Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013
Sömu kjörnir í
lykilstöðu
BORGARBYGGÐ: Ragn-
ar Frank Kristjánsson verð-
ur áfram forseti sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar og Björn
Bjarki Þorsteinsson formaður
byggðarráðs. Kosið var í helstu
stjórnir sveitarfélagsins sl.
þriðjudag eins og samþykktir
um stjórn sveitarfélagsins gera
ráð fyrir. Björn Bjarki var kos-
inn fyrsti varaforseti sveitar-
stjórnar og Geirlaug Jóhanns-
dóttir annar varaforseti. Ragn-
ar Frank Kristjánsson og Geir-
laug Jóhannsdóttir voru kosin í
byggðarráð ásamt Birni Bjarka.
Hulda Hrönn Sigurðardótt-
ir og Sigríður G. Bjarnadótt-
ir voru kosnar skrifarar sveit-
arstjórnar.
–þá
Sami forseti og
bæjarráð
SNÆFELLSBÆR: Við kosn-
ingar sem fram fóru á fundi
bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í
síðustu viku var Jón Þór Lúð-
víksson endurkjörinn forseti
bæjarstjórnar. Kristján Þórðar-
son var kosinn fyrsti varaforseti
og Kristjana Hermannsdótt-
ir annar varaforseti. Bæjarráð
var einnig endurkjörið en það
skipa Kristjana Hermannsdótt-
ir, Kristín Björg Árnadóttir og
Kristján Þórðarson. Kristjana
verður formaður bæjarráðs og
Kristín Björg varaformaður.
–þá
Óbreytt bæjarráð
GRUNDARFJ: Á fundi bæj-
arstjórnar Grundarfjarðar í síð-
ustu viku var bæjarráð Grund-
arfjarðar endurkjörið. Eyþór
Garðarsson verður formaður
bæjarráðs áfram og Sigurborg
Kr. Hannesdóttir varaformað-
ur. Með þeim í ráðinu verður
Þórður Magnússon. Ekki var
kosið um æðstu stöður í bæjar-
stjórn en Sigurborg Kr. Hann-
esdóttir er forseti bæjarstjórnar
og Þórður Á. Magnússon vara-
forseti.
–þá
Vefur fyrir
Parkinson
LANDIÐ: Nýr gagnvirkur
vefur er nú í vinnslu fyrir Park-
inson sjúklinga og aðstandend-
ur þeirra. Er markmið hans að
auðvelda fólki að takast á við
sjúkdóminn. „Markmið Live-
Well verkefnisins er að þróa
fræðslu- og samfélagsvef á Int-
ernetinu fyrir Parkinson sjúk-
linga, aðstandendur þeirra og
heilbrigðisstarfsmenn,“ segir í
tilkynningu. Verkefnið (www.
livewell-community.eu) sem
hófst í október sl. mun auð-
velda aðgengi að upplýsing-
um um Parkinson sjúkdóminn
og eru þær settar fram á ein-
faldan og hnitmiðaðan hátt og
er vefurinn gagnvirkur sam-
skipta-, upplýsinga-, fræðslu-
og þjálfunarvefur. Þjálfunar-
svæðið mun bjóða upp á gagn-
virkt efni, æfingar og upplýs-
ingar um hvernig sjúkdóm-
urinn getur þróast og hvern-
ig hægt er að lifa með honum.
Þar munu Parkinson sjúkling-
ar geta deilt reynslu sinni og
þekkingu. Heilbrigðisstarfs-
menn munu þar hafa mögu-
leika á fylgjast með framförum
sjúklinga sinna.
–mm
Skólafólk í
landvinnslunni
HB GRANDI: Engar sum-
arlokanir verða í fiskiðjuver-
um HB Granda í sumar frekar
en í fyrrasumar. Skólafólk sér
í flestum tilvikum um að leysa
fastráðna starfsfólkið af hólmi
í sumarleyfum þess. Í frétt á
heimasíðu HB Granda segir
að 20 skólanemar verið ráðn-
ir til starfa á Akranesi í sumar,
45 í Reykjavík og allmargir að
auki á Vopnafirði, alls á annað
hundrað skólanemar. Afleys-
ingafólk til starfa er heldur
færra nú en í fyrra vegna minni
afla til vinnslu yfir sumarmán-
uðina en verið hefur undanfar-
in ár. Nú er hins vegar brydd-
að upp á því nýmæli að halda
námskeið fyrir sumarstarfs-
fólkið þar sem farið er yfir
helstu atriðin sem fiskvinnslu-
fólk þarf að kunna skil á. Það er
meðhöndlun hráefnis, gæða-
mál, hreinlætismál, vinnuvernd
og öryggismál. Haldin eru þrjú
fjögurra tíma námskeið og
standa þau nú yfir. –þá
Starfsfólk þakkar
forgangsröðun
DALIR: Á fundi sveitarstjórnar
Dalabyggðar sl. þriðjudag var
kynnt þakkarbréf frá starfsfólki
Auðarskóla. Með bréfinu þakk-
ar starfsmannafundur sveitar-
stjórninni fyrir að forgangsraða
framkvæmdum í þágu skólans.
Sem dæmi eru nefnd nýtt úti-
leiksvæði, hreystibraut, nýtt
tölvuver, endurbætt smíðastofa
og brunavarnakerfi við grunn-
skóla, viðbygging við leikskóla
o.fl. Leik-, náms- og starfsum-
hverfi hefur þar með batnað til
muna, segir í bréfinu. –þá
Þröstur nýr for-
maður bæjarráðs
AKRANES: Á fundi bæjar-
stjórnar Akraness í síðustu viku
var kosið að nýju í helstu ráð og
nefndir samkvæmt samþykkt-
um um stjórn kaupstaðarins. Í
nýju bæjarráði er Þröstur Ólafs-
son oddviti VG formaður, Ingi-
björg Valdimarsdóttir frá Sam-
fylkingunni er varaformaður og
einnig situr í ráðinu Guðmund-
ur Páll Jónsson frá Framsóknar-
flokki, sem jafnframt er fráfar-
andi formaður ráðsins. Sveinn
Kristinsson oddviti Samfylking-
arinnar var endurkjörinn forseti
bæjarstjórnar. Í nýju fjölskyldu-
ráði verður Dagný Jónsdóttir,
Framsóknarflokki formaður og
í framkvæmdaráði mun Einar
Benediktsson Samfylkingunni
gegna formennsku. Hrönn Rík-
arðsdóttur úr sama flokki verð-
ur aðalmaður í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur. –þá
Sumardagskrá
Þjóðgarðsins
SNÆFELLSNES: Bækling-
ur með viðburðum sumarsins í
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli hef-
ur verið gefinn út. Hann inni-
heldur upplýsingar um þjóð-
garðinn, opnunartíma, síma-
númer, vikulega dagskrá, sér-
ferðir, viðburði, ásamt korti og
ýmsum hagnýtum upplýsing-
um. Í sumar verða 13 mismun-
andi sérferðir farnar frá júní
fram til 10. ágúst. Landverðir
bjóða einnig upp á fjórar viku-
legar göngur og barnastundir frá
25. júní til 28. ágúst. Þær ferð-
ir eru öllum opnar og gestum að
kostnaðarlausu. –sko
Strandveiðimenn á Snæfellsnesi
leita ýmissa leiða til að ná fiski úr
sjó þessa dagana. Þó nokkrir bátar
voru staddir rétt við brúna yfir
Kolgrafafjörð þegar ljósmyndari
Skessuhorns átti þar leið hjá í síð-
ustu viku. Einhverjir lögðu leið sína
jafnvel inn fyrir brú í leit að þeim
gula. Ekki fór neinum sögum af
aflabrögðum, en nógu margir voru
þarna á ferð því fljótt flýgur fiski-
saga eins og máltækið segir. Gár-
ungarnir höfðu það á orði hvort
ekki væri bara nóg að festa nokkr-
ar handfærarúllur á brúarhandrið-
ið yfir Kolgrafafjörð og spara með
því mikla olíu og annan útgerðar-
kostnað.
tfk
Eldur kom í uppþvotta-
vél í íbúð á fjórðu hæð í
fjölbýlishúsinu Holtsflöt
6 á Akranesi sl. miðviku-
dagsmorgun. Mæðgur
voru í íbúðinni þegar eld-
urinn kom upp og höfðu
þær lokað að sér inni í
einu herbergi íbúðarinn-
ar en náð að tilkynna um
eldinn til neyðarlínunnar
klukkan 9:46. Slökkviliðs-
menn frá Slökkviliði Akraness og
Hvalfjarðarsveitar komu á vettvang
fáeinum mínútum síðar og hófust
handa við slökkvistörf sem gengu
mjög vel, að sögn Björns Berg-
manns Þórhallssonar varaslökkvil-
iðsstjóra SAH. Þeim lauk
upp úr klukkan 10. Að
sögn Björns Bergmanns
sakaði mæðgurnar ekki,
en hann segir að aðstæður
hafi verið slíkar í íbúðinni
að þegar slökkviliðsmenn
hófu störf hafi þeir ekki
séð handa sinna skil innan
dyra. Reykkafarar hjálp-
uðu mæðgunum út. Íbúð-
in er nokkuð skemmd eft-
ir reyk og mikið sót. Slökkvilið-
ið vann í kjölfarið að reykræstingu
íbúðarinnar. hlh
Opnun fjallvega hér á landi fer eft-
ir veðurfari að vori eða í sumarbyrj-
un og ráða m.a. snjóalög opnunar-
tíma. Bleyta í vegum getur einn-
ig valdið því að vegir opnist seint.
Þá eru dæmi um að snjóleysi í vetur
og vor valdi seinkun á opnun fjall-
vega, eins og dæmi er um á Arnar-
vatnsheiði. Sökum snjóleysis þar
var mikið frost í jörðu í vor og hef-
ur klaki verið lengi að hverfa sökum
kulda í maímánuði og sólarleysis í
júní. Töluverð aurbleyta er í vegum
á heiðinni og veiðimenn sem feng-
ið hafa leyfi til að fara þangað verið
hvattir til að halda sig við fjölförn-
ustu vegaslóða og fara alls ekki út
fyrir þá. Þannig er t.d. lokað fyrir
umferð í Hlíðarvatn.
Á meðfylgjandi korti eru sýnd
þau svæði þar sem umferð var
bönnuð um hálendið sökum ófærð-
ar 11. júní sl. Skyggðu svæðin sýna
lokun. Kort sem þessi er að finna
á vef Vegagerðarinnar og eru þau
uppfærð jafnóðum og aðstæður
breytast. Útlit er fyrir að ýmsir af
þeim vegum sem sýndir eru lokaðir
á kortinu séu við það að verða fær-
ir og verði því opnaðir fyrir umferð
næstu daga. mm
„Sláttur á þessum opnu svæðum
hefði þurft að vera byrjaður fyrir
mánuði síðan,“ sagði Gísli Jónsson
verktaki sem nýlega tók við gras-
slætti á opnum svæðum fyrir Akra-
neskaupstað. „Það er svo mikið gras
á þessu að við verðum að grófslá
þetta fyrst og fara síðan í fínslátt á
eftir,“ sagði Gísli, þar sem hann var
að flytja hey af tjaldstæðinu við Kal-
mansvík. Heyinu hafði verið rúllað
upp án þess þó að pakka rúllunum.
Mest allt flytur hann svo til urðun-
ar á svokallaðan moldartipp norð-
an Akrafjalls.
„Þetta væri vel nothæft í fóð-
ur fyrir hross og svo hafa kúbænd-
ur fengið hjá mér rúllur til að gefa
kálfum,“ sagði Gísli þegar hann var
spurður hvort ekki væri illa farið
með heyið að urða það. Hann sagð-
ist vera orðinn þokkalega tækja-
væddur fyrir þetta verkefni en hefði
ekki verið það þegar hann var beð-
inn að taka þetta að sér í síðustu
viku. „Þetta bar svo brátt að þann-
ig að ég varð að drífa í að tækjavæða
mig,“ sagði Gísli Jónsson. hb
Heyskapur á Akranesi
Rúllur settar á bíl við tjaldstæðið.
Fjallavegir ófærir lengur en
undanfarin ár
Á strandveiðum undir brú
Eldur slökktur í íbúð á Akranesi