Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Page 2

Skessuhorn - 20.06.2013, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Nú má búast við að umferðin fari að aukast stórum á vegum úti, einkum helgarumferðin, enda aðal sumarleyf- istíminn að ganga í garð. Því er ástæða til að minna ökumenn á að fara var- lega, passa upp á hæfilegan ferða- hraða og haga sínum akstri þannig að sem minnst hætta stafi af, svo sem við framúrakstur. Spáð er hægum norðanáttum á föstu- dag og fram á helgina. Hitinn verði á bilinu 8-15 stig og einna hlýjast á sunnan og vestanverðu landinu. Búast má við skúrum með köflum víða eink- um síðdegis. Á mánudag og þriðjudag er spáð hægri suðvestanátt, skýjað og smáskúrir um landið vestanvert og norðan til síðdegis en bjart að mestu austantil. Hiti breytist lítið. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: Ferð þú á bæjar- eða héraðshá- tíð í sumar? Margir ætla sér það, já fleiri en eina sögðu 11,9% og já eina 28,7%. Nei sögðu 34,3% og veit það ekki 25,1%. Í þessari viku er spurt: Á ríkið að auka fjárveitingar til refaeyðingar? Þar sem vikan verður nátengd fótbolta á Vesturlandi, m.a. með heimsókn um 1500 ungra knattspyrnudrengja og fjölskyldna þeirra á Skagann, er Vest- lendingur vikunnar að þessu sinni Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði U-21 landsliðsins í knattspyrnu. Hann er ungur Snæfellingur og spilar nú með ÍBV í úrvalsdeild. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Árekstur bíls og reiðhjóls AKRANES: Reiðhjól og bifreið lentu saman á Inn- nesvegi á Akranesi í vik- unni, með þeim afleiðing- um að stúlka á hjólinu kast- aðist í götuna. Hún var flutt á SHA en virtist lítil meidd. Þá klippti lögreglan á Akra- nesi skráningarnúmer af sjö bifreiðum vegna vanrækslu eigenda þeirra að færa þær til skoðunar. –þá Teigsskógur aftur í mat? BARÐASTR: Íbúasamtök og fyrirtæki á sunnanverðum Vestfjörðum hafa sent nýrri ríkisstjórn ákall um betri vegi. Nýr innanríkisráð- herra og ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, ætlar að funda með Vestfirð- ingum á næstunni um hvort Vestfjarðavegur verði lagð- ur um Teigsskóg og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar fyrrverandi inn- anríkisráðherra. Deilt hefur verið um Teigsskóg í nokk- urn tíma, svo sem í tíð Jón- ínu Bjartmars þegar hún gegndi embætti umhverfis- ráðherra í stjórn sömu flokka og nú skipa ríkisstjórn, 2003- 2007. –þá Misjafn gangur á strandveiðum LANDIÐ: Frá og með deg- inum í gær, 19. júní, var lok- að fyrir strandveiðar á A- svæði í þessum mánuði, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Fram að síðasta þriðjudegi höfðu 228 bátar landað alls 1.301 sinnum í júnímánuði og afl- inn var tæp 717 tonn. Í júní 2012 lönduðu aftur á móti 250 bátar á svæðinu. Strand- veiðin hefst aftur á A svæði mánudaginn 1. júlí. Á D svæði, sem er frá Höfn, suð- ur um og að Eyja- og Mikla- holtshreppi var sl. þriðjudag einungis búið að veiða 215 af 525 tonnum sem leyfilegt er að veiða. Við þann kvóta strandveiðibátanna bætist rúmlega 200 tonna óveiddur kvóti frá því í maí. -sko Gísli tekur við slætti AKRANES: Framkvæmda- ráð Akraneskaupstað- ar kynnti á fundi sínum sl. fimmtudag tilboð í slátt á opnum svæðum í bænum í sumar. Gísli S. Jónsson ehf reyndist með lægsta tilboð- ið sem er að fjárhæð rúmlega 10,5 milljónir. Framkvæmda- stjóra Framkvæmdastofu var falið að ganga til samn- inga við lægstbjóðanda. Jafn- framt var á fundinum greint frá því að þeim verktaka sem var með verkið áður hafi ver- ið tilkynnt um riftun verk- samnings og honum gefinn kostur á andsvörum. -þá Vinnuhópur um námsdeild á fram- haldsskólastigi í Dölum legg- ur til að sveitarfélagið Dalabyggð hrindi verkefninu af stað í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar. Stefnt verði að því að kennsla hefj- ist á komandi hausti. Fyrir liggi að skólameistari Menntaskóla Borg- arfjarðar hafi staðfest að skólinn sé tilbúin að taka að sér umsjón dreif- náms í Dalabyggð. Vinnuhópur- inn hefur skoðað húsnæði Rauða kross Íslands í Búðardal og efri hæð Leifsbúðar og telur báða staði koma til álita fyrir starfsemina, en hús- næði RKÍ að sumu leiti heppilegra. Byggðarráð Dalabyggðar tók undir tillögu vinnuhópsins á fundi sínum sl. þriðjudag og vísaði henni áfram til umfjöllunar sveitarstjórnar. Fyrir fundi byggðaráðs lá bréf frá mennta- og menningarmála- ráðuneyti dags. 3. júní sl. Þar sem fram kemur að ráðuneytið geri ekki athugasemdir við að Dalabyggð bjóði upp á dreifnám í samstarfi við framhaldsskóla skólaárið 2013- 2014. Forsendurnar fyrir því þurfa að vera að námið sé fjármagnað úr sóknaráætlun Vesturlands og af Dalabyggð og nemendaframlög rúmist innan fjárheimilda viðkom- andi framhaldsskóla. Þá liggur fyrir samkomulag milli Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um fjögurra milljóna króna framlag af Sóknaráætlun Vesturlands, eins og greint var frá í síðasta Skessu- horni. þá Síðdegis á fimmtudag í liðinni viku fór fram sameiginlegt eftir- litsátak lögregluembættanna á Suð- vesturlandi við hringtorgið á gatna- mótum þjóðvegar 1 og Snæfells- nessvegar norðan við Borgarnes. Lögreglan beindi allri umferð bíla sem komu að sunnan- og norðan- verðu inn á iðnaðarhúsagötuna Sól- bakka þar sem lögreglumenn ræddu við ökumenn og skoðuðu um leið ástand bíla þeirra. Að sögn Theo- dórs Kr. Þórðarsonar yfirlögreglu- þjóns hjá Lögreglunni í Borgarfirði og Dölum stóðu lögregluembætt- in á Hvolsvelli, Selfossi, Suðurnesj- um og Reykjavík að átakinu ásamt fleiri aðilum á borð við Vegagerð- ina og Umferðarstofu. Athugað var m.a. ástand bifreiða og vagna en einnig hvort bílar voru lögform- lega skoðaðir. Theodór segir að sérstök áhersla hafi verið lögð á að skoða ástand bílaleigubíla enda aðal ferðamannatíminn runninn upp. Töluvert löng bílaröð myndaðist af þessum sökum. Þegar blaðamað- ur Skessuhorns átti leið um hring- veginn á fjórða tímanum þenn- an dag, var nokkurra mínútna töf á umferð. Vinna hjá fyrirtækjum á Sólbakka raskaðist nokkuð eftir að umferð var beint inn á götuna og sagði forsvarsmaður eins þeirra, Óskar Sigvaldason framkvæmda- stjóri Borgarverks, í samtali við blaðamann að betur hefði farið ef fyrirtæki við Sólbakka hefðu ver- ið látin vita fyrirfram að til stæði að beina þangað umferð frá hring- veginum. Átakinu lauk klukkan 17 en þá höfðu um 1.100 bílar verið stöðvaðir. Einungis þurfti að gera athugasemdir við ástand 14 þeirra. Búast má við að átakið verði end- urtekið á suðvesturhorninu á næstu dögum, en sambærilegt átak var t.d. framkvæmt í Keflavík, við flugstöð- ina, í síðasta mánuði og sjónum þar einkum beint að ástandi bílaleigu- bíla. hlh Komið hefur í ljós að áburður frá breskum birgja Skeljungs, áburð- arframleiðandanum Origin, hafi innihaldið meira magn kadmíums en leyfilegt er hér á landi. Skelj- ungi barst tilkynning frá Matvæla- stofnun þessa efnis sl. þriðjudag. Ís- Björgunarbáturinn Björg í Rifi var kall- aður út til að aðstoða vélarvana báti um hádegisbil á þriðjudaginn í liðinni viku. Kvika SH hafði verið á línuveiðum fyrir sunnan Öndverðarnes þegar kalla þurfti eftir aðstoð. Björgin dró Kviku til lands í Rifi og voru bátarnir komnir þangað um tvöleytið. Ágætis veður var á miðunum og því lítil hætta á ferðum. þa/ Ljósm. Sóley Jónsdóttir Vélarvana bátur dreginn að landi Áformað að dreifnám hefjist í Búðardal í haust Óleyfilegt kadmíum-magn í áburði hjá Skeljungi Lögreglan athugaði ástand bíla á hringveginum við Borgarnes Frá eftirlitsátaki lögreglunnar á Sólbakka í Borgarnesi á fimmtudaginn. lenskar reglur um magn kadmíums heimila aðeins áburð með kadmí- um-innihaldi undir 50 mg/kg P. Sýni sem tekin voru á vegum Mat- vælastofnunar reyndust innihalda of mikið magn kadmíums – eða á bilinu 53 til 111 mg/kg P. „Skeljungur fékk fyrr á árinu nið- urstöður mælinga óháðrar rann- sóknarstofu í Bretlandi (NRM) um að kadmíum-magn fosfórs sem nota skyldi í áburð fyrir Íslandsmark- að í ár væri langt innan leyfilegra marka. NRM mældi kadmíum- magn áburðar frá Skeljungi einn- ig á síðasta ári og reyndust niður- stöðurnar þá vera í fullu samræmi við sjálfstæðar sýnatökur og mæl- ingar Matvælastofnunar, þ.e. magn kadmíums reyndist langt innan við- miðunarmarka. Ósamræmið í nið- urstöðum mælinganna nú kemur Skeljungi því í opna skjöldu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Einn- ig kemur fram að tilkynning hafi þegar verið send til viðskiptavina sem keyptu umræddan áburð. ákj

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.