Skessuhorn - 20.06.2013, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf. og aðaleigandi, var að sjálfsögðu
mættur á bryggjuna þegar Hvalur 8
kom að landi á þriðjudaginn. „Mér
líst vel á upphaf vertíðarinnar. Þetta
er ágætis hvalur sem er að koma
hérna. Við eigum eftir að sjá hvern-
ig allt lítur út þegar hann er kominn
upp planið. Mikill veltingur á leið-
inni getur haft áhrif á gæði kjöts-
ins en það þarf ekkert að vera. Það
er ómögulegt að sjá það fyrr en við
förum að verka kjötið. Við frystum
allar hvalaafurðir sem við getum og
restin fer svo í mjöl og lýsi. Lýs-
ið notum við fyrst og fremst sjálf-
ir sem eldsneyti og kyndum gufu-
katla hvalbátanna með því að ein-
um fimmta hluta á móti svartolíu.“
Kristján segist ekkert vita frekar
en aðrir um framtíð hvalvertíðar-
innar þetta sumarið. „Ég veit ekkert
um hvernig vertíðin á eftir að ganga
þetta fer bara eftir veðri og vindum,
eins og önnur sjómennska,“ sagði
Kristján. Hann gaf lítið út á mót-
mælin sem voru ofan við hvalstöð-
ina og sagði þau hefðbundin. Yfir-
leitt væri þetta sama fólkið ár eftir
ár og munurinn væri bara sá að það
væri ári eldra nú en í fyrra og þrem-
ur árum eldra en þegar síðasta ver-
tíð var. Á mótmælaborðum í brekk-
unni mátti sjá áletrunina „Hval-
ur er ekki hundafæði“ og sagðist
Kristján lítið geta sagt um það hvað
gert væri við kjötið eftir að það
væri selt frá Íslandi frekar en fisk-
inn sem við flyttum út. Það var létt
yfir Kristjáni þennan dag eins og
starfsmönnum hans og nágrönnum
í Hvalfirðinum.
hb
„Mér líst vel á byrjunina“
-segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf.
Kristján Loftsson á bryggjunni í Hvalfirði
Árni Finnsson formaður Náttúr-
verndarsamtaka Íslands var, ásamt
nokkrum öðrum hvalfriðunarsinn-
um og fólki merktu hvalaskoðunar-
fyrirtæki í Reykjavík, að bíða þess að
hvalbáturinn kæmi að landi, þegar
blaðamaður hitti hann að máli. Að-
spurður um hvernig honum litist
á að hvalveiðar væru hafnar, sagði
Árni að sér litist þannig á að þörfin
til að veiða væri enginn því enginn
markaður væri fyrir þetta kjöt í Jap-
an. „Í fyrra seldi Hvalur hf. um 870
tonn til Japan héðan frá Íslandi en
heildarmarkaðurinn var um 3.500
tonn. Ef allar 154 langreyðarnar
verða veiddar núna þá eru það um
1.850 tonn sem er rúmlega tvöföld-
un á því sem seldist í fyrra, þannig
að þetta gengur bara ekki upp sama
hvernig á það er litið.“
Árni gefur lítið út á að þörf sé
fyrir hvalveiðar til að halda jafn-
vægi í hafinu. „Ef að á halda ein-
hverju jafnræði þá þurfa menn að
veiða úr öllum hvalastofnum en
ekki bara langreyði. Hún lifir að-
allega á svifi og það er nóg af því.
Það eru aðrar hvaltegundir, eins og
hnúfubakur, hér nær landi sem lifa
meira á fiski. Eru þá Íslendingar að
veiða hvali eins og meindýr til að
halda stofnum niðri? Það gengur
ekki.“ Árni sagðist ekkert geta sagt
um hvort allir 154 hvalirnir myndu
veiðast. „Ég hef svo lítið vit á sjó-
mennsku. Ef það verður gott veð-
ur þá nást þeir kannski enda veidd-
ust 148 hvalir árið 2010. Þetta er
sjálfsagt hægt en algjörlega til-
gangslaust. Það er nóg fyrir Krist-
ján Loftsson að senda sín skip á sjó
annað eða þriðja hvert ár til að ná í
það sem hann getur selt. Svo hef-
ur nú komið fram að það er mik-
il óánægja meðal hluthafa Hvals hf.
með tapreksturinn á þessum veið-
um. Það verður lítil eftirspurn eftir
hlutabréfunum ef á að eyða pening-
unum í svona vitleysu,“ sagði Árni
Finnsson formaður Náttúruvernd-
arsamtakanna. hb
„Þetta eru þarflausar veiðar“
-segir Árni Finnsson formaður
Náttúrverndarsamtaka Íslands
Fyrsta langreyðurin á nýhafinni
hvalvertíð kom á land í Hval-
firði um fjögurleytið á þriðjudag-
inn. Það var Hvalur 8 sem kom
þá með tarf, um 20 metra lang-
an, sem reyndir menn í Hvalstöð-
inni sögðu vera í stærri kantinum.
Dýrið fékkst djúpt út af Faxaflóa í
um 160 sjómílna fjarlægð frá landi.
Leiðindaveður hefur verið á mið-
unum síðustu daga og frekar lítið
skyggni. Hinn hvalbáturinn, Hval-
ur 9, sem fór til veiða um leið og
Hvalur 8 hélt á sjó á miðunum og
beið betra veðurs. Í gærmorgun
var Hvalur 9 búinn að veiða einn
hval og var að eltast við annan.
Fjölmenni var á bryggjunni við
Hvalstöðina í Hvalfirði þegar hval-
veiðibáturinn lagðist að bryggju og
bar þar mest á fjölmiðlafólki. Einn-
ig voru þar heimamenn úr Hval-
fjarðarsveit og nokkrir sem áður
höfðu komið að hvalveiðum- og
vinnslu. Almenn ánægja var með-
al heimamanna um að veiðar væru
hafnar á ný og að iðandi mannlíf
yrði í Hvalfirðinum. Upp í brekk-
unni, utan girðingar, var svo hóp-
ur fólks að fylgjast með og með-
al þeirra voru nokkrir með mót-
mælaborða sem á stóð „Hvalur
er ekki hundafóður.“ Einn gamal-
reyndur starfsmaður Hvals sagði,
þegar hann sá mótmælaborð-
ana í brekkunni, að nú væri hann
Fyrsti hvalur ársins kominn á land í Hvalfirði
Fjölmenni fylgdist með þegar Hvalur 8 kom til hafnar
innilega sammála mótmælend-
um. Hvalkjöt væri allt of gott fyrir
hunda, eða eins og gamla máltækið
segði: „Þar fór góður biti í hunds-
kjaft.“ Talsvert af útlendum ferða-
mönnum fylgdist líka af áhuga
með úr brekkunni og var greini-
legt að þeim hafði verið kunnugt
um komu hvalbátsins. Í Ferstik-
luskálanum var stór hópur ferða-
manna sem skoðaði hvalveiðasýn-
inguna sem þar er uppi. Áhuginn
virtist því mikill á þriðjudaginn
fyrir komu fyrsta hvalsins á sumr-
inu í Hvalfjörðinn.
Skapar mikla vinnu
Hvalur hf. miðar við að störfin
vegna hvalvertíðarinnar séu 150
plús, eins og einn verkstjórinn
sagði. Hins vegar er óhætt að segja
að hátt í tvö hundruð manns komi
að hvalveiðum og vinnslu á ein-
hvern hátt. Flestir vinna í landi við
vinnslu í Hvalfirði og hliðarstörf
tengd henni, eða 90. Á Akranesi
vinna ríflega 30 við vinnsluna og í
Hafnarfirði 15-20 manns í frysti-
húsi. Í áhöfnum bátanna eru svo
26 menn. Hvalveiðarnar skapa því
mikla vinnu yfir vertíðina en auk
þess sem þegar er upptalið vinna
margir iðnaðarmenn frá Akra-
nesi og Hafnarfirði í Hvalfirðinum
fyrir vertíðina og meðan á henni
stendur. ÞÞÞ sér um alla flutninga
og er með bíla í ferðum með kjöt-
ið úr Hvalfirði til Akraness og það-
an til Hafnarfjarðar svo eitthvað sé
nefnt af þeim hliðarstörfum sem
við þetta skapast og viðkomandi
sveitarfélög njóta góðs af útsvar-
stekjunum. hb
Hvalur 8 kemur með fyrsta hval sumarsins að bryggju í Hvalfirði.
„Hvalur er ekki hundafóður“ stóð á mótmælaborða í brekkunni ofan hval-
stöðvarinnar.
Það var breitt brosið á þeim Magnús Þór Hafsteinssyni, sem kominn var í hval-
stöðvargallann, og Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf.