Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 38
FÓLK|TÍSKA
Síðasta helgi var annasöm hjá Birtu Rán Björgvins-dóttur, ljósmyndara og
verslunarstjóra í Mono, en þá var
hún á fullu við að mynda tísku-
sýningar á Reykjavik Fashion
Festival. Hægt er að fylgjast með
ljósmyndun Birtu Ránar á síðunni
hennar birtaran.com.
Ertu tískumeðvituð varð-
andi eigin klæðaburð? Ekkert
alltof, ég viðurkenni það alveg
að þegar veðrið er svona ógeðs-
legt og grátt er mér meira sama
um hversu mikið „í tísku“ ég er,
en fyrir viðburði reyni ég að hafa
mig betur til.
Hvernig klæðir þú þig hvers-
dags? Ég reyni að klæða mig bara
þannig að mér líði vel, er rosalega
mikið í svörtu og gráu. Svo gjör-
samlega elska ég uppháar buxur!
Hvernig klæðir þú þig spari?
Ég er rosalega mikil kjólastelpa,
svo þegar ég fer eitthvað spari er
það yfirleitt í kjól eða pilsi og bol
eða skyrtu.
Hvernig lýsir þú stílnum þín-
um? Svart. Mikið mikið svart. Ég
fíla mig best sem einhvers konar
töffara að mynda á sveittum rokk-
tónleikum. Uppháar buxur og
samfella eða munstraðir svart-
hvítir kjólar eru alveg ég. Ég er
með ágætlega grannt mitti og
stóran rass svo ég elska að klæða
mig á þann hátt sem lætur mér
líða kvenlega.
Hvar kaupir þú fötin þín? Ég
versla mikið í útlöndum en hérna
heima kaupi ég mikið second
hand. Ég á líka mikið af fötum úr
Maníu þar sem ég vann þar.
Eyðir þú miklu í föt? Ég myndi
ekki segja það, nei.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Líklega brúni rúskinnsjakkinn
sem mamma átti, þessi sem ég er
mjög oft í.
Uppáhaldshönnuður? Ég hef
alltaf fílað hversu ýktur Alexand-
er McQueen var sem hönnuður.
Bestu kaupin? Í augnablikinu
eru það skór sem ég keypti í H&M
í október í fyrra og hef notað á
hverjum degi síðan.
Verstu kaupin? Verstu kaupin
hljóta að þurfa að vera einhver
af þessum skópörum sem ég hef
keypt of stór/lítil í gegnum netið.
Ég er hætt að reyna!
Hverju verður bætt við
fataskápinn fyrir vorið? Allt of
mörgum kjólum – pottþétt.
Hver er helsti veikleiki þinn
þegar kemur að tísku og útliti?
Ég er rosalega hrifin af þykkum
peysum og rúllukraga í augnablik-
inu en það gæti svo kannski verið
árstíðabundið. Og skór. Finnst ég
aldrei eiga nóg af skóm.
Hvers konar fylgihluti not-
arðu? Ég elska alls kyns háls-
men og hringa. Ég er samt algjör
sauður í að vera með hringa þar
sem ég legg þá frá mér og þeir
hverfa.
Áttu þér tískufyrirmynd? Nei,
ekki mér vitandi.
Kjóll, pils eða buxur? Undan-
farið hafa buxur verið að koma
mjög sterkar inn. Kjólarnir taka
aftur við með hækkandi sól.
Stutt eða sítt? Hár – sítt. Kjólar
og pils – smekklega stutt.
Háir hælar eða flatbotna?
Hælar eða þykkir botnar.
TÖFF KJÓLASTELPA
SVARTUR STÍLL Birta Rán Björgvinsdóttir hefur aðallega pælt í tísku út frá
ljósmyndun frekar en eigin fataskáp. Þegar hún kemst til útlanda að versla
jaðrar við að hún tapi sér en hún gerði sín bestu kaup í H&M í haust.
Lagt hefur verið fram frumvarp
til laga í Frakklandi þar sem
lagt er til að bannað verði að
nota óeðlilega grannar stúlkur á
tískusýningum, auglýsingum eða
öðrum opinberum vettvangi. Það
er heilbrigðisráðherra landsins
sem leggur frumvarpið fram. Í
byrjun árs 2013 voru svipuð lög
sett á Ítalíu, Spáni og í Ísrael.
„Tískuhönnuðir eiga að senda
frá sér góð skilaboð, til dæmis
um að fólk þurfi að borða vel og
gæta að heilsu sinni, sérstaklega
er það mikilvægt fyrir ungar
stúlkur,“ segir Marisol Touraine,
heilbrigðisráðherra Frakklands.
Frumvarpið var tekið til umræðu
á þriðjudaginn. Um 30-40 þúsund
manns í Frakklandi, aðallega
ungt fólk, þjáist af lystarstoli eða
átröskun.
Fyrirsætur skulu sýna læknis-
vottorð þegar þær ráða sig til
vinnu sem sýnir að svokallaður
líkamsstuðull BMI sé eðlilegur,
til dæmis þýðir 18 BMI um 55 kg
sem ætti að vera eðlilegt fyrir
stúlku sem er 1,75 m á hæð. Ef
fyrirsætur reynast vera of léttar
á sýningarpöllum eða í auglýsing-
um er hægt að fara fram á að at-
vinnurekandinn greiði sekt upp á
allt að ellefu milljónum króna eða
hljóti sex mánaða fangelsisvist.
VILJA BANNA OF LÉTTAR FYRIRSÆTUR
Þyngd fyrirsæta hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Nýlega lést 28 ára
fyrir sæta í Frakklandi vegna lystarstols. Gagnrýnt hefur verið að mjög grannar stúlkur
séu notaðar á sýningarpöllum og í auglýsingum og nú vilja Frakkar banna það.
ÁTRÖSKUN Mjög alvarlegt er þegar
tískuhönnuðir senda frá sér röng skila-
boð, til dæmis með því að ráða óeðlilega
grannar fyrirsætur.
„Femarelle er
algjört undraefni
fyrir mig“
-Soffía Káradóttir
Náttúruleg lausn við áhrifum tíðahvarfa
LIFÐU
í NÚLLINU!
Til hvers að flækja hlutina?
365.is
Sími 1817
Þú færð GSM áskrift, internet og heimasíma fyrir
0 krónur með völdum sjónvarpspökkum 365.
**Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma.*60 mín. og 60 SMS fylgja hverri áskrift.
4 GSM áskriftir
60 mín. og 60 SMS*
Internet
20 GB
Heimasími
100 mín.**
SVART Birta Rán segist hrifin af svarta litnum. MYND/VILHELM
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-8
4
A
0
1
4
2
F
-8
3
6
4
1
4
2
F
-8
2
2
8
1
4
2
F
-8
0
E
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K