Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Meðal kennslugreina jarðfræði, efnafræði og stærðfræði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat. Leitað er að kennara sem hefur frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is. Umsóknarfrestur er til 6. júlí 2013. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 891-7384. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann. Skólameistari Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennara Sumarlesari vikunnar Nafn: Nikulás Nói Bjarnason. Aldur: 11 ára. Hvenær lestu? Á kvöldin og yfir daginn. Áttu uppáhalds bók? Hob- bitinn. Áttu einhvern uppáhalds höf- und? J.R.R Tolkien. Hvaða bók lastu síðast? Spi- derwick. Viltu mæla með einhverri bók fyrir aðra krakka að lesa? Bara Spiderwick! Sumarlestur á Bókasafni Akraness Nú þegar grunnskóla lýkur, hefst Sumarlestur fyrir börn á Bókasafni Akraness. Sumarlest- urinn hófst 3. júní sl. og stend- ur til 9. ágúst. Verkefnið er mið- að að 6 -12 ára börnum og hef- ur það að markmiði að hvetja til yndislesturs og viðhalda þannig og auka við þá lestrarfærni sem börnin hafa öðlast yfir vetur- inn. Lestur eflir málþroska, bæt- ir orðaforða, eykur þekkingu, auðveldar nám og örvar ímynd- unaraflið. Þegar börnin skrá sig til þátttöku fá þau afhenta lestrardagbók. Í hana skrá þau þær bækur sem þau lesa í sum- ar. Börnin fá stimpil í dagbókina sína og „bókamiða“ til að festa í „netið”, fyrir hverja lesna bók. Lestrinum lýkur formlega 14. ágúst með „Húllum-hæi“ hátíð í Bókasafni Akraness, þar sem farið verður í ratleik og fleira skemmtilegt. Nokkrir heppn- ir þátttakendur verða dregnir úr þátttökupottinum og hljóta glaðning frá styrktaraðilum. Nikulás Nói Bjarnason. Síðastliðin sumur hefur staðið yfir björgunaruppgröftur við gamla verbúð frá 15. öld á Gufuskálum á Snæfellsnesi þar sem hópur forn- leifafræðinga frá Íslandi og utan úr heimi hefur unnið hörðum hönd- um við að bjarga fornminjum frá niðurrofi sjávar. Fornleifafræðing- urinn Lilja Björk Pálsdóttir hefur stýrt verkefninu frá því það hófst árið 2008. Fyrsta verk fornleifa- fræðinganna var að þessu sinni að færa gífurlegt magn af sandpok- um frá rannsóknarsvæðinu sem þau settu niður síðasta haust til að verja uppgröftinn fyrir ágangi vetr- arbrims. Að því loknu hófst verk- ið. „Nú byrjum við þar sem frá var horfið í fyrrasumar. Nokkrir eru í eldhúsinu sem var og ganginum og ég er að byrja á herbergi sem kom frekar seint í ljós í fyrra. Þar er ég að tína hrun og grjót úr herberginu sem hafði á einhverjum tímapunkti verið lokað,“ segir Lilja. Mikið rof hefur átt sér stað á verbúðinni frá því Lilja byrjaði að fylgjast með svæðinu. „Frá síð- asta sumri eru 60-70 og jafnvel 80 sentímetrar af jarðvegi horfnir. Frá því ég byrjaði að fylgjast með svæð- inu og mæla þetta nákvæmlega árið 2008 eru 2,5 metrar farnir á köfl- um,“ segir Lilja. Einnig segist hún víða sjá mun á landinu frá því hún var á svæðinu síðast fyrir rúmum mánuði. Fundu hryggjarlið úr hval Markmiðið er að ljúka við uppgröft- inn í verbúðinni í sumar en Lilja er ekki viss um að það náist sökum þess að nú fékkst minna fjármagn en áður til verksins. Lilja segir þó stefnt að því að stunda rannsóknir á Gufuskálum næstu ár, þótt fram- haldið fari eftir fjármagni. Fornleif- arfræðingarnir eru alls níu að þessu sinni en þeir voru þrettán síðasta sumar. „Til verksins fékkst styrkur frá Fornminjasjóði. Nú hefur bæst við kona sem er fornleifarfræðingur og mun hún skrá minjar við strönd- ina. Hún mun ganga fjöruna frá Skarðsvík inn að Klettsvík og skrá- setja uppsátrin sem eru víðsvegar við Gufuskálavörina,“ segir Lilja. Fyrir rúmum mánuði kom Lilja á uppgraftarsvæðið með dönskum rofsérfræðingi sem var að skoða sig um og ráðleggja henni. Þá rak hún augu í kambsbrot sem lítur út fyr- ir að vera gert úr rostungstönn. Í fyrra fannst teningur úr rostungs- önn. Nú er byrjað að grafa könn- unarskurð í gegnum bæjarhólinn í verbúðinni. Þar kom í ljós eitthvað sem gæti verið endir á ár úr viði. Einnig hefur fundist þar hryggj- arliður úr stórum hval. Nú verður spennandi að vita hvað uppgröftur sumarsins mun leiða í ljós. sko Landið hverfur undan verbúðinni Nauðsynlegt er að mæla og skrásetja allan uppgröft áður en hafist er handa. Á þessu svæði hefur landið hörfað um allt að 2,5 metra frá 2008. Til hægri á myndinni er Írskrabyrgi sem skemmdist í desember síðastliðnum. Í sumar verða níu manns að vinna við uppgröftinn. Þegar fornleifafræðingar mættu fyrst á svæðið hafði sjórinn tekið mikið af sand- pokum og grjóti og dreift niður að sjávarmálinu. Á þessu korti eru teiknaðar línurnar á landbroti frá því mælingar hófust árið 2008. Hér sést hvernig rofið fer með mannvirki í skurði sem verið er að grafa upp. Inn- gangurinn er í skurðinum en restin af mannvirkinu er í rofi og við það að hverfa.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.