Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Side 19

Skessuhorn - 21.08.2013, Side 19
19MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 abc Menntastoðir er tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja koma sér aftur af stað í nám eftir hlé. Aftur í nám Markmið námsins er að stuðla að jákvæðu viðhorfi náms- manna til áframhaldandi náms og auð- velda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nem- endur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið er miðað við fullorðna nemendur, þ.e. einstaklinga 23 ára og eldri. Menntastoðir er dreifnám í tvær annir og hefst með staðlotu í Borgarnesi þann 13. september næstkomandi. Helstu námsgreinar eru: Stærðfræði, íslenska, enska, danska, bókfærsla, tölvu- og upplýsingatækni ásamt námstækni. Fullnægjandi undirbúningur Námið er metið sem fullnægjandi undir- búningur fyrir nám í Háskólabrú Keilis, Háskólagátt Háskólans á Bifröst og frumgreinadeild Háskólans í Reykja- vík og meta má námið til eininga í framhaldsskóla. Verð kr. 25.000.- Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Helgu Lind verkefnisstjóra Menntastoða á netfangið helgal@fsn.is eða í síma 895 1662. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 2. september www.simenntun.is segir Vigdís. Með heilsustefnunni fylgir heilsubók sem fylgir barninu í gegnum leikskólann. „Þetta er góð heimild um heilsufar barnsins, hreyfifærni og slíkt. Við höldum foreldrafund tvisvar á ári þar sem farið er yfir bókina,“ segir Vigdís. „Að vera Grænfánaskóli fléttast vel saman við heilsustefnuna og hentar okkur vel í okkar umhverfi.“ Gott samstarf er á milli mennta- stofnana á Hvanneyri að sögn Val- dísar. „Börnin sem fara héðan eiga að þekkja sinn grunnskóla vel og við búum vel að því að grunnskól- inn og Landbúnaðarháskólinn eru í göngufæri frá okkur. Það er mikil jákvæðni á milli skólanna á Hvann- eyri,“ segir Vigdís að endingu. Hnoðraból Leikskólinn Hnoðraból á Gríms- stöðum í Reykholtsdal er fullset- inn í vetur og eru þar 19 börn, 18 mánaða og eldri. Þar eru sex starfs- menn, tveir þeirra eru faglærðir og búa starfsmenn yfir mikilli reynslu. Starfsemi leikskólans hófst 8. ágúst eftir sumarfrí og stendur núna yfir uppskerutími á Hnoðrabóli. „Núna erum við að fara að taka upp græn- meti og tína ber. Ágústmánuður er í raun uppskerumánuður hjá okk- ur þar sem við tökum upp það sem við gróðursettum í vor og verðum við að því fram að mánaðamótum,“ segir Sjöfn Guðlaug Vilhjálmsdótt- ir leikskólastjóri. Náttúran og umhverfið spila stórt hlutverk í starfsemi Hnoðra- bóls. „Útiveran er rík í okkar starfi og við að vinnum einnig í mark- vissri málörvun og frjálsum leik. Einnig erum að ýta undir nýju að- alnámskránna í starfinu hjá okkur,“ segir Sjöfn. „Náttúra, hreyfing og hollusta eru í fyrirrúmi hjá okkur. Hnoðraból er lítill sveitaskóli, stað- settur nánast úti í náttúrunni og við nýtum þá kosti til fulls. Eggertsflöt í Reykholti er hérna rétt hjá okk- ur og þangað förum við töluvert með börnin. Við höfum aðgengi að hestum, hænsnum og fleiri dýr- um. Við erum í takti við samfélagið okkar og sem dæmi tökum við þátt í réttum,“ segir Sjöfn og bætir við: „Það er gaman að vera með þessa ræktun og við njótum alls þess sem sveitin býður upp á.“ Hraunborg Á leikskólanum Hraunborg á Bif- röst eru skráð 56 börn í vetur. Hraunborg er háskólaleikskóli og fjöldi barna getur sveiflast mik- ið milli anna í Háskólanum á Bif- röst. Yngstu börnin sem tekin eru inn í Hraunborg eru 18 mánaða gömul. Skólanum er skipt niður í þrjár deildir. Ein fyrir þau yngstu og tvær deildir eru fyrir eldri nem- endur sem skipt er eftir kynjum. Ásrún Vilbergsdóttir er nýr skóla- stjóri Hraunborgar sem rekinn er af Hjallastefnunni samkvæmt sam- komulagi við Borgarbyggð. Skól- inn hófst 6. ágúst en er enn ekki fullmannaður, en það mun gerast þegar háskólanámið hefst. Leikskólinn Hraunborg starfar eftir hugmyndafræði Hjallastefn- unnar, sem í stórum dráttum bygg- ir á hugsjónum um jafnrétti og vel- ferð. Allir leikskólar Hjallastefn- unnar eru með skólaföt og þar er Hraunborg engin undantekning. Hjallastefnan vinnur samkvæmt sex meginreglum. Reglurnar snúa að því að Hjallastefnuskólum er ætl- að að mæta hverju barni eins og það er og virða og viðurkenna ólík- ar þarfir aldurshópa, kynja og ein- staklinga. Að stuðla að því að já- kvæðni, gleði og kærleikur séu ráð- andi öfl í samskiptum starfsfólks við börn og foreldra. Að skapa samfé- lag innan hvers skóla þar sem jafn- Tónlist spilar stórt hlutverk í starfinu á Vallarseli á Akranesi. Þessi nemandi Andabæjar virðist kunna vel við að gróðursetja. Börn á Hnoðrabóli í Reykholtsdal snæða hér úti í kaffitímanum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.