Fréttablaðið - 01.04.2015, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2015 | FRÉTTIR | 13
NEYTENDUR „Þeir virðast hafa dregið
þetta til baka hálfa leið í stað þess
að breyta villandi og röngu orðalagi
alveg,“ segir Guðmundur Ásgeirsson,
lögfræðinemi og erindreki hjá Hags-
munasamtökum heimilanna, um orða-
lag á vefsíðunni gjaldþrotaskipti.is.
Síðan auglýsir meðal annars aðstoð
vegna gjaldþrotaskipta.
Í kjölfar frumkvæðisathugunar
Neytendastofu í desember var orða-
lagi á síðunni breytt. Athugunin var
gerð vegna kvörtunar frá Hagsmuna-
samtökum heimilanna sem sneri að
því að gefnar væru upp rangar og
villandi upplýsingar. Fullyrt var að
um síðustu áramót myndu lög um
fyrningarfrest við gjaldþrot breytast,
en fyrir þeirri fullyrðingu var eng-
inn fótur þar sem forsætisráðherra
tók það fram í stefnuræðu sinni að
fyrningarfrestur myndi áfram vera
tvö ár.
Guðmundur segir að þrátt fyrir
breytt orðalag sé greinilega enn verið
að reyna að kveikja þá hugmynd að
stuttur fyrningarfrestur muni aðeins
standa til boða tímabundið og því
sé skammur tími til að nýta stytt-
an frestinn. „Þetta er ekki rétt. Þeir
nota þetta orðalag bara sem tæki til
að veiða til sín viðskipti,“ segir Guð-
mundur og bætir við að þeir kveiki
þá hugmynd hjá fólki í fjárhagserfið-
leikum að það sé tímapressa. „Þannig
spila þeir með örvæntingafullt fólk
sem á undir högg að sækja.“
Samkvæmt upplýsingum frá Neyt-
endastofu verður metið hvort tilefni
sé til athugunar að nýju vegna við-
skiptahátta vefsíðunnar sem er í eigu
Sigma bókhalds sf. - ngy
Neytendastofa mun meta hvort tilefni sé til athugunar á viðskiptaháttum vegna vefsíðunnar gjaldþrotaskipti.is:
Orðalag á vefsíðu um gjaldþrot talið rangt og villandi
UMHVERFISMÁL Neysluvatn á
Íslandi er almennt mjög gott en
úrbóta er þörf í sumum tilfellum
hjá minni vatnsveitum, einkum
litlum einkaveitum.
Þetta kemur fram í skýrslu
um niðurstöður eftirlits á vegum
Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
með gæðum neysluvatns á árun-
um 2002-2012. Skimað var fyrir
örverum, lífrænum eiturefnum
og þungmálmum.
Yfir 99% sýna sem tekin voru
á þessu tímabili hjá vatnsveitum
sem þjóna fleirum en 500 íbúum
uppfylltu reglur um neysluvatn
hvað varðar E.coli, sem greind-
ist í 6,5% sýna frá vatnsveitum
sem þjóna 500 íbúum eða færri.
- shá
Úrbóta sumstaðar þörf:
Neysluvatn
almennt gott
LÍFGJAFI Best í heimi?
LÖGREGLUMÁL Lögregla var
kölluð til er æði rann á mann er
hann var innandyra í Þjónustu-
miðstöð Reykjavíkurborgar í
Vesturbæ um hádegisbil í gær.
Henti hann stólum til og braut
með því rúðu þar innandyra.
Er lögregla mætti á staðinn var
hann farinn en var handtekinn
ekki langt frá. Skýrsla verður
tekin af honum í fyllingu tím-
ans. Sigþrúður Erla Arnardóttir,
framkvæmdastjóri Þjónustu-
miðstöðvar Vesturbæjar, segir
engan hafa slasast. „Það slasað-
ist enginn starfsmaður.
Þetta gerist ekki oft en þetta
gerist,“ segir Sigþrúður og segir
erfitt að gefa upp ástæðu manns-
ins fyrir árásargirni hans en
vegfarendur greindu frá því að
maðurinn hefði verið ósáttur við
að fá ekki greidda fjárhagsað-
stoð. - kbg
Lögregla kölluð til:
Fékk æðiskast
og braut rúðu
VESTURGARÐUR Rúða var brotin í
Þjónustumiðstöð Reykjavíkur.
Save the Children á Íslandi
Þetta er ekki rétt. Þeir
nota þetta orðalag bara sem
tæki til að veiða til sín
viðskipti.
Guðmundur Ásgeirsson,
erindreki hjá Hagsmunasamtökum
heimilanna.
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
9
-C
1
C
0
1
4
5
9
-C
0
8
4
1
4
5
9
-B
F
4
8
1
4
5
9
-B
E
0
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K