Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2015 | SKOÐUN | 25
„Ég er anti-femínisti,
má ég vera það?“ hróp-
ar ung stúlka í mynd-
bandi á ótilgreindri
fréttasíðu sem ég sá
nýlega. Mér fannst
skelfilegt að heyra
þetta, svona rétt eins
og hún hefði sagt:
„Ég er algert fífl, má
ég vera það?“ Hugs-
aði líka með mér að
kannski gæti einhver
skynsamur sest niður
með þessari stúlku og
sýnt henni ljósið. Spurt hana
hvort henni fyndist sann-
gjarnt að fá lægri laun fyrir
sömu vinnu og strákurinn
við hliðina? Eða hvað henni
fyndist um þá staðreynd að
fleiri konur deyja eða örkum-
last árlega vegna kynbundins
ofbeldis en vegna algengra
sjúkdóma og slysa – saman-
lagt! Og að konur vinni tölu-
vert lengri vinnudag vegna
þess að vinna innan heimilis
leggst af meiri þunga á þær,
og svona mætti áfram telja.
Kannski væri hægt að benda
þessum unga anti-femínista á
þessar staðreyndir (og fleiri)
og telja honum trú um að
barátta femínista er fyrst og
fremst mannréttindabarátta.
Á Íslandi hafa konur náð
mun lengra í sinni jafnréttis-
baráttu en víða annars stað-
ar í veröldinni. Hins vegar er
óréttlæti alltaf vont og það á
alltaf að berjast gegn því, þótt
það sé mun verra víða annars
staðar.
VR hefur reiknað út að
konur í félaginu vinni einn
mánuð frítt þegar laun þeirra
eru borin saman við
karla, og að það muni
taka konur í VR tutt-
ugu ár að ná sömu
launum fyrir sömu
vinnu. En þetta er sá
munur sem er á laun-
um kynjanna þegar
búið er að taka tillit
til starfs, vinnutíma,
menntunar, starfsald-
urs og allra annarra
þátta sem hafa áhrif
á launin. Tuttugu ár
takk fyrir.
Glerþakið er erfitt að skil-
greina en flestir þekkja hug-
takið. Konur verða sjaldnar
yfirmenn og færri konur sitja
í stjórnum fyrirtækja. Hlutfall
kvenna í stjórnum hefur þó
farið vaxandi og er núna orðið
um 25% en þessari aukningu
má þakka lögum um kynja-
hlutfall í stjórnum fyrirtækja.
Kynbundin verkaskipting
Þóra Kristín Þórsdóttir, dokt-
orsnemi í félagsfræði, kynnti
nýlega niðurstöður rannsókn-
ar sinnar um samspil heim-
ilis og vinnu meðal íslenskra
hjóna. Samkvæmt rannsóknum
hennar er heildarvinnuálag
íslenskra foreldra í fullu starfi
mest af Norðurlandaþjóðunum
en sé horft til greiddrar vinnu,
heimilisstarfa og umönnunar
heimilismeðlima s.s. barna
en íslenskar mæður vinna um
86 tíma á viku meðan íslensk-
ir feður vinna um 77 tíma á
viku. Hér virðist kynbund-
in verkaskipting setja tölu-
vert meira álag á konurnar en
karlana. Það kom mér á óvart
að sjá að þættir eins og elda-
mennska og þvottastúss leggst
af mun meiri þunga á konur,
þrátt fyrir að báðir foreldrar
vinni fullan vinnudag. Karlar
sinna oftar ýmiss konar við-
haldi sem er alla jafna minni
vinna og síður tímafrek en
þvottur, eldamennska og frá-
gangur. Einu þættirnir sem
virðast deilast nokkuð jafnt á
kynin í barnafjölskyldum er
aðstoð við heimanám barna og
tómstundaskutl. Það er margt
í umhverfinu sem þarf að laga
til að ná jafnrétti kynjanna
og það eru til allskyns hjálp-
leg verkfæri á þeirri vegferð,
svo sem jafnlaunavottun, laga-
setningar, fræðsla og fleira.
En fólk verður einnig að átta
sig á og viðurkenna þegar
ójafnrétti er til staðar og berj-
ast gegn því í smáu og stóru.
Það er ágætt að byrja inn á
heimilunum og skoða hvort
hjóna eyðir meiri tíma í heim-
ilisstörfin. Þannig verðum við
góðar fyrirmyndir fyrir börn-
in okkar. Auk þess erum við
í betri stöðu til að sinna jafn-
rétti kynjanna í atvinnulífinu
og víðar ef við sinnum því af
natni innan veggja heimilisins.
Grein þessi er skrifuð í tilefni
af kvennafundi í borgarstjórn
Reykjavíkur 31. mars 2015 til
að fagna 100 ára kosningar-
afmæli kvenna.
Jafnréttið byrjar heima
JAFNRÉTTI
Dóra Magnús-
dóttir
varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar í
borgarstjórn.
Biblían er ekki einungis trúar-
rit, Biblían er líka grundvallar-
rit um gildismat og siðfræði.
Textar Biblíunnar, ekki síst frá-
sögur Nýja testamentisins, hafa
mótað gildismat okkar í þúsund
ár. Dæmisögur Jesú eru í senn
einföld frásögn og djúp viska
um kærleika og virðingu. Sagan
af miskunnsama Samverjanum
grípur hvern sem er og sann-
færir okkur um hvað felst í því
að eiga náunga og það sé gott
að hjálpa náunganum jafnvel þó
við þekkjum hann ekki og hann
tilheyri ekki sama hópi og við.
Umburðarlyndi og náungakær-
leikur eru grunnstef Nýja testa-
mentisins sem eru hluti af gildismati
og siðgæðisvitund okkar. Allar bækur
Biblíunnar eru stórmerkilegar og ég á
mér þann draum að þekkja þær allar.
Uppáhaldsritin eru nú Nýja testament-
ið, Sálmarnir og Orðskviðirnir sem eru
uppspretta visku og trúarsannfæringar
og fjalla líka um tilgang lífsins og til-
gang samskipta.
Snýst um kærleika til Guðs
Sögurnar og orð Jesú taka sér bólfestu í
huga og hjarta og verða ekki frá okkur
tekin hvað sem á dynur. Í hvert sinn
sem við heyrum þessi orð verður skiln-
ingurinn dýpri og við sjáum orðin í nýju
samhengi. Dæmi um djúpa merkingu
orða Jesú er Gullna reglan: „Allt sem
þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það
skuluð þér og þeim gjöra.“ (Matt 7.12)
og Kærleiksboðorðið: „Elska skalt þú
Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu,
allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú
skalt elska náunga þinn eins og sjálfan
þig.“ (Matt. 22.37-39).
Kærleiksboðorðið hefur haft veru-
leg áhrif á mig allt frá því að ég
var barn en fyrir um 20 árum
opnaðist alveg ný vídd í merk-
ingu seinni hluta boðorðsins:
„Þú skalt elska náunga þinn
eins og sjálfan þig.“ Þetta gerð-
ist þegar ég var við nám í Dan-
mörku í námskeiði um heim-
spekinginn og guðfræðinginn
Sören Kierkegaard. Einu sinni í
lest á leið í skólann las ég texta
Kierkegaard um þetta boðorð
og hann spyr lesandann hver sé for-
senda boðorðsins (forudsætningen). Allt
í einu var eins og ljós kviknaði. Ég hafði
aldrei hugsað út í þetta. Hafði þótt þetta
fremur einfalt og snúast um það að vera
annt um aðra. En forsendan felst sem
sagt í orðunum „eins og sjálfan þig“ og
Kierkegaard útskýrir að okkur getur
ekki verið annt um aðra eins og sjálf
okkur nema að við byrjum einmitt á
sjálfum okkur. Byrjunin er forsendan
og er umhyggja fyrir okkur sjálfum.
Þessi túlkun fannst mér allt í einu svo
sjálfsögð og einföld en hafði aldrei
heyrt þetta sjónarhorn áður eða hugsað
út í þessa hlið boðorðsins.
Kærleiksboðorðið snýst um kærleika
til Guðs, til sjálfs okkar og til náungans.
Túlkun Kierkegaard rímar við áherslur
samtímans um jafnvægi sjálfsræktar
og sömu ábyrgðar gagnvart náunganum
og samfélaginu. Túlkun Kierkegaard er
innsýn í djúpa visku Biblíunnar sem er
sígild og er fótfesta trúar okkar en ekki
síður dýrmæt fótfesta fyrir gildismat
og siðfræði.
Trúarrit og grundvallarrit
um gildismat og siðfræði
TRÚMÁL
Sigrún Gunnars-
dóttir
dósent við Háskóla
Íslands, Háskólann
á Bifröst og Þekk-
ingarsetur um
þjónandi forystu
Gerum við allar
Apple vörur
➜ En fólk verður einnig
að átta sig á og viður-
kenna þegar ójafnrétti
er til staðar og berjast
gegn því í smáu og stóru.
➜ Allar bækur Biblíunnar
eru stórmerkilegar og
ég á mér þann draum að
þekkja þær allar.
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
9
-B
2
F
0
1
4
5
9
-B
1
B
4
1
4
5
9
-B
0
7
8
1
4
5
9
-A
F
3
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K