Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 62
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING BÍÓ | 42
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
HÁGÆÐA
DUAL MO
DE
USB HLJ
ÓÐKORT
FYLGIR M
EÐ!
ALPHAMögnuð leikjaheyrnartól með aftengjan-legum noise cancelling hljóðnema sem kemur með hugbúnaði til að breyta rödd-inni í mismunandi leikjapersónur ;) 9.990
KVEÐJUSTUND Paul Walker lést þegar
um helmingur tökudaga var liðinn.
Handriti myndarinnar var breytt.
Furious 7 verður frumsýnd um
allan heim á föstudaginn. Útgáfa
myndarinnar var í uppnámi í kjöl-
far fráfalls Pauls Walker, en hann
lést í bílslysi 30. nóvember 2013. Þá
var um helmingi tökudaga lokið.
Eftir umhugsun ákváðu aðstand-
endur myndarinnar að ljúka við
myndina, ekki síst sem virðingar-
vott við Walker. Handritinu var
breytt og voru bræður hans, Caleb
og Cody Walker, fengnir til þess að
hlaupa í skarðið í nokkrum atrið-
um. Eins og nafnið gefur til kynna
er þessi mynd sú sjöunda í röðinni
um kappaksturskappana í Fast and
the Furious.
Vill Óskarsverðlaunin
Einn af aðalleikurum myndarinnar,
Vin Diesel, telur að Furious 7 eigi
skilið Óskarsverðlaun á næsta ári
sem besta myndin. Þetta segir hann
þrátt fyrir að vita ekkert um sam-
keppnina, svo mikla trú hefur hann
á þessari mynd. Vin Diesel segir
hasarmyndir ekki njóta sannmæl-
is hjá Óskarsakademíunni. Hann
sagði að ýmsir framleiðendur hefðu
kvartað yfir því, en nú væri komin
mynd sem ætti verðlaunin skilið.
Þessi ummæli hafa vakið athygli
vestanhafs og gerði Conan O’Brien
spjallþáttastjórnandi grín að Vin
Diesel og sagði að leikarinn hafi
verið lagður inn á spítala fyrir að
halda að myndin ætti skilið Óskars-
verðlaunin.
Erfitt fráfall
Mikið var fjallað um fráfall Pauls
Walker og mátti sjá á viðbrögðum
annarra leikara myndarinnar að
teymið á bak við myndina var náið.
Vin Diesel og Walker voru miklir
mátar og tók sá fyrrnefndi fráfall
þess síðarnefnda mjög nærri sér.
Vin Diesel skírði nýfædda dóttur
sína Paulina, í höfuðið á vini sínum
sem hann kallaði bróður.
Leikkonan Michelle Rodrig-
uez hefur einnig tjáð sig um frá-
fall Walkers. „Þetta var hræðilegt.
Þetta var eins og köld vatnsgusa
fram í okkur. Að missa einhvern
sem maður elskar svona mikið. Ef
einhver var heill og flottur persónu-
leiki, þá var það Paul,“ útskýrir hún
í samtali við bandaríska fjölmiðla.
Fínir dómar
Gagnrýnendur hafa lofað myndina
og sagt hana bera vott um að hægt
sé að taka myndir eins og Fast and
the Furious í nýjar áttir. Hún er
sögð vera spennandi, með mögnuð-
um áhættuatriðum, en á sama tíma
hafi hún tilfinningalega dýpt, meiri
en fyrri myndirnar í seríunni. Á
vefsíðunni Rotten Tomatoes eru
dómar mikils fjölda gagnrýnenda
teknir saman og búin til meðalein-
kunn úr þeim. Á síðunni er Fur-
ious 7 með 6,9 af 10 mögulegum og
er sú einkunn fengin úr 25 kvik-
myndadómum. Á SXSW hátíðinni
fyrr í mánuðinum var myndin for-
sýnd og myndaðist löng röð fyrir
framan kvikmyndahúsið því marg-
ir vildu sjá hana. Haldin var minn-
ingarhátíð til heiðurs Paul Walker
og í umfjöllun tímaritsins Variety
kemur fram að tár hafi fallið á
þessari tilfinningaþrungnu stund.
Búist við miklum tekjum
Vestanhafs er talið að myndin
getið halað inn dágóðan skilding
fyrir framleiðendur. Talið er að
myndin gæti slegið aðsóknarmet
fyrir mynd frumsýnda í apríl.
Myndin Captain America á metið,
en hún þénaði 95 milljónir dala
frumsýningarhelgina, en talið er
að Furious 7 gæti þénað á bilinu
110 til 115 milljónir dala ef spár
ganga eftir. Það myndi verða besta
frumsýningarhelgi allra mynda í
Fast and the Furious-seríunni. Síð-
asta myndin sem kom út í seríunni,
sú sjötta í röðinni, aflaði 97,4 millj-
óna dala fyrstu sýningarhelgina.
kjartanatli@365.is
Kveðjustund Pauls
Walker á hvíta tjaldinu
Kvikmyndin Furious 7 verður frumsýnd um helgina. Leikarinn Paul Walker lést
í bílslysi þegar tökur á myndinni voru hálfnaðar. Handritinu var breytt og hlupu
bræður hans í skarðið til þess að hægt væri að ljúka við myndina.
BÍLAR OG AFTUR BÍLAR Fast and the Furious-myndirnar hafa vakið athygli fyrir
líflegar senur þar sem bílar eru gjarnan í aðalhlutverki.
LEIKARAR
SPJALLA Í
myndinni eru
margir þekktir
leikarar, eins
og Jason
Statham,
Vin Diesel
og Michelle
Rodriguez.
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS FRUMSÝNINGAR
6,7/10 43% 7,6/10 83%
76 ára Ali MacGraw
Þekktust fyrir: Love Story, The
Getaway
Hunger Games-
skemmtigarður
Lionsgate hefur tilkynnt að fyrir-
tækið ætli að opna Hunger Games-
skemmtigarð í Dubai. Garðurinn, sem
er samstarfsverkefni Dubai Parks and
Resorts og Motiongate Dubai, verður
opnaður í október 2016. Forstjóri
Lionsgate, Jon Feltheimer, segist vera
stoltur af því að geta
boðið upp á slíkan
skemmtigarð fyrir
aðdáendur myndanna
og bókanna. Reiknað
er með að um þrjár
milljónir gesta muni
heimsækja skemmti-
garðinn ár hvert.
Endurgerir Mulan
Disney hefur ákveðið að endurgera
teiknimyndina Mulan. Verður það
gert í svipuðum stíl og endurgerðin á
Öskubusku sem sýnd er í kvikmynda-
húsum nú, þar sem leiknum atriðum
er blandað saman við tölvuteikn-
ingar.
Mulan kom út árið 1998 og er
sagan byggð á kínverskri þjóðsögu,
en Elizabeth Martin og Lauren Hynek
munu skrifa nýtt handrit.
HELSTU LEIKARAR
FURIOUS 7
Vin Diesel
Paul Walker
Jason Statham
Michelle Rodriguez
Jordana Brester
Tyrese Gibson
Ludacris
Dwayne „The Rock“
Johnson
Lucas Black
Kurt Rusell
The Water Diviner
Stríðsmynd, drama.
Helstu leikarar: Jai Courtney, Olga
Kurylenko og Russell Crowe
Samba
Gamanmynd, drama
Helstu leikarar: Hélène Vincent,
Charlotte Gainsbourg og Tahar Rahim
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
9
-8
6
8
0
1
4
5
9
-8
5
4
4
1
4
5
9
-8
4
0
8
1
4
5
9
-8
2
C
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K