Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Síða 36

Skessuhorn - 20.06.2013, Síða 36
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Um næstu mánaðamót mun séra Guðjón Skarphéðinsson láta form- lega af starfi sóknarprests í Staða- staðarprestakalli, en starfinu hef- ur hann gegnt síðan 1996. Að sögn Þorbjarnar Hlyns Árnason- ar prófasts í Vesturlandsprófasts- dæmi munu sóknarbörn í Staða- staðarprestakalli njóta þjónustu ná- grannapresta í sumar og fram til 1. desember þegar ráðgert er að nýr sóknarprestur taki til starfa, en prestakallið verður auglýst laust til umsóknar á næstunni. Séra Guðjón hefur þó að eigin sögn bókað ýmis prestsverk í sumar og mun standa við gefin loforð þar að lútandi. Hættir vegna aldurs Blaðamaður sló á þráðinn til séra Guðjóns á Staðastað. Hann segir ástæðu starfsloka sinna vera aldur- inn en lögboðið er að menn hætti í síðasta lagi við sjötugt. Guðjón kveðst þokkalega hafa náð sér af veikindum sem hann hefur glímt við. „Ég er víst orðinn sjötíu ára og þá eiga kirkjunnar þjónar að draga sig í hlé sem slíkir,“ segir Guð- jón sem einmitt átti afmæli í gær, 19. júní á sjálfan kvenréttinda- daginn. „En það var bara venju- legur þriðjudagur og ýmsar annir sem komu í veg fyrir hátíðarhöld á sjálfan afmælisdaginn og bíða því í nokkra daga.“ Guðjón verð- ur með kveðjumessa á Kolbeins- stöðum næstkomandi sunnudag, 23. júní klukkan 20:30. „Það mætti kalla þá athöfn léttmessu. Það verður svo kaffidropi og kleinur í boði á eftir í Lindartungu. Síðan er ráðgert að halda upp á afmæl- ið í næsta mánuði og verður það líklega 6. júlí á Lýsuhóli.“ Guð- jón segir að töluvert hafi verið að gera í prestakallinu að undanförnu og ýmis prestsverk bókuð í sumar og jafnvel einnig á næsta ári. „Það er til dæmis mikið um giftingar á Búðum. Þangað er vinsælt að út- lendingar komi og láti pússa sig saman. Þá eru að auki skírnir og sitthvað annað fram í næsta mán- uð,“ segir hann. Aðspurður seg- ir Guðjón að ekki sé ákveðið hve- nær þau hjón flytji frá Staðastað, í síðasta lagi verði það á fardögum næsta vor, en kannski fyrr. Þau eigi íbúð í Reykjavík en hafa ekki tek- ið ákvörðun um hvort þau flytji þangað eða fari annað, en bæði hann og Klara Bragadóttir eigin- kona hans koma að norðan, Guð- jón er Húnvetningur að uppruna en Klara Þingeyingur. Hefur tekist að verja prestakallið Séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur segir að sem betur fer hafi tekist að halda Staðastaðar- prestakalli við þær breytingar sem orðið hefðu á skipan prestakalla í landinu síðustu áratugina, en þær hafa verið á forræði Kirkjuþings frá árinu 1997. Frá þeim tíma og fram til dagsins í dag hafa, að sögn Þorbjarnar Hlyns, 23 prestaköll færst frá landsbyggðinni á suðvest- ursvæðið og meðal annars kom til tals að færa Staðastaðarprestakall. Prestakallið samanstendur af sex sóknum; Staðarhraunssókn, Kol- beinsstaðasókn, Fáskrúðarbakka- sókn, Staðastaðarsókn, Búðasókn og Hellnasókn. mm/þá Bergsveinn Reynisson bóndi á Gró- ustöðum við Gilsfjörð og formað- ur Skelræktar, samtaka kræklinga- ræktenda, sótti um leyfi til kræk- lingaræktar fyrir fimm árum. Enn er hann ekki kominn með leyfið og segir að ekki sé hægt að standa í því fyrir einyrkja að reyna að komast í gegnum eftirlits- og leyfisveitinga- kerfið hér á landi. Bergsveinn hef- ur áður vakið athygli á því hversu flókið og dýrt það er að afla til- skilinna leyfa. Það varð m.a. tilefni umræðna á Alþingi í fyrra en Berg- sveinn segir ástandið hafi ekkert skánað síðan. Þvert á móti sé held- ur eins og Umhverfisstofnun sé að herða tökin. Bergsveinn segist hafa sótt um leyfi til Fiskistofu fyrir fimm árum en umsóknin strandað á því að hann lagði ekki fram endurskoðaða rekstraráætlun til þriggja ára heldur bara viðskiptaáætlun. Þegar hann síðan sóttu um aftur voru komin ný lög og málið í höndum Matvæla- stofnunar. Hann segir starfsmenn Matvælastofnunar hafa verið alla af vilja gerða til að setja sig inn í mál- in og vinna að málinu en þeir séu greinilega að drukkna í verkefn- um vegna mannfæðar. Bergsveinn segist í síðasta tölvupósti sínum til Matvælastofnunar hafa sagt að það væri fínt að fá leyfið núna eft- ir fimm ár áður en hann gæfist end- anlega upp. „En það er þó ár í að ég verði fimmtugur og ég er ekki úrkula vonar að leyfið verði kom- ið þá, alla vega áður en ég verð orð- ið löggilt gamalmenni,“ segir Berg- sveinn. þá Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðastað og Klara Bragadóttir eiginkona hans. Ljósm. mm. Guðjón að láta af störfum á Staðastað Staðið í ströggli í fimm ár að fá leyfi til kræklingaræktar Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum og Guðrún Þórarinsdóttir líffræðingur með sýni af kræklingnum í Króksfirðinum. Vegabréf sumar 2013 STIMPLAÐU ÞIG INN Í SUMARIÐ SAFNAÐU stimplum OG ELTU SÓLINA ALLA LEIÐ TIL TENERIFE Í SUMAR Fjöldinn allur af meiriháttar vinningum og heppin fjölskylda stimplar sig í vikudvöl á suðrænni sólarströnd.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.