Fréttablaðið - 01.04.2015, Side 8

Fréttablaðið - 01.04.2015, Side 8
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . EN N EM M / S IA • N M 68 13 8 Frá kr.113.900 Frábært verð Frá kr. 156.900 m/morgunmat Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 185.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Frábært verð Frá kr. 119.900 m/hálfu fæði Netverð á mann frá kr. 119.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Frábært verð Frá kr. 156.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 208.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Frábært verð Frá kr. 113.900 m/hálfu fæði Netverð á mann frá kr. 113.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 125.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 10. maí í 13 nætur Stærsti sólstrandarstaður Marokkó Agadir Upplifðu Agadir er einn af þessum einstöku áfangastöðum sem maður verður að upplifa. Agadir er fyrst og fremst áfangastaður sóldýrkenda og aðalaðdráttaraflið er auð- vitað hin breiða og framúrskarandi hreina gullna strönd. Hingað kemur fólk til að njóta sólarinnar og skyggnast inn í einstaka menningu þessarar yndislegu og stoltu þjóðar. Ekki þarf að fara langt til þess að upplifa menn- ingu heimamanna, sem gjarnan er gjörólík því sem við þekkjum. Agadir er staður andstæðna þar sem víst er að ferðamaðurinn mun upplifa eitthvað nýtt og áður óþekkt. Royal Atlas Iberostar Founty Bay SÉRTILBOÐ Kenzi Europa SÉRTILBOÐ Best Western Odyssee SJÁVARÚTVEGUR Margt í nýjum frumvörpum Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráð- herra um veiðigjöld kemur á óvart og sumt stenst illa skoðun, segir Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi. Veiðigjald á makríl hækkar um nærri 200% sem kemur sér illa fyrir fyrirtæki sem hafa stundað þær veiðar, og sérstaklega kunni þetta að hitta minni fyrirtæki illa fyrir. Jákvætt er þó að kostnaður er tekinn til greina en ekki aðeins aflaverðmæti við að finna afkomu- stuðla við útreikning á almenna veiðigjaldinu. Kolbeinn segir að í sínum huga sé tímabundin sex ára úthlutun og viðbótargjald á hvert makrílkíló, 10 krónur, kannski stærsta frétt- in. Einfaldlega vegna þess að um svo stórt frávik sé að ræða í fyrir- sjáan leika í rekstrarumhverfi sjávar útvegsins, sem löngum hefur verið leiðarljósið í umræðunni og hvetji til ábyrgrar nýtingar, fjár- festinga og verðmætasköpunar. „Nú er komið nýtt sex ára tíma- bil sem er mjög á skjön við þessa hugsun,“ segir Kolbeinn. Með þessari hugmynd sé ljóst að veiðigjald á makrílkílóið slái yfir 18 krónur, en á markaði fást 50 til 70 krónur fyrir kíló af makríl, svo það hlutfall sé æði hátt. Eins sé talað um að 5% af makrílkvótan- um gangi til þeirra sem telja sig frumkvöðla í manneldisvinnslu. Kolbeinn segir ekki gott að átta sig á um hverja sé talað þar sem þetta sé frávik frá grundvallarreglunni um veiðireynslu. Sigurður Ingi segist í fjölmiðlum vera að bregðast við áliti umboðs- manns Alþingis um að hlutdeildar- setja beri makrílinn. Frumvarpið gengur hins vegar þvert á þær úthlutunarreglur sem hafa verið í gildi hingað til hvað varðar veiði- reynsluna, segir Kolbeinn. Hvað varðar almenna veiðigjald- ið telur Kolbeinn eitt og annað jákvætt, t.d. að miðað er við land- aðan afla og gjaldið því innheimt jafn óðum en ekki fyrirfram. „Gallinn er hins vegar sá að tölur Hagstofunnar eru enn þá not- aðar til útreiknings, en þau gögn eru ekki ætluð til skattlagningar enda eru þau ónákvæm í besta falli,“ segir Kolbeinn og telur vafa- samt að gjaldið hækki á milli ára þegar framlegð er á niðurleið. svavar@frettabladid.is Undrast 200% hærra gjald á makrílkílóið Framkvæmdastjóri SFS telur vel í lagt að hækka veiðigjald á makríl um 200%. Sex ára úthlutun og viðbótargjald á makríl sé stórt frávik frá fyrri hugsun um rekstrar umhverfi sjávarútvegsins. Enn hitti gjaldtaka minni fyrirtæki illa fyrir. MILLJARÐAR Í FROSTI Sérstök gjaldtaka af makríl vekur undrun. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR SJÁVARÚTVEGUR Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar, vonar að veiðigjaldafrumvörpin verði með fyrstu málum sem koma á dagskrá þingsins eftir páska – málið sé einfaldlega það stórt að engan tíma megi missa. Ljóst sé að þegar umsagnarferlinu lýkur komi það fyrst til kasta nefndarinnar sem gæti þá orðið undir lok apríl. „Ég hefði kosið að hafa rýmri tíma fyrir mál sem eru í augljós- um ágreiningi, en það er ekkert annað í boði,“ segir Jón. Inntur eftir fréttaflutningi um málið, segir Jón það ofmat að túlka orð hans svo að honum finnist veiði- gjöldin allt of há. „Kannski hafa svör mín verið loðin, en enginn áfellisdómur á hugmyndunum sem í frumvörpunum birtast felst í því. Málið er einfaldlega þannig vaxið að við eigum eftir að fara í alla vinnuna í þessu. Þetta hefur fengið takmarkaða kynningu á vettvangi stjórnarflokkana, og það á við um mig sem aðra, svo við höfum fengið takmarkaðan tíma til að rýna í þetta og gera okkur grein fyrir hvernig þetta liggur,“ segir Jón og bætir við að í viðtölum sínum við sjómenn úti um land hafi hann heyrt þau sjónarmið að hækkað veiðigjald kæmi þeim illa. Eins séu vondar fréttir af mörkuðum, ekki síst í Rússlandi, okkar helsta kaupanda makrílafurða. „Það eru svo mörg sjónarmið í þessu að það er vont að hafa svo lítinn tíma sem raun ber vitni.“ - shá Formaður atvinnuveganefndar vill veiðigjaldafrumvörp á dagskrá sem fyrst: Þurfum tíma í jafn flókin mál JÓN GUNNARSSON BANDARÍKIN Mike Pence, ríkis- stjóri í Indiana, lofar að breyting- ar verði gerðar á nýsamþykktum lögum, sem sögð eru heimila fyrir- tækjum að mismuna fólki á trúar- legum forsendum. Lög um „endur- reisn trúfrelsis“ eiga að taka gildi 1. júlí. Samtök samkynhneigðra og transfólks hafa harðlega gagnrýnt þessi lög og segja þau heimila til dæmis veitingahúsum eða blóma- búðum að neita að afgreiða sam- kynhneigða ef það samrýmist ekki trú þeirra. Pence ríkisstjóri segir þessi lög mikilvæg, en vill ekki skilja þau þannig að þau veiti heimild til mis- mununar. Hann hefur því boðað frumvarp sem á bæði að lagfæra lögin og gera þau skýrari. Samkvæmt lögunum verður fyrir tækjum og samtökum heimilt að sýna trú sína í verki án afskipta hins opinbera. Sambærileg lög eru í gildi í um tuttugu ríkjum Banda- ríkjanna, en hvergi er gengið jafn langt og í Indiana. - gb Umdeild lagasetning veitir fyrirtækjum heimild til að mismuna fólki: Ríkisstjórinn lofar breytingum LÖGUNUM MÓTMÆLT Samtök sam- kynhneigðra segja lögin ýta undir mis- munun. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Nú er komið nýtt sex ára tímabil sem er mjög á skjön við þessa hugsun. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri SFS. Sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp um veiðigjald og sérfrumvarp um veiðigjald á makríl á mánudagskvöld, og voru þau afgreidd úr ríkis- stjórn. Veiðigjaldið hækkar um ríflega milljarð á ári frá því sem nú er, og nær til næstu þriggja ára. Í makrílfrumvarpinu er lagt til viðbótarveiðigjald að fjárhæð 10 krónur á kíló. Gjaldið á að innheimtast í sex ár og er kallað „inntökugjald“ fyrir að kvótasetja tegundina. Samanlagt skila veiðigjöld því ríkissjóði 12,4 milljörðum á ári verði þau að lögum. Tíu krónu „inntökugjald“ á makrílinn 3 1 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 9 -C 1 C 0 1 4 5 9 -C 0 8 4 1 4 5 9 -B F 4 8 1 4 5 9 -B E 0 C 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 8 0 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.