Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 20

Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 20
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 20 Bjartrar framtíðar, sagði alveg skýrt að þessi gjörningur færi bein- línis í bága við lög um rammaáætl- un og umsögn verkefnisstjórnar um rammaáætlun taki af vafa um það. „Ætla menn þá bara að láta sem ekkert sé þegar þeim er sagt af þar til bærum aðilum að þeir séu bein- línis að brjóta lögin og halda sínu fram?“ kolbeinn@frettabladid.is Ásmundur Friðriksson um Isavia Það er sárt að horfa á fullfríska menn bogna vegna harkalegra aðgerða yfirmanna […] Á sama tíma líðst yfir- mönnum fyrirtækisins að ganga hart fram í starfsmannamálum og brjóta eigin reglur um siðferði og meðferð fjármuna fyrirtækisins og misnota aðstöðu sína meðan vamm- lausum starfsmönnum er sagt upp störfum án þess að hafa nokkuð til saka unnið. Frestur til 18.3 ● Aukinn stuðningur vegna tæknifrjóvgana ● Efling virkniúrræða fyrir atvinnu- leitendur ● Seinkun klukkunnar og bjartari morgnar Frestur til 20.3. ● Landmælingar og grunnkorta- gerð ● Upplýsinga- og sannleiksskylda ráðherra Frestur til 23.3. ● Þingsköp Alþingis Frestur til 24.3. ● Fjármálafyrirtæki ● Kosningar til Alþingis ● Vextir og verðtrygging o.fl. Frestur til 26.3. ● Skattaafsláttur vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu ● Virðisaukaskattur Frestur til 30.03. ● Athugun á hagkvæmni lestar- samgangna ● Plastpokanotkun Frestur til 7.4. ● Fordæming pyndinga leyniþjón- ustu Bandaríkjanna Atvinnuveganefnd Alþingis skilaði á þriðjudaginn úr nefnd umfjöllun um tillögu Ragnheiðar Elínar Árnadótt- ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þess efnis að Hvammsvirkjun yrði færð úr biðflokki í nýtingarflokk. Nefndin leggur til að fallist verði á virkjunina og bætti um betur með því að leggja til að fjórir aðrir virkj- anakostir færu sömu leið og yrðu nýttir. Til marks um hve málið er stórt má nefna að það var eina málið sem rætt var í þingsal fyrstu tvo daga þessarar viku sem ekki laut að Evr- ópusambandinu og margumtöluðu bréfi utanríkisráðherra um stöðu Íslands gagnvart því. Og ekki spör- uðu þingmenn stjórnarandstöðunnar stóru orðin, enda drógu þeir í efa að tillagan væri þingtæk, þar sem hún færi gegn lögum um rammaáætlun. „Samkvæmt tillögunni er lagt til að fjórum kostum verði bætt við þá tillögu sem hæstvirtur umhverfis- ráðherra gerði tillögu um til þings- ins í haust, en ráðherra gerði tillögu í samræmi við lög um rammaáætlun sem kveða á um tiltekið ferli,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. „En nú liggur fyrir að þetta ferli er ekki virt og með til- lögunni um að setja Hagavatn í nýt- ingarflokk er án vafa verið að ganga á svig við lög um rammaáætlun.“ Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, taldi einnig að um lögbrot væri að ræða. „Mönnum er algjörlega sama um þá umgjörð sem við höfum sett okkur um það hvernig við vinnum hlutina, vegna þess að ef menn eru búnir að ákveða að þeir vilji hafa einhverja hluti öðruvísi þá skipta lög engu máli.“ Róbert Marshall, þingmaður ÞINGSJÁ Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is AF ÞIN GPÖ LLU N U M K O LB EIN N Ó T TA R SSO N P R O P P É GJALLAR- HORNIÐ Í neðri hluta Þjórsár HVAMMSVIRKJUN Nefndin vill fimm kosti úr biðflokki í nýtingarflokk Atvinnuveganefnd leggur til að fimm virkjanakostir, sem nú eru í biðflokki rammaáætlunar, verði nýttir. Stjórnar- andstaðan segir lögbrot á ferð þar sem kostirnir hafi ekki fengið lögformlega meðhöndlun. Hiti er í þingmönnum. Við Sprengisand HAGAVATN UPPSETT AFL 20 MW ORKUGETA 120 GWh/ár Faghópar hafa ekki metið virkjunaráformin. Við Sprengisand HOLTAVIRKJUN UPPSETT AFL 57 MW ORKUGETA 450 GWh/ár Verkefnisstjórn telur kostinn ekki fullrannsakaðan. Það vita það kannski ekki allir, en almenningur getur, jafnt á við hagsmunaaðila, sent inn umsagnir um þau þingmál sem nefndir leita eftir umsögnum um. Líkt og farið hefur verið yfir áður hér í Þingsjá er ferli mála þannig að eftir fyrstu umræðu er þeim vísað til nefndar. Nefndin kallar síðan eftir umsögn- um og kallar sérfræðinga á sinn fund eftir þörfum. Á vef Alþingis má finna lista yfir þau mál sem eru í umsagnar- ferli og hvenær frestur rennur út. Þar kemur fram að meginreglan sé sú að aðgangur að erindum til nefnda sé öllum heimill. Með öðrum orðum getur hver sem er komið athugasemdum sínum á framfæri í umsögnum til þingnefnda og reynt þannig að hafa áhrif á lagasetningu. Eins og sjá má hér til hliðar eru 14 mál í umsagnarferli nú um stundir. - kóp Fjórtán mál eru í umsagnarferli hjá þingnefndum Alþingis: Allir geta sent inn umsögn ➜ Mál í umsagnarferli og frestur til skila Vigdís Hauksdóttir um kostnað við fjöl- miðlaráðgjöf ráðuneyta […] stjórnmálaflokk- arnir voru endurnýj- aðir, eins og til dæmis Framsóknarflokkurinn sem endurnýjaði allt sitt þinglið. Þá erum við víst orðin svo reynslulaus að nú þarf að fara að ráða sérstaka aðila inn í ráðuneytin til að hjálpa viðkomandi ráðherrum til að takast á við starfið og það er vel. Ég get tekið undir það með umboðsmanni Alþingis. UPPSETT AFL 93 MW ORKUGETA 720 GWh/ár Verkefnisstjórn telur kostinn ekki fullrannsakaðan. Við Sprengisand SKROKKALDA UPPSETT AFL 45 MW ORKUGETA 345 GWh/ár Faghópar hafa ekki metið virkjunaráformin. Í neðri hluta ÞjórsárURRIÐAFOSSVIRKJUN UPPSETT AFL 140 MW ORKUGETA 1.037 GWh/ár Verkefnisstjórn telur kostinn ekki fullrannsakaðan. Hafi Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra ætlað sér að gefa skýr skilaboð sem ekki mættu misskiljast, með bréfi sínu til forsvarsmanna Evrópusambandsins (ESB) í síðustu viku, hlýtur að vera óhætt að fullyrða að markmið hans hafi ekki náðst að fullu. Í raun má segja að málið hafi orðið enn flóknara og var það þó flókið fyrir. Þar kemur ýmislegt til. Fyrst ber að nefna orðalag bréfsins. Ef ætlunin var að slíta aðildarviðræðum hefði verið skýrara að segja það hreint út; að með bréfinu væri aðildarviðræðum slitið. Orðalagið býður hins vegar upp á mis- munandi túlkanir, sem er bagalegt. Og þær túlkanir hafa ekki látið á sér standa. Látum vera að stjórnar- andstöðu og stjórnarliða greini á um innihaldið, það er bara hluti af pólitíkinni að takast á um slíkt. Þingumræður þessa vikuna hafa hins vegar leitt í ljós að stjórnarliða greinir á sín á milli um hvað bréfið þýði. Þá kemur að því sem hefur litað störf þingsins þessa vikuna, stöðu þings gagnvart framkvæmdarvaldi. Að öllum gífuryrðunum um landráð, vanvirðingu við þingræðið og fleira í þeim dúr slepptum, verður ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að foresti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, sá sig knúinn til að setja á sérstaka umræðu um stöðu þingsins. „Yfirlýsing forseta. Staða Alþingis, yfirlýsing forseta og umræða um hana, skv. 61. gr. þing- skapa,“ er liður sem maður sér ekki oft á dagskrá þingsins. Það þarf enginn að velkjast í vafa um að til slíkrar umræðu er ekki boðað nema tilefni sé til. Það snertir í raun ekki efnisatriði málsins, afstöðu gagnvart aðildarviðræðunum, heldur lýtur það að stjórnskipuninni. Sá þáttur málsins, að minnsta kosti, fellur því trauðla að lýsingu utanríkis- ráðherra á málinu þegar hann sagði: „Hér er nefnilega um tiltölulega einfalt mál að ræða.“ Flókið mál flækt enn frekar með bréfi utanríkisráðherra ➜ Utanríkisráðherra Efnt var til sérstakrar umræðu um stöðu Alþingis í kjölfar bréfs Gunnars Braga Sveinssonar til ESB. Virkjanakostir sem nefndin vill að verði settir í nýtingarflokk … er án vafa verið að ganga á svig við lög um rammaáætlun. Svandís Svavarsdóttir Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -5 8 3 0 1 4 2 F -5 6 F 4 1 4 2 F -5 5 B 8 1 4 2 F -5 4 7 C 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.