Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar sl. fimmtudag deildi Jó- hannes F. Stefánsson, einn sveit- arstjórnarmanna minni hlutans, á framgöngu stjórnar Borgarfjarðar- stofu vegna ritunar sögu Borgar- ness í tilefni 150 ára afmælis bæj- arins 2017. Jóhannes segist í bókun sinni fagna því að ritnefnd sé tekin til starfa og verkefnið þar með kom- ið af stað. Hins vegar harmi hann hvernig sveitarstjórn hefur á síð- ustu tveimur fundum sínum skor- ið niður fjárheimildir til þessa verk- efnis um helming á árinu. „Verra er þó að það er gert með stuðningi nokkurra stjórnarmanna í Borg- arfjarðarstofu. Hlutverk stjórnar Borgarfjarðarstofu er ekki að veit- ast með þessum hætti að verkefn- um sínum, þvert á móti hefði mað- ur haldið að stjórnarmenn reyndu að vernda þau með öllum ráðum,“ segir Jóhannes í bókun sinni. Jónína Erna Arnardóttir lagði fram bókun fyrir hönd meirihluta sveitarstjórnar. Þar segir að hlut- verk Borgarfjarðarstofu sé m.a. að styðja og standa vörð um menn- ingarmál. Söguritun fyrir 150 ára afmæli Borgarness árið 2017 væri sannarlega verðugt mál. „En það eru einnig önnur mál sem geta komið upp með styttri fyrirvara. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár tókst að koma söguritun- inni af stað með fjárveitingu. Hins vegar var ekki búið að koma saman ritnefnd eða ráða söguritara þegar forstöðumaður Safnahúss kom fyr- ir byggðarráð og bað um aukafjár- veitingu fyrir sýningu um Hallstein og Ásmund Sveinssyni sem er fyrir- huguð í haust. Var það eindreginn vilji að styðja við sýninguna. Verið er að gæta aðhalds í rekstri og var það mat undirritaðra að sögurit- unin myndi ekki líða fyrir það þótt 500.000 kr. yrðu sett af fjárveiting- unni í sýninguna. Þegar í ljós kom að þessa peninga þyrfti ekki í sýn- inguna að mati forstöðumanns þá var honum heimilað að nýta þá í undirbúningsvinnu vegna sögurit- unarinnar enda er ljóst að Safna- húsið mun þar leika lykilhlutverk,“ segir einnig í bókuninni. þá Bjarni Jónasson framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts hestamanna, sem haldið verður á Kaldármelum dag- ana 3.-7. júlí næstkomandi, seg- ir að nú þurfi bara gott veður, allt annað sé klárt fyrir gott Fjórðungs- mót. Um helgina rann út frestur til skráninga. Bjarni segir félögin ætla að senda alla þá á mótið sem unnið hafa sér þátttökurétt. Þá séu komnar mjög góðar skráningar í tölt, skeið og stóðhestakeppnina í A- og B flokki, en í þær keppn- ir er opið til þátttöku fyrir knapa og hesta af öllu landinu. Bjarni á von á því að 400-450 hross muni mæta ásamt knöpum og eigendum til keppni og sýninga á Fjórðungs- mótið og er það heldur aukning frá mótinu 2009. Bjarni segir að völlurinn og að- stæður séu hinar bestu á Kaldár- melum. „Eftir smálagfæringar á vellinum í vor var keppt þar fyr- ir hálfum mánuði og þá voru all- ir mjög ánægðir með hann. Núna standa yfir lagfæringar á stóðhesta- brautinni. Rigningarnar að undan- förnu hafa bara verið til bóta en nú er það vonandi búið og við reikn- um með góðu veðri,“ segir Bjarni. Hann áætlar að gestir á fjórðungs- mótið verði á bilinu 2500-3000 eða heldur fleiri en á mótinu fyr- ir fjórum árum. þá Nýverið voru kynnt drög að end- urskoðuðu aðalskipulagi Akraness fyrir árin 2013-2025. Þar eru lagðar til ýmsar breytingar á gildandi að- alskipulagi í nokkrum veigamiklum þáttum, meðal annars sem snerta strandlengjuna við bæinn. Á kynn- ingarfundi um aðalskipulagið sem haldinn var 29. maí sl. kom fram gagnrýni á landfyllingar í grennd hafnarinnar svo sem í Steinsvör og út að Breið. Þá birti grasrótarfélag- ið Litli klúbburinn í síðustu viku opnuauglýsingu í sjónvarpsvísinum Póstinum þar sem tillögur að land- fyllingum við Breið að hluta, Skarfa- vör og Steinsvör voru harðlega gagnrýndar. Hvetur Litli klúbbur- inn íbúa á Akranesi til að kynna sér málið og mótmæla 70 þúsund fer- metra uppfyllingu á svæðinu. Þá er önnur tillaga í drögum að nýju aðal- skipulagi fyrir 2013-2025 sem íbú- ar hafa mótmælt kröftuglega. Snýst það mál um breytta landnotkun á bakkanum við Langasand, frá Fax- abraut að útisturtunum, og lagt til að svæðið verði skilgreint fyr- ir verslun og þjónustu í stað þess að vera óhreift útivistarsvæði eins og það nú er. Jafnframt liggur fyrir að fjárfestir sem sótti í mars sl. um land fyrir veitingastarfsemi fékk vil- yrði umhverfis- og skipulagsnefnd- ar, sem bæjarstjórn staðfesti, fyrir að hefja vinnu við drög að nýju deili- skipulagi á bökkunum. Til þess að sú framkvæmd hefði getað orðið að veruleika hefði þurft að breyta að- alskipulagi Jaðarsbakka. Þessi ráða- gerð hefur fallið í grýttan jarðveg meðal íbúa við Jaðarsbraut, frá Fax- abraut að íþróttasvæðinu við Jaðar- sbakka. Í kjölfar þess að málið var kynnt boðuðu þeir til fjölmenns íbúafundar og réðu lögmannsstof- una Lex til að gæta hagsmuna sinna gagnvart fyrirliggjandi tillögum til breytinga á deili- og aðalskipu- lagi við Jaðarsbakka. Mótmæli íbúa voru send bæjaryfirvöldum fyrir til- skilinn frest 13. júní sl. Tekið verður tillit til athugasemda íbúa Guðmundur Páll Jónsson, formað- ur bæjarráðs Akraness, segir í sam- tali við Skessuhorn að brugðist verði við gagnrýni um bæði framan- greind mál enda sé það vilji bæjar- yfirvalda að skapa samhljóm fyrir þeim breytingum sem gerðar verða í landi bæjarfélagsins með breyttu aðalskipulagi. „Varðandi Jaðar- sbakkana er frestur til að skila inn athugasemdum nú liðinn. Ljóst er að komið hafa fram mjög sterk rök íbúa við Jaðarsbraut gegn fyrirliggj- andi hugmyndum um breytta land- notkun og reyndar frá öðrum bæj- arbúum einnig sem nýta svæðið til útivistar.“ Guðmundur Páll segir að bæjaryfirvöld geti ekki annað en lit- ið til þessara athugasemda. „Það er hvorki vilji né ætlun bæjaryfirvalda að höfða stríð gegn íbúum, né held- ur að bærinn skapi sér skaðabóta- skyldu gagnvart hugsanlegu verð- falli fasteigna sem af þessum breyt- ingum gætu hlotist. Þetta mál mun fara fyrir bæjarstjórn með lögform- legum hætti en ég get upplýst að samkvæmt þeim óformlegu samtöl- um sem ég hef átt við aðra bæjarfull- trúa verður ekki mælt með að þessi breyting nái fram að ganga á aðal- skipulagi Jaðarsbakka. Við tökum að sjálfsögðu tillit til framkominna at- hugasemda og mér sýnist vera nær hundrað prósent andstaða við mál- ið meðal íbúa sem næst liggja Jaðar- sbökkum,“ segir Guðmundur Páll í samtali við Skessuhorn. Hann tek- ur þó fram að umhverfis- og skipu- lagsnefnd og síðan bæjarstjórn eigi eftir að taka málið til formlegrar af- greiðslu og verði það gert við fyrsta tækifæri. Ekki sama þörfin til staðar Varðandi gagnrýni við fyrirhugaða landfyllingu frá Breið og að Akra- neshöfn, sem auglýst er sem hluti af nýju aðalskipulagi, segir Guðmund- ur Páll viðbrögð sín þau að ekki sé þörf á svo mikilli landfyllingu sem fram komi í tillögunni. Hann skilji því áhyggjur Litla klúbbsins og annarra vegna málsins. „Fyr- irsjáanleg þörf fyrir svo mikið nýtt land er ekki lengur til staðar og því er ástæða til að draga úr þeim hug- myndum í nýju aðalskipulagi. Þeg- ar aðalskipulag verður auglýst með formlegum hætti vænti ég þess að komnar verði fram breytingar sem draga verulega úr umfangi landfyll- ingar frá Breið að Akraneshöfn,“ segir Guðmundur Páll. Við þetta má bæta að nýverið var vígð ný og stór frystigeymsla HB Granda við Norðurgarð í Reykjavík. Á þeim tímapunkti sem Faxaflóahafnir og skipulags- yfirvöld á Akranesi ráðgerðu hina miklu landfyllingu ásamt Skarfa- tangahöfn, var gert ráð fyrir að landvinnsla HB Granda flyttist að nær öllu leyti á Akranes. Frá því var hins vegar horfið eins og menn þekkja og kristallaðist með- al annars í að ný frystigeymsla HB Granda hefur nú verið byggð í Reykjavík. hlh Svæðið frá Breið og að Akraneshöfn þar sem gert er ráð fyrir um sjö hektara land- fyllingu samkvæmt drögum að nýju aðalskipulagi. Sterk viðbrögð íbúa við tveimur þáttum í aðalskipulagi fyrir Akranes Svæðið sem um ræðir á Jaðarsbökkum þar sem hugmyndir voru um að breyta landnotkun. Deilt á framgöngu Borgarfjarðarstofu vegna ritunar sögu Borgarness Svipmynd frá Fjórðungsmótinu á Kaldármelum 2009. Ljósm. mgk. Nú þarf bara veðrið fyrir gott Fjórðungsmót

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.