Skessuhorn - 21.08.2013, Side 29
29MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
Hópbílar óska eftir
að ráða bifreiðastjóra í hlutastörf
(kvöld og helgarkeyrsla).
Um er að ræða áætlunarakstur.
Borgarnes - Reykjavík - Borgarnes og
Akranes - Reykjavík - Akranes
Upplýsingar gefur Ágúst Haraldsson í sima 822 0073
og Pálmar Sigurðsson í síma 822 0098.
Einnig er hægt að sækja um á www.hopbilar.is undir liðnum
starfsmenn. Hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
—-————————————————————————————-
Hópbílar hf. | Melabraut 18 | Hafnarfirði | 599 6000 | hopbilar@hopbilar.is
FASTEIGNIR Í BORGARNESI
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes
s. 437 1700, 860 2181
fax 437 1017
netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is
ARNARKLETTUR 32
Tvær nýjar og fullbúnar íbúðir með
sér inngangi á 3. hæð í fjölbýlishúsi.
Íbúðirnar eru 78,2 ferm. og skiptast
í forstofu, tvö herbergi, samliggjandi
stofu/eldhús, baðherbergi, þvottahús og
geymslu sem má nota sem herbergi.
Parket og flísar á gólfum. Viðarinn-
réttingar í eldhúsi og á baðherbergjum.
Til afhendingar strax.
Verð: 16.800.000
BORGARBRAUT 65A
Íbúð í fjölbýlishúsi fyrir eldri en 60 ára
og/eða öryrkja. Íbúðin, sem er 83,7
ferm., skiptist í hol, samliggjandi stofu/
eldhús, tvö herbergi og baðherbergi.
Geymsla á gangi. Dúkar á gólfum.
Viðarinnrétting í eldhúsi.
Til afhendingar strax.
Verð: 22.900.000
Framkvæmdir
við gatnakerfið
á Akranesi hafa
ekki verið miklar
í sumar. Þessa
dagana vinna
starfsmenn OR þó
við endurnýjun
lagna í Krókatúni í
gamla bæjarhlut-
anum. Í leiðinni
verður gang-
stéttin endurnýjuð
við götuna. Á
næstu dögum
hefjast svo mal-
biksframkvæmdir
á Kalmansbraut
frá Esjutorgi að
Hausthústorgi,
sem er við nyrðri
enda Þjóðbrautar.
þá/ Ljósm. mm.
Mánuður er nú liðinn síðan fjórðu
uppgraftarlotu á fornminjum á
Gufuskálum á Snæfellsnesi lauk.
Líkt og þegar hefur verið greint frá
í Skessuhorni bættust margir grip-
ir við safnið í ár auk þess sem ný
mannvirki litu dagsins ljós. Þrátt
fyrir að framundan sé mikil vinna
fyrir höndum við að vinna úr söfn-
uðum gögnum sumarsins er þó ým-
islegt sem þegar er hægt að lesa úr
þeim.
Upphaf Gufuskála hefur ekki ver-
ið ljóst fram til þessa og því hefur
ein af rannsóknarspurningum verk-
efnisins snúið að því að kanna hvort
hafi komið á undan, verstöðin eða
landbúnaðurinn. Rannsóknin hef-
ur leitt í ljós að gríðarmikil aukn-
ing varð í sjósókn á 15. og 16. öld á
staðnum sem sjá má á fjölda mann-
virkja og ruslalaga tengdum vinnslu
með sjávarfang. Við fornleifaskrán-
ingu sem fram fór á Gufuskálajörð-
inni í sumar í tengslum við rann-
sóknina voru skráðar yfir 130 forn-
leifar sem bætast við 154 fiskbyrgi
sem þegar höfðu verið skráð eða
alls um 190 fornleifar. Þessa aukn-
ingu í útgerð má sjá um allt Ísland
og tengist hún aukinni verslun með
hertan fisk á Evrópumarkað á þess-
um tíma. Enn sem komið er hafa
þau uppgraftarsvæði sem unn-
ið hefur verið á Gufuskálum verið
aldursgreind til fyrri hluta 15. ald-
ar og sum hafa verið í notkun allt til
17. aldar. Þetta hefur því styrkt enn
frekar þá tilgátu að útgerð á Gufu-
skálum hafi tengst þessum viðskipt-
um og átt þar stóran hlut. Hins-
vegar hefur það ekki varpað ljósi á
hvenær útgerð hófst á staðnum og
hvort Gufuskálabændur og eigend-
ur sáu sér leik á borði með versl-
uninni og því aukið heimræðið þar
til að um meiriháttar verstöð var að
ræða. Ekki kemur fram í ritheim-
ildum að verstöð sé á Gufuskálum
fyrr en um miðja 15. öld en þá er
verstöðin þegar orðin gríðarstór.
Örnefnið Gufuskálar gefa vísbend-
ingu um nýtingu því að við upphaf
landnáms var -skáli notað um ver-
búðir. Nafn Gufuskála kemur fyrst
fyrir í rituðum heimildum á 13. öld
eða mun fyrr en verstöðin sam-
kvæmt ritheimildum.
Takmarkaður
landbúnaður
Til að varpa skýrara ljósi á þetta at-
riði var því ráðist í að gera könn-
unarskurð í einn af bæjarhólun-
um. Var með því vonast til að hægt
yrði að sjá breytingar í landnýtingu
og hvort tengja mætti þær breyt-
ingar við komu verstöðvar á jörð-
ina. Frumniðurstöður benda til að
jörðin hafi byggst mjög snemma,
jafnvel um landnám og að búset-
an hafi byggst á útgerð, ekki land-
búnaði. Þá virðist landbúnaður-
inn vera afar takmarkaður fyrr en
kemur á 15. öld og má af því ráða
að séð hafi verið fyrir þörf stækk-
andi verstöðvar fyrir landbúnaðar-
vörur með aukinni ræktun á jörð-
inni sjálfri. Á fyrri uppgraftarsumr-
um hafa komið í ljós vísbendingar
um að unnið hafi verið með verð-
mæt efni eins og rostungstennur en
ekki hefur verið ljóst hvort að efni-
viðurinn hafi verið grófverkaður á
Gufuskálum og svo fluttur þaðan.
Fundist hafa bæði óunnin efni og
eins teningur sem þó var án merkja.
Í sumar fannst hinsvegar útskorinn
gripur sem sennilega er úr rostung-
stönn og gefur vísbendingar um
að á Gufuskálum hafi verið hand-
verksmenn sem hafi fullunnið gripi
úr hinum verðmæta efnivið.
Búðin var lengi í notkun
Þar sem um björgunarrannsókn
vegna landbrots og vindrofs er að
ræða er hlutur uppblásturs og upp-
haf hans stór hluti af rannsókninni.
Í sumar hefur komið í ljós að sand-
blástur hefur rýrt jarðveginn mjög
snemma en einnig að ekki er um að
kenna landbúnaði á svæðinu heldur
enn stærri umhverfisaðstæður eins
og kólnandi veðurfar. Hinsvegar
hefur jarðvegur verið mun blaut-
ari við landnám og er mikinn mó til
dæmis að finna undir elstu mann-
vistarleifunum sem er athyglisvert
því í ritheimildum er talað um að
lítið sé um mó til hitunar, þrátt fyr-
ir að vitað sé um stór mótekjusvæði,
þ.m.t. við Ingjaldshól.
Á verstöðvarsvæðinu sjálfu var
haldið áfram með uppgröft á 15.
aldar verbúð. Búðin hefur verið not-
uð í alllangan tíma og á henni mátti
sjá margar viðgerðir og breytingar
á herbergjaskipan þar sem ný her-
bergi hafa verið byggð við þau sem
fyrir voru og notkun jafnvel hætt
á eldri herbergjum þar sem hlaðið
var upp í dyraop og rýmið svo fyllt
af grjóti. Vegna hins mikla land-
brots sem hefur herjað á ströndina í
lengri tíma hafa grjóthleðslur horf-
ið úr verbúðinni sem gerir uppgröft
mun flóknari en ella. Þegar hafa
verið grafin upp tvö byggingarstig
en við lok uppgraftar nú varð ljóst
að um flóknari byggingu er að ræða
en áður var talið. Því er nú búist við
að tvö til þrjú eldri byggingarstig
séu enn ógrafin.
Spennandi tímar
framundan
Niðurstöður sumarsins munu nýt-
ast við að fylla inn í göt á vitneskju
okkar um það samfélag fólks sem á
Gufuskálum bjó og starfaði en lít-
ið sem ekkert er vitað um það út
frá skriflegum heimildum. Við út-
gerðina hafa unnið karlar og konur
og svo virðist einnig sem börn hafi
hugsanlega verið með foreldrum
sínum því í verbúðinni fannst barn-
stönn og í einu horni búðarinn-
ar haugur af litlum kuðungum sem
vitað er að voru notaðar til leikja af
börnum sem bjuggu við sjávarsíð-
una.
Nánari upplýsingar munu fást
þegar búið verður að fara yfir öll
gögnin og gripi en eins og ofan er
greint má sjá glitta í sögu sem ekki
er hægt að sjá nema með fornleifa-
rannsókn eins og þeirri sem nú fer
fram á Gufuskálum. Stefnt er að
áframhaldi á rannsókninni á næsta
sumri en það ræðst þó af því fjár-
magni sem rannsóknin fær. Hing-
að til hefur uppgröfturinn aðal-
lega fengið fjármagn frá banda-
rískum vísindasjóði en einnig hafa
fengist styrkir frá Fornminjasjóði,
Þjóðhátíðarsjóði og Þjóðgarðinum
Snæfellsjökli. Ljóst er að spenn-
andi tímar eru framundan á Gufu-
skálum en ætlunin er að færa rann-
sóknina síðar út til annarra ver-
stöðva á svæðinu til að fá heildar-
mynd af hlutverki útgerðar og ver-
stöðva við uppbyggingu mannlífs á
Snæfellsnesi.
Lilja Björk Pálsdóttir
Lagnir endurnýjaðar
við Krókatún
Stefnt verður að frekari
rannsóknum á Gufuskálum
Niðurstöður sumarsins varpa mynd á starfsemina á öldum áður
Lilja Björk Pálsdóttir fornleifa-
fræðingur.
Lilja hefur leitt hóp fornleifafræðinga og nema við uppgröft á Gufuskálum í fjórum lotum.
Hér er líklega um að ræða útskorinn
taflmann sem fannst á Gufuskálum í
sumar.
Þessi hringur er gerður úr kopar-
blöndu, útskorinn og er með steini sem
mögulega er úr gleri.
Svæðið er varið með sandpokum á
milli uppgraftra.