Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Side 32

Skessuhorn - 20.06.2013, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Garðyrkjustöðvar landsins eru byrjaðar í óða önn að selja sum- arblómin í ár. Að sögn Sædísar Guðlaugsdóttur hjá gróðrarstöð- inni Gleym-mér-ei við Sólbakka í Borgarnesi fer blómasöluvertíð- in afar vel af stað. „Það er búið að vera góð aðsókn til mín það sem af er sumri, sérstaklega eftir að veðr- ið tók við sér. Stjúpurnar hafa t.d. selst mjög vel og styttist í að þær verði uppseldar. Slíkt hefur ekki gerst fyrr en um mánaðamótin júní-júlí. Þá fer hver að verða síð- astur til að ná sér í matjurtir, sala er einnig afar góð í þeim tegund- um,“ sagði Sædís um söluna það sem af er sumri. Hún segir við- skiptavini Gleym-mér-ei koma víða að og gerðu sem dæmi marg- ir Akurnesingar sér ferð til sín til að kaupa sumarblóm. Sumarbú- staðaeigendur eru einnig reglu- legir gestir sem og fólk á ferðinni um héraðið. hlh / Ljósm. mm. Um Jónsmessuna eða dagana 21. – 24. júní nk. verður útivistarhelgin „Gengið um sveit“ haldin í þriðja sinn í Reykhólahreppi. Um er að ræða lengri og styttri göngur und- ir leiðsögn sem ættu að hæfa öll- um aldurshóp- um. Föstudag- urinn er helgað- ur börnunum. Á Báta- og hlunn- indasýningunni verður börn- um boðið að láta teyma undir sér á hesti, einnig er ratleikur og farið í barnagöngu að Staðarfossi. Langa gangan þetta árið verður farin um Hallsteinsnes. Hún er 5-7 klukku- stunda löng og gefur mikla mögu- leika á að sjá haferni. Þar að auki eru margvíslegar göngur í boði. Hægt er að kaupa helgarpakka og fjölskyldupakka sem gefur 50% afslátt í sund í laugarnar á Reyk- hólum og í Djúpadal, í Þaraböðin hjá SjávarSmiðjunni á Reykhólum, á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum og á sýninguna hjá Össusetri Íslands í gamla Kaup- félaginu í Króks- fjarðarnesi. Þar mun Handverks- félagið Assa jafn- framt veita þeim sem taka þátt í göngunum 50% afslátt af kaffi og vöfflum. Þeir sem skrá sig í löngu gönguna eða í tvær stutt- ar fá einnig af- sláttinn. Frekari upplýsingar og verðskrá er hægt að sjá á Facebooksíðu gönguhelgarinnar undir nafninu Gengið um sveit og á www.visi- treykholahreppur.is. Hægt er að skrá sig í göngur hjá Hörpu Eiríks- dóttur í síma 940-1011 eða á net- fanginu info@reykholar.is. Hópur kvenna í Borg- arnesi hefur undan- farna tvo vetur hist með reglulegu milli- bili meðal annars til að þjálfa talfærni sína í ensku. Það er Ingibjörg Ingadóttir enskukenn- ari við Menntaskóla Borgarfjarðar sem átti frumkvæðið að kalla hópinn saman sem eig- inlega gerðist fyrir til- viljun. „Hugmyndin að því að hittast kom upp í átakinu Göngum saman fyrir tæpu einu ári. Þarna voru saman komnar marg- ar konur á öllum aldri og var rætt um ýmislegt á meðan göngunni stóð. Umræða kom upp um enskukunn- áttu meðal nokkurra í gönguhópn- um og heyrði ég sumar kvarta yfir því að þær hefðu aldrei fengið nægj- anlega þjálfun í munnlegri ensku og ættu fyrir vikið erfitt með að tjá sig, þó svo að þær skildu ensku nokkuð vel. Ég sagði við þær að það væru til fjölmargar leiðir til að bæta sig og varð úr að við hittumst nokkrar þar sem ég sýndi hvað væri hægt að gera, t.d. á netinu. Úr varð að við hitt- umst nokkrum sinnum og myndað- ist góð stemning í hópnum strax frá upphafi,“ segir Ingibjörg. Átta konur eru í hópnum, flestar á fimmtugs- og sextugsaldri. Allar hafa þær einhverja reynslu af enskri tungu og fjölbreytt- an námsbakgrunn, eru ýmist með gagnfræða- eða verslunarpróf. „Þegar við hittumst tökum við ým- islegt fyrir hendur. Til dæmis höfum við sungið saman þekkt lög á ensku og höfum þá textann fyrir fram- an okkur á YouTube, gert orðaforð- averkefni, lesið smásögur og bæk- ur og að sjálfsögðu spjallað saman á ensku,“ bætir hún við. Um leið eru fundir þeirra öðrum þræði mann- ræktarmót sem allir hafi ánægju af. Hún segir óformlegan vettvang sem þennan einna best heppilegan til að þróa talfærni í ensku en raunar er það þannig að flestir öðlast talþjálf- un á slíkum vettvangi. „Allir í hópn- um höfðu einhverja reynslusögu að segja þar sem viðkomandi hafði ým- ist hikstað í samræðum á ensku eða ekki komið upp orði. Í flestum tilvik- um hafi sú reynsla orðið til þess að margar hafa kosið að tala ekki neina ensku yfirhöfuð, í sumum til- fellum í mörg ár,“ seg- ir Ingibjörg sem telur afar mikilvægt að fólk prófi sig sífellt meira áfram til að þjálfa sig. „Ein í hópnum gat t.d. bjargað sér í verslunar- leiðangri í New York á dögunum og var hún ánægð með þá fram- för.“ Þegar blaðamað- ur Skessuhorns leit við á fundi hópsins sl. miðvikudag voru þar, auk Ingi- bjargar, Guðrún Helga Andrés- dóttir, Rebekka Þiðriksdóttir og Eygló Lind Egilsdóttir. Þær kváð- ust ánægðar með að fá tækifæri til að þjálfa enskukunnáttu á vettvangi sem þessum. „Aðaláherslan var lögð á að skrifa stíla á ensku þegar ég var í námi,“ segir Guðrún Helga, „og minni gaumur gerður að talmálinu. Það hefur vantað upp á og því hef- ur verið ánægjulegt að fá tækifæri til að æfa sig í hópi sem þessum.“ Und- ir þetta taka Eygló og Rebekka sem allar mæla með myndun hópa sem þessa. „Við finnum að við erum að bæta okkur hægt og bítandi. Þátttaka í hópnum virkar hvetjandi og því er þetta góð leið til að æfa sig betur í enskunni,“ segja þær að endingu. hlh Skúlagata 14 í Borgarnesi er eitt þeirra húsa sem setur sterkan svip á gamla bæinn. Það er á horni Skúla- götu og Egilsgötu, tvílyft eldra hús með sögu. Það var byggt seint á öðrum áratugnum og hýsti m.a. Sparisjóð Mýrasýslu allt frá 1920 til 1962 að flutt var í nýtt hús- næði að Borgarbraut 14 þar sem Ráðhús Borgarbyggðar er í dag. Segja má að Skúlagata 14 hafi ver- ið fyrsta „alvöru“ skrifstofa sjóðs- ins eftir að starfsemin hafði færst úr einni skrifborðsskúffu í Gömlu- Sölku nokkru neðar við Skúlagöt- una. Hjónin Þorvaldur Jósefsson, kenndur við Sveinatungu, og Ólöf Geirsdóttir kona hans eiga hús- ið nú og búa á neðri hæð þess, en dóttir þeirra Þórdís Margrét og Blængur Alfreðsson maður henn- ar búa á efri hæðinni. Þorvaldur er þekktur fyrir að vera lunkinn rækt- andi góðra hrossa og á enn nokkr- ar kynbótahryssur sem hann lítur til og annast. Ólöf Geirsdóttir hefur ýmis áhugamál og meðal þeirra er málun á steina. Hún leyfir vegfarendum að njóta afrakstursins, en hundr- uðum málaðra steina með fígúrum, dýrum, húsum og landslagi má sjá í hlöðnum vegg framan við húsið. Þannig má t.d. sjá alla Barbapabba fjölskylduna, hrossin hans Valda og sitthvað fleira þegar rýnt er í lista- verkin. Ólöf segist hafa gaman af þessu föndri og hlúir vel að lista- verkunum því hún tekur steinana niður á veturna og geymir í köss- um til að þeir varðveitist betur. Á vorin er þeim svo komið fyrir á nýj- an leik ásamt þeim sem bæst hafa við um veturinn. Skreyting þessi vekur ómælda athygli ferðamanna sem oftar en ekki stöðva för sína á göngu um gamla bæinn í Borg- arnesi og mynda steinana hennar Ólafar. mm „Þetta er mynd af Valda,“ segir Dísa dóttir Ólafar og hlær, en fjær situr Valdi sjálfur og glottir við tönn. Hundruð málaðra steina prýða hleðslu við húsið Ólöf Geirsdóttir við nokkrar fígúrur sem hún var að gera við. Hluti vegghleðslunnar og listaverkanna hennar Ólafar. Hittast til að æfa talfærni í ensku Hluti enskuhópsins í Félagsbæ í Borgarnesi í síðustu viku, f.v. Guðrún Helga Andrésdóttir, Ingibjörg Ingadóttir, Eygló Lind Egilsdóttir og Rebekka Þiðriksdóttir. Gengið um sveit í Reykhólahreppi Nestishlé í einni göngunni síðasta sumar. Annir í blómasölunni Hildur Traustadóttir á Hvanneyri var meðal viðskiptavina Gleym-mér-ei um síðustu helgi. Sædís Guðlaugsdóttir við sumarblómin sín.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.