Fréttablaðið - 01.04.2015, Síða 38
FÓLK|
hópurinn út ljósmyndabókina
„Okkar sýn á Ísland“ sem kom út
vorið 2008. Næst gaf hópurinn
út „Incredible Iceland“ en fyrsta
bók okkar hjóna kom út 2012
og ber nafnið „Iceland in Your
Pocket“. Önnur bók okkar er svo
væntanleg núna í vor auk þess
sem við erum með tvö verkefni
í vinnslu þar sem við höldum
áfram að blanda saman mannlífi
og náttúru landsins.“
Meginviðfangsefni Sigrúnar og
Pálma er íslensk náttúra í öllum
sínum myndum ásamt daglegu
lífi fólksins sem nýtir hana af
skynsemi og lifir í sátt við um-
hverfi sitt. „Náttúra Íslands er
einstök. Það eru ekki margir
staðir í heiminum þar sem hægt
er að sjá svarta sanda, mosa-
gróin hraun, tignarlega jökla,
stórar jökulár og fossa, jarðhita
og líparítfjöll og sól og slagveð-
ur á sama klukkutímanum. Og
það á jafn litlu landi og Íslandi.
Heitasta ósk okkar er að stjórn-
málamenn geri sér ljóst í hverju
framtíðarverðmæti landsins er
fólgið. Það kemur að því að ekki
verður hægt að virkja meira og
hvað á þá að gera til að efla hag-
vöxt? Raunverulegt verðmæti
landsins er fólgið í því sjálfu,
ekki því sem mennirnir búa til.
Við þurfum að huga að íslenskri
náttúru og vernda hana ef við
erum ekki ákveðin í að leggja
landið í auðn.“ Myndir hjónanna
má skoða á www.icelandimage.
com. GULLMOLI Jökulgil í Landmannalaugum í allri sinni litadýrð.
DROTTNINGIN Herðubreiðarlindir innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Drottning íslenskra fjalla, Herðubreið, er í baksýn. MYND/ÚR EINKASAFNI
Eiffel-turninn í París varð 126
ára í gær. Turninn er frægasta
kennileiti Frakklands og jafnvel
allrar Evrópu. Hér eru nokkrar
skemmtilegar staðreyndir um
þennan fræga turn.
■ Byggingu turnsins var lokið
31. mars 1889. Hann var
stærsta mannvirki í heimi í 41
ár þar til Chrysler-byggingin í
New York reis 1930.
■ Hann er 324 metra hár og
vegur 10,1 tonn.
■ Þeir sem ganga upp í topp
þurfa að fara 1.665 stigaþrep.
Flestir taka lyftuna.
■ Lyfturnar ferðast um 103 þús-
und kílómetra á ári.
■ Í köldu veðri lækkar turninn
um 15 cm.
■ Nærri 250 milljónir manna
hafa heimsótt turninn frá upp-
hafi.
■ Um sjö milljónir skoða turninn
árlega.
■ Árið 1944, þegar bandamenn
nálguðust París, skipaði Hitler
Dietrich von Choltitz, hern-
aðarlegum stjórnanda Parísar,
að eyðileggja turninn ásamt
öðrum hlutum Parísar. Hann
neitaði.
■ Turninn er málaður á sjö ára
fresti. Til þess þarf 60 tonn af
málningu.
■ Höfundur turnsins, Gustave
Eiff el, átti litla íbúð á þriðju
hæð og hélt þar boð fyrir vini
sína. Í dag má skoða íbúðina.
■ Eiffel-turninn og Margaret
Thatch er deila gælunafni. Þau
eru kölluð La Dame de Fer,
eða Járnfrúin.
■ Utan á turninum eru 20 þús-
und ljósaperur sem lýsa hann
upp á hverju kvöldi.
NOKKUR ORÐ UM EIFFEL-TURNINNNÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
Lokað
2. 3. 4. og 5. apríl
Opnum aftur
með okkar vinsæla
hádegishlaðborð
mánudaginn
6. apríl
FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
9
-9
F
3
0
1
4
5
9
-9
D
F
4
1
4
5
9
-9
C
B
8
1
4
5
9
-9
B
7
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K