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 ÍSRAEL Rétt fyrir þingkosningarn- ar gaf Benjamín Netanjahú for- sætisráðherra út yfirlýsingu um að tveggja ríkja lausnin væri ekki lengur raunhæf. Með því að viður- kenna sjálfstæði Palestínu væri einungis verið að gefa herskáum íslamistum land sem notað yrði til árása á Ísrael. „Vinstrimenn hafa grafið haus- inn í sandinn hvað eftir annað og horfa fram hjá þessu, en við erum raunsæ og skiljum þetta,“ sagði hann í viðtali daginn fyrir kosn- ingarnar. Raphael Schutz, nýr sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi, ráð- leggur mönnum þó að bíða aðeins átekta og sjá hver stefna nýrrar ríkisstjórnar verður eftir nokkr- ar vikur. „Ef ég skil það rétt sem hann sagði síðustu daga þá var það að einmitt nú, við núverandi kringumstæður, myndi það leiða til meira ofbeld- is og árása gegn Ísrael ef land- svæði yrði látið öðrum í té,“ segir Schutz. „Þessar kringum stæður gætu sem sagt breyst. En í öðru lagi – þótt ég mæli ekki beinlín- is með því að menn taki ekki orð forsætisráðherra míns alvarlega, þá myndi ég mæla með því að fólk bíði aðeins og leyfi því ryki sem þyrlast hefur upp í kosningabarátt- unni að setjast aðeins, og sjá svo til hvaða afstöðu ný ríkisstjórn tekur gagnvart Palestínumálinu.“ Fyrirfram höfðu skoðanakann- anir ekki bent til þess að Netan- jahú ætti sigur vísan, en þegar talið var upp úr kjörkössunum hafði honum tekist að styrkja stöðu sína töluvert frá síðustu kosningum. Likudflokkur Netanjahús hlaut 30 þingsæti á 120 manna þjóðþingi Ísraels. Með því að fá þrjá aðra hægri flokka til liðs við sig væri ný ríkisstjórn með 54 þingsæti, og þyrfti þá stuðning frá flokkum strangtrúargyðinga til þess að hún yrði starfhæf. Schutz segist telja að þetta verði tiltölulega auðvelt fyrir Net- anjahú. „Hann á ekki að lenda í erfiðleikum með að mynda stjórn með öruggum 67 manna þing- meirihluta,“ segir Schutz sendi- herra. gudsteinn@frettabladid.is NIÐURSTÖÐUR KOSNINGANNA © GRAPHIC NEWSHeimild: Yfirkjörstjórn Ísraels 120 manna þing Knesset Kosningaþátttaka 71,8% Heim- kynni gyðinga 8 Síonista- bandalagið 24 Meretz 4 Likud 30 Yesh Atid 11 Shas 7 UTJ 6 Kulanu 10 Jisrael Beiteinu 6 Strangtrúar- gyðingar 13 þingsæti Hægri flokkar 54 þingsæti Vinstri-miðjuflokkar 39 þingsæti Sameinaði arabalistinn 14 þingsæti Þrif í matvælafyrirtækjum kalla á fagmennsku og öguð vinnubrögð. Sérþekking starfsfólks ISS tryggir að þrif í matvælaiðnaði standist þær ströngu gæðakröfur sem til þeirra eru gerðar. Við hugsum í lausnum. Fáðu upplýsingar um þjónustuna. 580 0600 sala@iss.is „Fagmennska og gæði” Heildarlausnir í fasteignaþjónustu. Enginn viðskiptavinur hefur sömu þarfir. Við sérsníðum lausnir sem henta hverjum og einum. F A S T E I G N A U M S J Ó N | R Æ S T I N G | M A T V Æ L A Þ R I F | S É R V E R K E F N I | V E I T I N G A R | I S S . I S 70 dómar í Hæstarétti – er enn verið að bíða dómafordæma? STAÐA ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA VEGNA GENGISLÁNA Sjö ár eru nú liðin frá efnahagshruninu en við það gjörbreyttist rekstrar- grundvöllur fjölda fyrirtækja þegar lán þeirra tvöfölduðust. Dæmt hefur verið í 70 málum vegna gengislána fyrir Hæstarétti þar sem hundruð milljarða eru undir en fjöldi fyrirtækja bíður enn afgreiðslu sinna mála. Hópur sérfræðinga hefur unnið að því að taka saman helstu stærðir og staðreyndir varðandi stöðu íslenskra fyrirtækja og niðurstöðu dóma vegna gengislána. Niðurstöður þeirrar vinnu verða kynntar á fundinum. Dagskrá opins félagsfundar FA: Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Bera allir sömu byrðar? Umfang gengislánanna og þróun dóma um þau Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness Biðin langa – Reynslusaga fyrirtækis með gengislán Morgunverðarfundur föstudaginn 20. mars kl. 8.30 Skráning á vef FA, atvinnurekendur.isPIP A R\ TB W A Fundurinn verður haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, og hefst kl. 8:30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Léttur morgunverður í boði. Öruggur meirihluti virðist í sjónmáli Benjamín Netanjahú vann óvæntan sigur í þingkosningum á þriðjudag. Rétt fyrir kosningarnar sagðist hann ekki lengur styðja tveggja ríkja lausnina. Nýr sendi- herra Ísraels gagnvart Íslandi segir þó óþarft að taka þá yfirlýsingu of alvarlega. RAPHAEL SCHUTZ BENJAMÍN NET- ANJAHÚ Flokkur Benjamíns Netanja- hús vann óvæntan sigur í þingkosning- unum á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Í nóvember stofnaði Moshe Kahlon nýjan stjórnmálaflokk. Kulanu, eða „Við öll“, heitir sá og náði tíu mönnum á þing í kosningunum í gær, aðeins fimm mánuðum eftir stofnun. Kahlon er fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Netanjahús, fór þar með ráðuneyti velferðarmála og samskipta, en sagði sig úr Likudflokknum vegna ágreinings um efnahagsmál. Nú er hann kominn í þá stöðu að hafa það í höndum sér hvort Netanjahú verður áfram forsætisráðherra. Stuttu fyrir kosningarnar hafði Netanjahú boðið honum ráðherrastól efnahagsmála, þannig að Kahlon verður nú í lykil- stöðu við mótun efnahagsstefnu nýrrar ríkisstjórnar. Hann hefur þar lagt megináherslu á að koma til móts við almenning og hefur fyrir vikið stundum verið kallaður lýðskrumspólitíkus í fjölmiðlum. Moshe Kahlon Lukkulíf á Tenerife 24. mars í 1 eða 2 vikur Verð frá 59.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar Á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð á n fæðis í 1 viku Verð án Vildarpunkta 69.900 kr. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 89.900 / 99.900 kr. VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -2 6 D 0 1 4 2 F -2 5 9 4 1 4 2 F -2 4 5 8 1 4 2 F -2 3 1 C 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.