Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 31
31FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækk-
ar um 4,3% frá yfirstandandi ári og
verður 4.956 milljarðar króna, sam-
kvæmt nýju fasteignamati fyrir árið
2014 sem Þjóðskrá Íslands birti fyr-
ir helgina. Nýtt fasteignamat mið-
ast við verðlag fasteigna í febrúar
2013 og byggist á upplýsingum úr
þinglýstum kaupsamningum. Mat
125.700 íbúðaeigna á öllu landinu
hækkar um 4,3% frá árinu 2013
og verður samanlagt fasteignamat
þeirra 3.263 milljarðar króna í fast-
eignamatinu 2014. Matið hækkar
á 86,9% eigna en lækkar á 13,1%
eigna frá fyrra ári.
Heildarfasteignamat á höfuð-
borgarsvæðinu hækkar um 4,4%.
Matið á Suðurnesjum verður
óbreytt en annars staðar er hækk-
unin sem hér segir: 4,2% hér á
Vesturlandi, 5,4% á Vestfjörðum,
2,5% á Norðurlandi vestra, 5,7%
á Norðurlandi eystra, 4,8% á Aust-
urlandi og 5,8% á Suðurlandi, þar
sem hækkunin er mest. Af ein-
stökum sveitarfélögum hækkar fast-
eignamatið mest í Strandabyggð,
eða um 16,3% og um 10,1% í Vest-
mannaeyjum, en lækkar hins veg-
ar um 0,6% í Reykjanesbæ og um
0,3% í Grindavík. Á höfuðborgar-
svæðinu hækkar matsverð íbúða í
fjölbýli meira en mat íbúða í sér-
býli en utan höfuðborgarsvæðis-
ins er þessu öfugt farið. Þar hækkar
fasteignamat sérbýlis meira en mat
fjölbýlis.
Meiri hækkun á
leiguverði
Þjóðskráin hefur tekið saman leigu-
verð úr öllum þinglýstum leigu-
samningum íbúðarhúsnæðis frá
ársbyrjun 2011 og birt upplýsing-
ar um verð og vísitölubreyting-
ar frá ársbyrjun 2012. Frá ársbyrj-
un 2011 hefur leiguverð íbúðarhús-
næðis hækkað meira en kaupverð.
Þannig hækkaði vísitala kaupverðs
á höfuðborgarsvæðinu um 16%
en vísitala leiguverðs hækkaði um
21,5% frá janúar 2011 til maí 2013.
Í tilkynningu frá Þjóðskrá segir að
lögum samkvæmt eigi fasteigna-
mat að endurspegla markaðsverð-
mæti, staðgreiðsluverð, fasteign-
ar á hverjum tíma. Fasteignamat-
ið byggist á upplýsingum úr tug-
um þúsunda þinglýstra kaupsamn-
inga, sem gerðir hafa verið und-
anfarin ár, og tekur mið af mörg-
um ólíkum þáttum sem varða eig-
inleika og gerð hverrar fasteignar,
svo sem stærð, byggingarár, bygg-
ingarflokk, byggingarefni og stað-
setningu. þá/ Ljósm. Friðþjófur H.
Það eru ýmsar nýjungar sem vert-
arnir í Edduveröld í Borgarnesi
brydda upp á þessa dagana. Síðast-
liðinn laugardag var markaður, úti-
tónleikar IsNord og fleira í boði,
en um kvöldið var grillveisla. Í boði
var heilgrillaður grís sem fékk að
malla á grillinu frá hádegi. mm
Hljómsveitin Pascal Pinon mun
ferðast hringinn í kringum land-
ið í sumar og halda tónleika í fimm
kirkjum ásamt blásaratríói. Sunnu-
dagskvöldið 30. júní verður tónlist-
arfólkið með tónleika í Grundar-
fjarðarkirkju og hefjast þeir klukk-
an 20:00. Hljómsveitirnar munu
fyrst koma fram í sitthvoru lagi en
síðan saman. Leikin verða klassísk
verk í bland við frumsamin. Verk-
efnið hlaut styrk úr tónlistarsjóði
Kraums sem gerir það að verkum
að frítt er inn á alla tónleikana og
þeir sem hafa áhuga geta hlýtt á
hugljúfa og fallega tónlist í fallegu
umhverfi. mm
Um það bil tvö hundruð manns
mættu í verslunina Omnis á ráð-
gjafardag Símans sem haldinn var á
Akranesi sl. föstudag. Flestir gest-
irnir voru börn og unglingar, enda
var hoppukastali á staðnum og grill-
aðar pylsur í boði. Fjöldi fullorðinna
leituðu eftir aðstoð ráðgjafa Símans
sem stóðu vaktina í verslun Omn-
is og kynntu þjónustuframboð fyr-
irtækisins. Að sögn Sigurðar Svans-
sonar viðskiptastjóra endursölu-
samstarfs hjá Símanum tókst dag-
urinn í alla staði vel. „Þriðji flokk-
ur karla ÍA og foreldraráð flokksins
sá um að grilla fyrir okkur. Þau sáu
einnig um að allt gengi vel fyrir sig
í hoppkastalanum auk þess sem þau
gáfu öllum krökkunum markaðs-
vörur frá Símanum. Við kunnum
þeim okkar bestu þakkir fyrir.“
hlh
Hún er ekki góð umgengni Ak-
urnesinga um svæði sem stend-
ur þeim opið alla daga fyrir gar-
ðaúrgang við veginn upp með
Berjadalsá. Þar er skilti sem seg-
ir að svæðið sé eingöngu fyrir gar-
ðaúrgang og fólk beðið um að setja
ekki plastpoka eða annað í haug-
inn. Sérstakur gámur sé fyrir slíkt
við svæðið.
Þessi fyrirmæli virðast hundsuð
af bæjarbúum því þarna úir allt og
grúir af plastpokum, timbri, ónýt-
um húsgögnum, steypuklump-
um og fleiru. Þegar blaðamaður
Skessuhorns var þarna á ferðinni í
vikunni var gámurinn nánast tóm-
ur en stór haugur af fullum plast-
pokum við hliðina á honum. Eins
virðist sem þeir, sem sjá eiga um
svæðið, ryðji ekki nógu oft upp í
hauginn því hann náði orðið út á
veginn.
hb
Vátryggingafélag Íslands og knatt-
spyrnulið Grundarfjarðar gerðu með
sér samstarfssamning á dögunum og
því er VÍS orðið einn af styrktarað-
ilum Grundarfjarðarliðsins. Jón
Gunnlaugsson umdæmisstjóri VÍS á
Vesturlandi og Ragnar Smári Guð-
mundsson fyrirliði og stjórnarmaður
liðsins skrifuðu undir samninginn í
góðu yfirlæti í Grundarfirði. Það er
ljóst að þetta samstarf mun koma sér
vel fyrir báða aðila.
tfk
Pascal Pinol og blásaratríó
í Grundarfjarðarkirkju
Hægeldaður grís í heilu lagi
Þorgerður hlúir að grísnum.
Hér eru nokkrir starfsmenn Edduveraldar að bera kryddlög á grísinn; f.v. Arnar,
Þorgerður og Þórdís.
Góð stemning var á ráðgjafardegi Símans á Akranesi á föstudaginn.
Síminn hélt ráðgjafardag
á Akranesi
VÍS styður við
knattspyrnuna í
Grundarfirði
Fasteignamat hækkar um rúm
fjögur prósent
Slæm umgengni á svæði
fyrir garðaúrgang