Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 15
15FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Íbúafundur um þjóðlendumál Borgarbyggð boðar til íbúafundar um þjóðlendumál í félagsheimilinu Brún mánudagskvöldið 24. júní n.k. Fundurinn hefst kl. 20.30. Á fundinum verður farið yfir þá vinnu sem unnin hefur verið á vegum Búnaðarsamtaka Vesturlands og Borgarbyggðar vegna væntanlegra krafna ríkisins um þjóðlendur í Borgarbyggð og hvernig rétt sé að halda á málum þegar kröfur ríkisins koma fram. Allir velkomnir Borgarbyggð S K E S S U H O R N 2 01 3 Auglýsing um starfsleyfi Samkvæmt ákvæðum 9. og 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, er hér með lýst eftir athugasemdum við starfsleyfistillögur fyrir tvö starfsleyfi í Borgarbyggð; Fiskþurrkun Þurrfisks ehf. á Refsstöðum, Hálsasveit. Sláturhús Sláturhúss Vesturlands í Brákarey. Starfsleyfistillögurnar liggja frammi á skrifstofu Borgarbyggðar í Ráðhúsinu í Borgarnesi á opnunartíma á tímabilinu 20. júní til 18. júlí 2013. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands (heilbrigdiseftirlit@vesturland.is). Athugasemdir við starfsleyfistillögurnar skal senda skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að Innrimel 3, 301 Akranes í seinasta lagi 19. júlí 2013 og skulu þær vera skriflegar. Athygli skal vakin á því að starfsleyfi er ekki gefið út fyrr en samþykkt deiliskipulag liggur fyrir. Heilbrigðisnefnd Vesturlands Foreldrar eru bestir í for vö rn um . Forvarnarhópur Borgarbyggðar Sumarið er tíminn Saman í sundi, saman í tjaldi, saman að ganga, saman að grilla, saman að veiða, saman að spila, saman að syngja, saman í sportinu, saman á hestbaki. Samver a foreldra og ung linga er besta forvörnin S K E S S U H O R N 2 01 3 Ljómalind - sveitamarkaður Sólbakka 2, Borgarnesi S: 437-1400 Opið mánudaga-fimmtudaga frá kl. 10-18, föstudaga frá kl. 10-19 og um helgar frá kl. 11-16 Snemma í vor vann Samson Bjarn- ar Harðarson landslagsarkitekt til- lögur um endurbætur á Skalla- grímsgarði í Borgarnesi. Tillögurn- ar vann Samson fyrir Borgarbyggð og voru þær lagðar fram í skýrslu- formi til umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd í apríl. Nefndin tók þá ákvörðun að kynna tillögurnar fyrir íbúum áður en ákvörðun um að hefja framkvæmdir yrði tekin. Nú hefur verið ákveðið að kynning þeirra fari fram í Skallagrímsgarði fimmtudaginn 27. júní nk. kl. 16 þar sem Samson mun fara yfir til- lögur sínar og kynna þær fyrir íbú- um. Í samtali við Skessuhorn sagði Samson að um fyrstu tillögur sé að ræða. Tillögurnar eru þó ekki fast- mótaðar og enn í mótun. Í skýrslunni segir Samson að markmið breytinganna sé að ná aftur fram þeim grunnþáttum sem einkenndu Skallagrímsgarð í marga áratugi, svo sem grunnform hans, stígakerfi og skrúðgarðayfirbragð. Að hans mati er ástand garðsins ekki í samræmi við þær væntingar sem gerðar eru til aðalskrúðgarðs bæjarins, einkum vegna þess að trjágróður hans er orðinn of mik- ill. Gróður er ýmist of þéttur og of hávaxinn þannig að skuggamyndun er orðinn meiri en góðu hófu gegn- ir. Þessi mikla skuggamyndun rýr- ir verulega vaxtarskilyrði lágvaxnari skrautgróðurs og grasflata auk þess sem hann gerir garðinn ófýsilegri til dvalar fyrir fólk. Þéttur trjágróð- ur hindrar einnig yfirsýn yfir garð- inn og það flæði og aðgengi sem æskilegt er í almenningsgarði. Grisjun hefjist í ár Til að ráða bót á þessu ástandi legg- ur Samson til ýmsar aðgerðir sem unnið verði að fram til ársins 2018. Í fyrsta áfanga er lagt til að ráðist verði í grisjun og endurgróðursetn- ingu. Lagt er til að grisjað verði allt að helmingur trjáa í garðinum sem þó verður dreifð yfir næstu þrjú ár til að viðbrigðin verði minni. Á þessu ári er lagt til að slökustu trén í garðinum verði felld, að grisjað verði úr aspargöngunum í miðju garðsins um ríflega helming auk trjábeðs í innri hluta garðsins og að reyniviðarröð í norðaustur mörk- um garðsins verði felld. Í staðinn verði gróðursett tré sem ekki yrðu of stórvaxinn, svo sem íslenskur reyniviður eða skrautreynir. Sam- son segir að mörg tré í garðinum séu farin að láta á sjá vegna aldurs og þurfi að grisja þau, bæði til að lofta um milli þeirra og til að planta nýjum í staðinn. Fjölmargar aðrar tillögur til endurbóta eru lagðar til í skýrslunni t.d. endurgerð styttu eftir Guðmund frá Miðdal í gos- brunni garðsins, endurnýjun hellu- lagna, að viss svæði garðsins ein- kennist af ákveðnum plöntugerð- um og að bekkir, ruslafötur og önn- ur garðagögn verði samræmd. Merk saga Óhætt er að segja að Skallagríms- garður sé Borgnesingum afar kær en garðurinn er einn aðalsam- komustaður heimamanna og helsti áningarstaður gesta. Garðurinn er kenndur við landnámsmann hér- aðsins, Skallagrím Kveld-Úlfsson á Borg, sem þar var heygður í Skalla- grímshaug samkvæmt Egils sögu. Haugurinn er eitt helsta kennileiti garðsins. Upphaf garðsins má rekja aftur til fjórða áratugar síðustu ald- ar þegar félagar í Umf. Skallagrím og Kvenfélagi Borgarness hófu að byggja hann upp. Félögin keyptu land undir elsta hluta garðsins árið 1930 en hófu að planta fyrstu plöntunum árið 1932. Árið 1938 tók Kvenfélagið við garðinum og sinnti honum allt þar til Borgar- nesbær tók við honum árið 1989. Garðurinn á því yfir áttatíu ára sögu að baki og er því með elstu al- menningsgörðum landsins. hlh Tillögur að endurbótum á Skallagrímsgarði kynntar fyrir íbúum Skallagrímsgarður árið 1975. Ljósm. Kvenfélag Borgarness. Skallagrímsgarður í dag. Myndin er tekin á 17. júní hátíðar- höldum í garðinum á mánudaginn. Ljósm. hlh. „Endanlegt mat á varpárangri hjá erninum fer ekki fram fyrr en í byrj- un júlí þegar ungarnir eru orðnir stálpaðir, enda verða töluverð afföll á litlum ungum. Við getum því ekki tjáð okkur frekar um málið þang- að til, en eins og sakir standa eru bestar horfurnar við sunnanverð- an Breiðafjörð, sunnan Klofnings, en þar urpu í vor 22 af 26 pörum sem vitað er um á því svæði,“ seg- ir Kristinn Haukur Skarphéðins- son líffræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun. Kristinn fór á dögunum að kanna varpsvæðin á Vesturlandi og Vestfjörðum ásamt Róberti Stef- ánssyni hjá Náttúrustofu Vestur- lands, en tveir þriðju hlutar arnar- stofnsins í landinu heldur sig við Breiðafjörð. Í vor er vitað að 47 arnarpör urpu af um 70 á landinu öllu, en ern- ir verpa yfirleitt á tímabilinu 10.- 25. apríl. Að sögn Kristins Hauks eru um þetta leyti því litlir ungar í hreiðrum, en álegan er um fimm vikur og ungar því að klekjast úr eggjum frá um 15. maí til 1. júní. „Í ár er reyndar vitað um nokkur pör sem urpu óvenju seint, það er eftir 1. maí. Þegar best lætur verpa að- eins um 80% arnarpara hér á landi og er hátt hlutfall „geldpara“ eitt af einkennum íslenska arnarstofns- ins. Í ár var þetta hlutfall geldpara óvenju hátt við Faxaflóa og eins við norðanverðan Breiðafjörð. Þann- ig að þegar í vor var ljóst að horf- urnar væru ekki góðar fyrir arnar- varp á þeim slóðum,“ segir Krist- inn Haukur. Hann segir að þegar arnarstofninn var hvað fáliðaðastur upp úr miðri síðustu öld voru arn- arpör við sunnanverðan Breiðafjörð aðeins fjögur. Á tímabili urpu eng- ir ernir við Faxaflóa þar sem pörin eru nú 15. Sérfræðingar Náttúru- Arnarvarpið lítur best út við sunnanverðan Breiðafjörð fræðistofnunar Íslands og Náttúr- stofu Vesturlands munu þegar líð- ur á júní fara í aðra skoðunarferð á varpstöðvar við Breiðafjörð og í júlímánuði merkja fugla í hreiðr- um. þá

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.