Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.277 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 1.980. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Samúel Karl Ólason, blaðamaður sko@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Sækjum ekki vatnið yfir lækinn Minn uppáhalds árstími er framundan. Jónsmessan og ekki síður morgun- dagurinn þegar sumarsólstöður eru. Ef veður er heiðskírt er fátt ánægju- legra en að koma sér upp á hæsta fjall og fylgjast með því þegar sólin sest við sjóndeildarhringinn, en rís nánast strax upp aftur og boðar komu næsta dags. Við Íslendingar erum ríkari en aðrar þjóðir sem ekki geta notið slíkra augnablika. Þar sem hásumar hér á landi er tíminn sem flestir ættu að njóta útiveru, fremur en sitja langdvölum yfir blaðalestri, ætla ég að hafa þennan pistil í styttra lagi. Ég ætla hins vegar að benda á hversu margt jákvætt er í gangi hér í kringum okkur sem vert er að gefa gaum. Eins og til dæmis: Á þessu sumri bendir allt til þess að grasið á flötum og túnum á Vesturlandi verði þéttara og betur vaxið en í öðrum landshlutum, heyfengur verður því vonandi með besta móti hjá bændum en það er undirstaða betri afkomu. Ferðþjónustufyrirtækjum hefur fjölgað mikið um allt Vesturland og auk- in breidd er að færast í greinina. Sem betur fer eru sífellt fleiri sem trúa á framtíð og vöxt ferðaþjónustu. Að öðrum ólöstuðum er Borgarnes með vinninginn þetta árið í fjölda nýrra fyrirtækja. Fjölmörg ný störf hafa þar orðið til á síðustu mánuðum. Byrjað er að veiða hval á nýjan leik og hátt í 200 manns fá vinnu og aukin verkefni meðan á veiðum og vinnslu stendur. Fögnum því að útgerðin hafi trú á að hægt sé að selja kjötið. Rithöfundar eru verðlaunaðir fyrir störf sín. Borgarlistamaður ársins er Ólsarinn Þorgrímur Þráinsson og Skagamenn heiðruðu Sigurbjörgu Þrast- ardóttur og gerðu að bæjarlistamanni. Laxveiði í ánum okkar byrjar óvenjulega vel. Ánægjulegt í ljósi barlóms vegna slakrar veiði á síðasta ári. Laxar koma bústnir og sællegir úr sjó og veiðimenn brosa allan hringinn. Tvöföldun íbúatölu verður á Akranesi nú um helgina þegar nokkur þús- und gestir koma þangað vegna pollamóts í knattspyrnu. Bærinn mun iða af lífi og metnaður er jafnan lagður í að taka sem best á móti gestunum. Slíkt er besta auglýsing sem sérhvert bæjarfélag getur fengið. Afþreying t.d. í formi listviðburða er af ýmsu tagi; tónleikar, myndlist- arsýningar, skipulagðar gönguferðir, íþróttakappleikir og sitthvað fleira er ríkur þáttur í menningu okkar sumar sem vetur. Á næstu misserum er eng- in undantekning frá þeirri reglu og má víða finna þess merki við lestur Skessuhorns í dag sem og undanfarnar vikur. Skólar á öllum skólastigum á Vesturlandi eru nú að fara í frí, ef undan eru skilin sumarnámskeið sem fram fara við háskólana. Á undanförnum miss- erum hefur mér þótt áberandi að mikill metnaður hefur verið lagður í fag- legt starf þessara skólastofnana og menn ekki hikað við að brydda upp á nýjungum. Ég ætla ekki að nefna eitt dæmi til að skyggja á annað, en þakka því góða fólki sem þarna starfar og gefur börnum og ungmennum tækifæri til framúrskarandi menntunar í heimabyggð. Að mínu mati er þetta mikil- vægasta forsenda góðrar búsetu. Kæru lesendur! Njótum sumarsins nú þegar sólin yljar hvað lengst. Nýt- um okkur líka þjónustu í formi afþreyingar, listviðburða, tilboð veitinga- staða og hvaðeina sem auðgar lífið og tilveruna. Sækjum ekki vatnið yfir lækinn. Magnús Magnússon. Leiðari Í síðustu viku fór fram kynbóta- sýning á Miðfossum í Andakíl. Byrjaði hún á mánudaginn og stóð fram á laugardag. Um 230 hross voru sýnd en töluverður hluti þeirra fór einungis í bygg- ingardóm. Hæst dæmda hross sýningarinnar var Fura frá Hellu, 6 vetra undan Eldjárn frá Tjald- hólum. Fura er klárhryssa en hún hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið, en það var Guðmundur Björgvinsson sem sýndi hryssuna. Nú eru 72 kynbótahross komin inn á Fjórð- ungsmót en þó er ekki víst að all- ir eigendur þeirra nýti sér rétt sinn. iss Bændur á nokkrum stöðum á Vest- urlandi hafa nú byrjað slátt. Svo virðist sem ágæt spretta sé á tún- um miðað við árstíma og gott út- lit fyrir að heyfengur verði í að minnsta kosti góðu meðallagi. Þá lítur út fyrir að sendin tún komi vel út að þessu sinni ef marka má t.d. melatúnin stóru í Kolbeinstaða- hreppnum sem eru kafloðin og líta prýðilega út. Vætutíð í vor er for- senda þess sem og hlýtt veður eftir mánaðamótin. Á ferð blaðamanns um landshlutann um liðna helgi var að sjá að spretta væri víða all- góð. Þannig eru friðuð tún og ný- ræktir t.d. í uppsveitum Borgar- fjarðar, á sunnanverðu Snæfells- nesi, í Innri Akraneshreppnum og víðar ágætlega sprottin. Frést hef- ur af nokkrum bændum sem byrj- aðir eru slátt, svo sem á Miðjanesi í Reykhólasveit, á Steindórsstöðum í Reykholtsdal og Signýjarstöðum í Hálsasveit og Vestri Reyni í Hval- fjarðarsveit. Gera má ráð fyrir að almennt hefji bændur fyrri slátt af krafti í þessari viku eða um leið og útlit er fyrir þurrk. mm Flokkur frá Björgunarfélagi Akra- ness fór sl. laugardagsmorgun til leitar að minkabananum úr Skaga- firði, sem féll í Hjaltadalsá til móts við bæinn Viðvík þriðjudaginn 11. júní sl. Hans hefur síðan verið leit- að af björgunarsveitum sem einkum komu af stóru svæði norðan heiða. Ástæðan fyrir því að flokkurinn frá Björgunarfélagi Akraness fór norð- ur var sú að sveitin býr yfir leitar- sónar sem myndar botn áa og vatna. „Við skönnuðum ósinn og eyrarnar eins vel og mögulegt var. Áin hafði sjatnað og skilyrði til leitar betri en voru fyrr í vikunni. Vatnsborð ár- innar hafði t.a.m. lækkað um 20 sentimetra frá því deginum áður,“ sagði Guðni H Haraldsson hjá BA. Leitin að manninum hefur enn engan árangur borið. þá Tveir Vestlendingar fara á Heims- meistaramót íslenska hestsins sem fram fer í Berlín í Þýskalandi fyrri hluta ágústsmánaðar. Eftir HM- úrtöku í síðustu viku og glæsi- legt Gullmót sem lauk á sunnu- daginn, hafa sjö knapar tryggt sér sæti í liðinu. Þar af eru Jakob Svav- ar Sigurðsson úr Dreyra á Al frá Lundum II, sem reyndist stiga- hæsti fimmgangshesturinn í úrtöku og Flosi Ólafsson úr Faxa á Möll- er frá Blesastöðum, stigahæsti tölt- ari í ungmennaflokki í úrtöku. Þá hafa tveir til viðbótar úr þessum níu manna hópi sterka tengingu á Vesturland og þar sem þjóðremb- ingur er nú að færast í tísku er sjálf- sagt mál fyrir Vestlendinga að rekja tengingar góðra knapa á svæðið. Það er þeir Eyjólfur Þorsteinsson, ættaður frá Þingnesi, en hann er ríkjandi heimsmeistari í fjórgangs- greinum og Hinrik Bragason sem ólst upp í Borgarnesi sem keppir í tölti á Smyrli frá Hrísum. Auk þessara fjögurra knapa hafa tryggt þátttöku sína á HM í Berl- ín: Viðar Ingólfsson og Hrannar frá Skyggni, stigahæsti fjórgang- ari í úrtöku, Arnar Bjarki Sigurðar- son á Arnari frá Blesastöðum, stiga- hæsti fimmgangari í ungmenna- flokki í úrtöku, Arna Ýr Guðna- dóttir á Þrótti frá Fróni, stigahæsti fjórgangari í ungmennaflokki í úr- töku og Teitur Árnason á Jökli frá Efri-Rauðalæk, fimmti hestur skv. lykli að vali liðsins, ásamt Jóhanni Rúnari Skúlasyni ríkjandi heims- meistara í tölti og Bergþóri Egg- ertssyni ríkjandi heimsmeistari í 100m skeiði. þá Kort af leitarsvæðinu við Kolkuós. Tóku þátt í leit í Skagafirði Níumenningarnir ásamt landsliðseinvöldum, sem fara á HM. Vestlendingarnir Þorsteinn lengst til vinstri, Jakob Svavar fjórði frá vinstri, Hinrik í miðjunni og Flosi þriðji frá hægri. Ljósm. Bjarnleifur Á. Bjarnleifsson Vestlendingar sterkir inn á heimsmeistaramót Agnar Þór Magnússon á Sigyn frá Steinnesi. Á þriðja hundrað hross á kynbótasýningu Gústaf Jökull Ólafsson hóf slátt sl. laugardag í Miðjanesi. Ljósm. Reykhólavefurinn. Sláttur hafinn í sveitum á Vesturlandi Símamynd frá nýslegnu túni og heyi í görðum á Signýjar- stöðum í Hálsasveit. Ljósm. pj.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.