Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
Spennandi námskeið í símenntun
Opið fyrir umsóknir á bifrost.is
Nánari upplýsingar á bifrost.is og í síma 433 3000.
Máttur kvenna
Rekstrarnám fyrir konur sem hafa
áhuga á að bæta rekstrarþekk-
ingu sína. Námið stendur í þrjá
mánuði og hefst á vinnuhelgi
á Bifröst. Kennsla fer svo fram
í fjarnámi og geta þátttakendur
hlustað á fyrirlestra á netinu
og unnið verkefni hvenær sem
þeim hentar.
Um er að ræða starfstengt fjar-
nám sem er kennt á þremur
önnum. Markmiðið er að auka
hæfni og þekkingu starfs-
fólks sem vinnur við verslun og
þjónustu. Starfsmenntasjóður
verslunar- og skrifstofufólks veitir
félagsmönnum VR styrk fyrir allt
að 75% af skólagjöldum.
Hagnýtt nám fyrir stjórnendur í
sveitarfélögum og í skólakerfinu.
Markmið námsins er að auka
þekkingu og hæfni stjórnenda til
að takast á við krefjandi starfsum-
hverfi og móta framtíðarsýn
fyrir þær stofnanir sem þeir leiða.
Kennt er í fjarnámi og er náms-
tíminn 12 vikur.
Sérsniðið nám fyrir stjórnendur
og rekstraraðila í ferðaþjónustu.
Markmiðið er að auka leikni og
þekkingu ferðaþjónustuaðila til
að takast á við ögrandi starfsum-
hverfi og auka samvinnu þeirra í
milli. Námsgreinarnar eru þrjár og
eru kenndar í fjarnámi á 9 vikum.
Verslunarstjórnun Sterkari stjórnsýsla
Stjórnun og samvinna
í ferðaþjónustu
Einkunnarorð Sólvalla eru: Vin-
átta, virðing og velvild. Starf Sól-
valla byggist að miklu leyti á kenn-
ingum Johns Dewey, en sam-
kvæmt þeim felst nám barna fyrst
og fremst í því að þau fái að upplifa
og prófa hlutina á eigin forsendum.
Þannig læri þau af reynslunni. „Við
leggjum áherslu á útiveru og hreyf-
ingu hérna á Sólvöllum. Að mestu
er þetta hefðbundinn skóli, en við
erum með lífsleikniverkefni í gangi
allan veturinn,“ segir Matthildur.
Lífsleikniverkefni þetta byggir á
tólf dyggðum en unnið er með eitt
í einu í um þrjá mánuði.
Leikskólinn
í Stykkishólmi
Nemendur Leikskólans í Stykk-
ishólmi verða 76 í vetur og þeir
yngstu eru eins árs. Skólanum
er skipt niður í þrjár deildir eftir
aldri barna og skólastarfið byrj-
aði 12. ágúst síðastliðinn. Starfs-
menn leikskólans eru 23 og þar
af eru sjö leikskólakennarar, þrír
grunnskólakennarar, íþrótta-
kennari og fimm með aðra há-
skólamenntun. „Við erum vel
stödd með faglærða starfsmenn.
Nú í vetur eru óvenju mörg börn
í skólanum því elsti árgangur-
inn er mjög stór, en við lögðum
mikla áherslu á að koma öllum
sem vildu í skólann,“ segir Sig-
rún Þórsteinsdóttir leikskóla-
stjóri í Stykkishólmi.
Leikskóli Stykkishólms er
Grænfánaskóli. „Við búum í mjög
grænu samfélagi og á það að sjást í
öllu okkar starfi. Sérstaða leikskól-
ans er sá arfur sem við byggjum á,
en skólinn var stofnaður af Frans-
iskussystrum. Nýtnin og nægju-
semin lifir áfram frá þeim og það
kemur inn í umhverfisstefnu okk-
ar. Að nýta allt sem við getum og
fara vel með það sem við eigum,“
segir Sigrún.
Leikskólinn í Stykkishólmi starf-
ar að vissu leyti eftir Reggio hug-
myndafræðinni án þess þó að kall-
ast Reggio leikskóli. „Við nýtum
og virðum þær aðferðir sem börn
hafa til að tjá sig á allan mögu-
legan hátt. Við nýtum allt nærum-
hverfi okkar vel og erum í góðum
og skemmtilegum samskiptum við
nágranna okkar, frístundabændur,
hestamenn og fleiri,“ segir Sigrún
að endingu. sko
abc
Börnin á Sólvöllum eru hér í vettvangsferð við sjóinn í Grundarfirði.
Hér er mynd af elstu börnunum á Leikskólanum í Stykkishólmi, sem gengu á
Gráukúlu í vor, ásamt kennurum og nokkrum foreldrum. Þetta er árlegur við-
burður og markar lok leikskólastarfs elsta árgangs hvert vor.