Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 32
FÓLK|HEILSA
Á undanförnum áratug eða svo hafa komið fjölmörg matvæli á markað víða
erlendis undir vöruheitinu Bene-
col. Benecol er skrásett vöru-
merki fyrir vörur sem innihalda
ákveðna gerð plöntustanól-
esters, en rannsóknir hafa sýnt
að hann hefur áhrif til lækkunar
kólesteróls
í blóði,“
segir Björn
S. Gunn-
arsson,
vöruþró-
unarstjóri
hjá MS.
Hann segir
mikilvægt
að halda
kólesteról-
gildum
innan eðli-
legra marka því of hátt kól esteról
í blóði sé einn helsti þáttur
kransæðasjúkdóma og æskilegt
að heildarkólesteról í blóði sé
undir 5 mmól/l þar sem allt yfir 6
mmól/l teljist hátt.
HVAÐ ER KÓLESTERÓL?
Kólesteról er ein tegund blóðfitu
og gegnir ýmsum mikilvægum
hlutverkum í líkamanum. Það er
framleitt í lifrinni en berst einnig
með fæðunni í líkamann. „En ef
kólesterólmagn í blóði eykst um-
fram þörf getur það valdið æða-
kölkun og kransæðasjúkdómum.
Algengi of hás kólesteróls eykst
með aldri en engu að síður getur
þetta vandamál herjað á fólk á
öllum aldri og í öllum þyngdar-
flokkum og yfirleitt verður fólk
engra einkenna vart,“ útskýrir
Björn. Hér á landi hafa rétt tæp-
lega 40% karla á aldrinum 40-50
ára og kvenna á aldrinum 50-60
ára kólesterólgildi yfir 6mmól/l
og Björn segir því mikilvægt að
þeir sem komnir séu á fullorðins-
ár láti fylgjast með blóðfitunni
hjá sér.
HEILNÆMUR DRYKKUR SEM
HEFUR ÁHRIF
„Benecol er náttúrulegur
mjólkurdrykkur sem ætlaður er
þeim sem vilja lækka kólesteról í
blóði. Drykkurinn frá MS er sýrð
undanrenna sem inniheldur 5%
plöntustanólester og hentar vel í
baráttunni gegn kólesteróli sem
hluti af fjölbreyttu mataræði,“
segir Björn. Allra nýjustu niður-
stöður hafi sýnt fram á að mun
betri árangur náist sé Benecols
neytt með eða strax eftir máltíð
en ef þess sé neytt á fastandi
maga. „Því er mælt með að neyta
Benecols í kringum einhverjar
af máltíðum dagsins, til dæmis
morgunverð, hádegisverð eða
kvöldverð.“
VÍSINDARANNSÓKNIR STAÐ-
FESTA VIRKNI BENECOLS
Fjölmargar vísindarannsóknir
hafa verið gerðar á áhrifum
plöntustanólesters, hinu virka
efni í Benecol, á kólesteról í
blóði. „Niðurstöður eru einróma
á þá leið að neysla á honum
lækkar blóðkólesteról þar sem
efnið hindrar upptöku á því úr
fæðu í þörmum og kemur lækk-
unin yfirleitt fram nokkrum vik-
um eftir að neysla hefst og er allt
að 15% að meðaltali þótt engar
aðrar ráðstafanir séu gerðar.
Lækkunin er einkum í heildar-
kólesteróli og hinu svokallaða
„vonda kólesteróli“ (LDL), en
engar breytingar verða í „góða
kólesterólinu“ (HDL),“ segir
Björn og áréttar að rannsóknir
hafi einnig sýnt að mikilvægt
sé að neyta vörunnar reglulega
til að árangurinn haldist og sé
neyslu hætt, fari kólesterólgildi
aftur í fyrra horf.
MATARÆÐI OG KÓLESTERÓL
Mataræði er meðal þeirra þátta
sem helst hafa áhrif á magn kól-
esteróls í blóði. Meðal þess sem
ráðlagt er til að lækka kólesteról
er að stilla fituneyslu í hóf, velja
frekar mjúka fitu en harða og
neyta grænmetis, ávaxta og grófs
kornmetis í ríkum mæli. „Bene-
col-mjólkurdrykkur er því góð
viðbót við hollt mataræði til að
halda kólesteróli innan eðlilegra
marka og er drykkurinn seldur í
kippum sem innihalda sex 65 ml
flöskur. Ein flaska á dag dugar til
að ná hámarksvirkni og nú hefur
þriðja bragðtegundin bæst í
vöruflokkinn, en fyrir eru jarðar-
berja- og appelsínubragð. Nýja
tegundin er með bláberjabragði
og þykir sérstaklega góð og frísk-
andi, enda bláber meðal vinsæl-
ustu bragðtegunda í mjólkurvör-
um í dag.“
BENECOL FRÁ MS HELDUR
KÓLESTERÓLINU Í SKEFJUM
MS KYNNIR Benecol-drykkurinn frá MS er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem ætlaður er þeim sem vilja lækka kólesteról í blóði.
Drykkurinn er sýrð undanrenna og hentar vel í baráttunni gegn kólesteróli sem hluti af fjölbreyttu mataræði.
BJÖRN S.
GUNNARSSON
vöruþróunarstjóri MS.
CHANEL
ÁRIÐ
2014
DIOR
ÁRIÐ
2008
Gisele er tekjuhæsta fyrirsæta heims. Hún var uppgötvuð aðeins 14 ára gömul af Elite-fyrir-sætuskrifstofunni í São Paulo í Brasilíu. Árið
1996, þá sextán ára, tók hún í fyrsta sinn þátt sem
fyrirsæta á tískuviku í New York. Hún vakti fljótlega
athygli tískuheimsins, varð vinsæl meðal hönnuða
og var forsíðustúlka ýmissa frægra tímarita. Tíma-
mótasamningur hennar við undirfatarisann Vict-
oria’s Secret árið 2000 vakti heimsathygli.
Samband hennar og Leonardos DiCaprio árið 2004
jók enn á frægð hennar en í dag er hún gift íþrótta-
manninum Tom Brady og eiga þau tvö börn saman.
Gisele kom síðast fram fyrir Chanel á tískuvikunni
í París í september og fyrir Colcci í nóvember. Næsta
verkefni er tískusýning Colcci á tískuvikunni í São
Paulo í apríl. Á vefsíðu breska Vogue er því haldið
fram að sumir vilji meina að það verði hennar síð-
asta sýning. Í bili að minnsta kosti.
GISELE AF PÖLLUNUM?
TÍSKA Sá orðrómur fer nú um tískuheiminn að ofurfyrirsætan Gisele Bündchen ætli að
draga sig í hlé frá tískupöllunum þar sem hún hefur verið áberandi í hátt í tuttugu ár.
COLCCI
ÁRIÐ
2014
Á PÖLLUNUM FYRIR LIVERPOOL ÁRIÐ 2006OFURPARIÐ GISELE OG LEONARDO VICTORIA’S SECRET ÁRIÐ 2000
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
F
-7
0
E
0
1
4
2
F
-6
F
A
4
1
4
2
F
-6
E
6
8
1
4
2
F
-6
D
2
C
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K