Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 36

Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 36
FÓLK|TÍSKA Á HönnunarMarsinum sýndi ég STAND UP/ STAND OUT, verkefni sem ég gerði fyrir feld- og fatahönnunarkeppnina Remix í Mílanó. Á Marsinum sýndi ég verkefnið í formi innsetningar ásamt ljósmyndum af línunni eftir Önnu Maggý,“ segir Elísabet Karls- dóttir fatahönnuður. „Remix er feld- og fata hönn- unar keppni haldin af IFF (Inter- national Fur Federation) í sam- starfi við Vogue Talents hjá ítalska Vogue. Keppnin er ætluð fata- hönnunarnemum og nýútskrif- uðum fatahönnuðum og er víða keyrð í samstarfi við hönnunar- skóla. Fyrst og fremst er þetta frá- bært tækifæri til þess að prófa að vinna með feld. Þar sem hráefnið er bæði dýrt og vandmeðfarið er mikilvægt að fá hjálp og fróðleik í ferlinu,“ útskýrir Elísabet. „Fyrir mig var þetta ákveðið tækifæri til þess að koma nýju verkefni frá mér og fá svo flotta hjálp við það að koma sér á fram- færi. Ég komst í tólf manna úrslit og var í framhaldinu boðið að koma til Mílanó til þess að taka þátt í lokakeppninni sem var virkilega spennandi. Frábært að fá að taka þátt í svona flottri og fagmannlegri sýningu og kynnast þessum feldbransa aðeins betur.“ TUTTUGASTA ÖLDIN INNBLÁSTUR Elísabet segir hönnun sína yfir- leitt afslappaða. Hún leitast við að hanna þægilegan og klæðilegan fatnað úr vönduðum efnum og í nýju línunni notar hún náttúruleg hráefni eins og selskinn, hrein- dýraleður og ull. Innblásturinn sótti hún til sterkra kvenímynda og til þeirra breytinga sem urðu á kvenfatnaði í byrjun 20. aldar. „Það eru í raun þessi sportlegu, afslöppuðu form tíðarandans sem ég hreifst af og heimfærði yfir í minn íslenska hversdag. Ég lagði áherslu á að taka feldinn niður af fyrir fram ákveðnum stalli og setja hann í nýtt samhengi með því að sækja í afslappaðri element úr götutísku og sportfatnaði,“ segir Elísabet. FAGNAR UMRÆÐU UM LOÐFELDI „Ég er almennt hrifin af því að nota vönduð náttúruleg efni og ÍSLENSKUR SELUR OG ULL Í MÍLANÓ ÍSLENSK HÖNNUN Elísabet Karlsdóttir hannar úr náttúrulegu hráefni eins og íslensku selskinni, hreindýraleðri og ull. Hún sýndi nýjustu línu sína í Remix- hönnunarkeppninni í Mílanó á dögunum og á nýliðnum HönnunarMars. HÖNNUÐUR Elísabet Karlsdóttir út- skrifaðist frá LHÍ 2013. Hún sýndi nýjustu línu sína í Remix-hönn- unarkeppninni í Mílanó og á nýliðnum Hönnunar- Mars. MYND/GVA KLÆÐILEGT Fyrri hluti tuttugustu aldar var innblásturinn að línunni. ÍSLENSKUR SELUR Elísabet hannar úr íslensku selskinni og hreindýraleðri. MYND/ANNA MAGGÝ að nota staðbundin hráefni og að berjast gegn sóun. Í línunni sem ég gerði fyrir Remix notaði ég bara náttúruleg gæðahráefni, feld eins og íslenskan sel, kanadískan rauðref og bísam auk hreindýra- leðurs, alpakaullar, ullar og silkis. Öll skinnin sem ég notaði voru feldir og leður af villtum dýrum sem eru þá veidd af manninum til matar eða til þess að halda vissum stofnum í skefjum. Það er að mínu mati sjálfsagt mál að nýta skinnin, annað væri bara sóun á góðu nátt- úrulegu hráefni,“ útskýrir Elísabet og segist fagna allri umræðu um notkun loðfelda í tískugeiranum. „Opin umræða kemur alltaf í veg fyrir misskilning og vekur fólk til umhugsunar um margar hliðar málsins. Mér finnst til dæmis mjög mikilvægt að fólk almennt geri sér grein fyrir hvaðan hlutirnir koma og vildi óska þess að það væri almennt auðveldara að rekja uppruna þess sem við kaupum dagsdaglega. Það á svo að vera bæði hlutverk hönnuðarins og neytandans að kynna sér málin og taka ábyrgð bæði þegar kemur af efnum, framleiðslu, sölu og kynn- ingu á tískufatnaði almennt.“ SPENNANDI SUMAR Í VÆNDUM Elísabet er farin að hlakka til sum- arsins en hún er með mörg járn í eldinum. „Auk þess að vera með spenn- andi verkefni á prjónunum í vinnunni minni hjá Eggert feld- skera, en við erum að vinna að nýrri línu, þá er ég að fara að sýna STAND UP/ STAND OUT næst á heimaslóðum austur á Héraði um páskana. Svo er ég einn af skipuleggj- endum listahátíðarinnar LungA sem fer fram á Seyðisfirði í júlí og þar er allur undirbúningur að fara á fullt þessa dagana en hátíðin fagnar 15 ára afmæli í sumar. Það er mikil spenna fyrir sumrinu.“ Skipholti 29b • S. 551 0770Fylgist með okkur á 10% afslát tur af ný jum v örum 50-70 % afslát tur af vö ldum vörum Afmælisdagar! Ný sending frá: Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin BelladonnaStærðir 38-58 Ný sending af kjólum og tunikum frá SUNNUDAG KL. 19:10 365.is Sími 1817 Skelltu þér í Talent-höllina á sunnudagskvöld og njóttu veislunnar í botn, miðasalan er á midi.is BEIN ÚTSENDING MIÐASALAN ER HAFIN! 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -7 F B 0 1 4 2 F -7 E 7 4 1 4 2 F -7 D 3 8 1 4 2 F -7 B F C 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.