Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 48

Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 48
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT Eyrarrósin verður afhent í tíunda skipti þann 4.apríl næstkomandi á Ísafirði. Þau menningarverkefni sem berjast um verðlaunin í ár eru Listasafn Árnesinga, Frystiklefinn Rifi og Sköpunarmiðstöðin Stöðvar- firði. Það verkefni sem ber sigur úr býtum mun hljóta 1.650.000 króna í verðlaun. Undanfarin tíu ár hafa verkefni á borð við Aldrei fór ég suður, Bræðsl- una og Safnasafnið á Svalbarðs- strönd hlotið Eyrarrósina og þykir rósin stýra góðri lukku. Forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, mun veita verðlaunin við hátíðlega athöfn, en hún er jafnframt verndari samtakanna. 1. Listasafn Árnesinga „Ég samgleðst fyrir hönd allra safna þegar ég tek á móti tilnefningunni,“ segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri Listasafns Árnesinga. Að jafnaði eru settar upp fjórar til sex sýningar á ári á listasafn- inu. Útgangspunktur sýningar- haldsins er að efla áhuga og skiln- ing á sjónlistum og sinna fræðslu. „Að safninu standa öll sveitarfélög Árnessýslu, svo hér er unnið metn- aðarfullt starf,“ segir Inga og bætir við: „Það er auðvitað alltaf gaman að fá jákvæð viðbrögð við því sem maður er að gera.“ 2. Sköpunarmiðstöðin Stöðvarfirði „Tilnefningin hefur ofboðslega hvetjandi áhrif. Hér höfum við unnið allt starf í sjálfboðavinnu svo þetta er reglulega gott klapp á bakið,“ útskýrir Rósa Valtingojer, stjórnandi miðstöðvarinnar. Sköp- unarmiðstöðin hefur sjálfbærni og nýtingu samlegðar áhrifa skapandi einstaklinga og verkstæða að leið- arljósi í sínu starfi. „Samfélagið allt hefur hjálpast að við uppbygginguna og starfsemina sem hér fer fram,“ segir Rósa alsæl með tilnefninguna. 3. Frystiklefinn Rifi „Fólk hefur gríðarlegan áhuga á að koma til okkar hingað á Snæfellsnes. Mikil gróska er í menningarlífinu hér, og yfir fimmtíu sýningar í gangi síðastliðið ár,“ segir Kári Viðarsson, maðurinn á bak við Frystiklefann. Frystiklefinn gegnir hlutverki menn- ingarmiðstöðvar og er lista manna- setur þar sem uppákomur af ýmsum toga skjóta upp kollinum. „Ég er hrærður og þakklátur, tilnefningin hefur mikla þýðingu fyrir okkur hér,“ bætir Kári við. gudrun@frettabladid.is Slegist um Eyrarrósina Tilnefningar til Eyrarrósarinnar hafa litið dagsins ljós. Listasafn Árnesinga, Sköpunar- miðstöð Stöðvarfj arðar og Frystiklefi nn Rifi keppast um að hreppa hnossið í ár. Okkar ástkæra ANNA BJÖRG SVEINSDÓTTIR Valdastöðum, Kjós, verður jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós laugardaginn 21. mars kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Ólafur Helgi Ólafsson Þórdís Ólafsdóttir Ólafur Geir Ólafsson Sigrún Ólafsdóttir Matti Kallio Eva Þórhildur Kallio Sveinn Jóhannsson Geirlaug Sveinsdóttir Jóhann Sveinsson Hafdís Guðmundsdóttir Bjarni Ágúst Sveinsson Ólafur Þór Ólafsson Þórdís Ólafsdóttir Yndisleg eiginkona mín, mamma og amma, HERBORG STEFÁNSDÓTTIR Skólagerði 53, 200 Kópavogi, lést fimmtudaginn 12. mars á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Guðmann Valberg Berglind Valberg Daníel Orri Óttarsson Okkar kæra STELLA EYJÓLFSDÓTTIR lést þann 13. mars síðastliðinn á hjúkrunar- heimilinu Mörk. Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 15.00. Gyða Eyjólfsdóttir Ingvar Eyjólfsson Ragna Eyjólfsdóttir Hilmar Albertsson Sverrir Eyjólfsson Eyrún Guðnadóttir og aðrir ástvinir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KONRÁÐ GUÐMUNDSSON sem lést 12. mars, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju 24. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund eða Alzheimerfélagið (FAAS). Þór Konráðsson Bryndís Konráðsdóttir Konráð Konráðsson og fjölskyldur. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS INGIBJÖRG KONRÁÐSDÓTTIR Dalbraut 21, sem lést þann 5. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þann 24. mars kl. 13. Svava Jónína Níelsdóttir Árni Auðunn Árnason Jenný Sigurlína Níelsdóttir Guðni Páll Birgisson Hjördís Auður Árnadóttir Þorsteinn Viðarsson Hjalti Freyr Árnason Níels Árni Árnason Harpa Lind Örlygsdóttir Birgitta Svava Pálsdóttir og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir, ÞÓREY EGILSDÓTTIR Brávöllum, Hörgársveit, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 14. mars. Jarðsett verður í Akureyrarkirkjugarði mánudaginn 23. mars. Farið verður frá Höfðakapellu kl. 14.00. Minningarathöfn verður eftir jarðsetningu í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð. Hilmar Lúthersson börn og tengdabarn. Elsku maðurinn minn og Laugi okkar, GUÐLAUGUR HEIÐAR JÖRUNDSSON Bollagörðum 57, Seltjarnarnesi, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni laugardaginn 14. mars. Hann verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 13. Guðrún V. Haraldsdóttir Sif, Auður Edda og fjölskyldur. Elskuleg móðir mín, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR (RÚNA) Kirkjubraut 17, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 13. mars sl. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 14.00. Helga Bjarnadóttir Bjarni Ingi Björnsson Ingibjörg Kristín Barðadóttir Guðrún Hallfríður Björnsdóttir Bergur Jónsson Elínborg Björnsdóttir Sturla Magnússon og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFLIÐI JÓNSSON málarameistari, Grundargarði 4, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík, laugardaginn 14. mars. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 21. mars kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGGI GÍSLASON rafvirkjameistari og fyrrverandi rafverktaki, Sílatjörn 6, áður Miðtúni 4, Selfossi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu sunnudaginn 8. mars. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Lundar eru færðar innilegar þakkir fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Jóhanna María Þorvaldsdóttir Ásta Kristín Siggadóttir Hannes Siggason Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir María Siggadóttir Þorvaldur Siggason Guðrún Kristín Ívarsdóttir Sæunn Siggadóttir Gísli Þór Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn. 21 3 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 F -6 2 1 0 1 4 2 F -6 0 D 4 1 4 2 F -5 F 9 8 1 4 2 F -5 E 5 C 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.