Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Page 30

Skessuhorn - 21.08.2013, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 Grundarfjarðarbær átti afmæli 18. ágúst síðastliðinn, en þá voru 227 ár liðin frá því að Danakonungur gaf út tilskipun um að sex verslun- arstöðum yrðu veitt kaupstaðarétt- indi. Það var árið 1786. Frá þessu er sagt á vef Grundarfjarðarbæj- ar. Hinir verslunarstaðirnir sem öðluðust kaupstaðaréttindi voru Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Eskifjörður og Vestmannaeyjar og áttu þessir kaupstaðir að verða mið- stöðvar verslunar, útgerðar og iðn- aðar í sínum landshlutum. Auk þess sem þeir áttu að vera aðsetur emb- ættismanna og stofnana. Þá var verslunarstaðurinn á Grundarkambi og presturinn á Helgafelli, séra Sæmundur Hólm, gerði uppdrátt af lóð kaupstaðarins og telst það vera fyrsti skipulags- uppdrátturinn sem gerður var á Ís- landi. Grundarfjarðarbær missti að vísu kaupstaðaréttindin árið 1836, ásamt hinum sveitarfélögunum, að Reykjavík undanskilinni. „Engu að síður markar þessi dagsetning upp- haf mikilla breytinga á Íslandi og er í raun sá dagur sem Grundfirðingar geta nefnt sinn afmælisdag,“ segir á vef Grundarfjarðarbæjar. sko Hljómsveitin Dúmbó á Akra- nesi, ein frægasta danshljóm- sveit landsins um tíðina, fagn- ar sem kunnugt er 50 ára af- mæli á þessu ári. Þótt hljóm- sveitin hafi byrjað sem kvar- tett árið 1961, er stofnun henn- ar sem ballhljómsveitar rak- in til þess að söngvarinn Sig- ursteinn Hákonarson kom til liðs við Dúmbóstrákana 1963. Þá um vorið varð hljómsveit- in gríðarlega vinsæl á sveita- böllum í Borgarfirði, á Suður- landi, í höfuðborginni og víð- ar um land. Framundan voru svo sex ár þar sem hljómsveitin varð ein vinsælasta danshljóm- sveit landsins, þar á meðal átti hljómsveitin hvað mestan þátt í frægð og vinsældum skemmti- staðarins Glaumbæjar í Reykja- vík. Dúmbó hefur frá þess- um tíma komið nokkrum sinn- um saman, þar á meðal 1977, átta árum eftir að hljómsveit- in hætti, en þá gaf hún úr tvær breiðskífur sem urðu mjög vin- sælar og seldust vel. Bíóhöllin fyllt tvisvar og nú Harpan Í vor spilaði Dúmbó á tvennum af- mælistónleikum í Bíóhöllinni fyrir húsfylli. Ísólfur Haraldsson fram- kvæmdastjóri Bíóhallarinnar ákvað ásamt þeim Dúmbómönnum að láta þar ekki staðar numið heldur fara með „giggið“ í ekki minni sal en þann stærsta í Hörpu, sjálfan Eld- borgarsalinn sem rúmar um 1800 gesti. Þeir tónleikar verða laugar- dagskvöldið 14. september og þeg- ar er gott útlit með sölu aðgöngu- miða á tónleikana. Dúmbó byrjaði í síðustu viku æfingar að nýju eft- ir að hafa slakað á í sumar. Þeir fé- lagar sögðu að þótt ekki væri langt liðið frá vorinu, sé þörf fyrir að æfa og hafa flutninginn sem allra best- an þegar kemur að stóru stundinni í Hörpunni. Alveg er hægt að slá því föstu að tónleikarnir í Hörpu verða einstakt tækifæri fyrir fólk að fara í Eldborgarsalinn og hlusta þar á létta og skemmtilega tónlist. Því er engin ástæða að draga það að panta miða á midi.is. „Þetta verður gaman bæði fyrir okkur og ábyggi- lega líka þá sem koma á tónleikana. Það verður forvitnilegt að kynnast hljómburðinum í Hörpunni,“ sagði Jón Trausti Hervarsson, en hann er sá eini sem spilað hefur sleitulaust með hljómsveitinni frá því hún byrjaði að spila fyrst árið 1961. Vinsælustu lögin Jón Trausti segir að ekki sé hægt annað en vera ánægður með fer- il hljómsveitarinnar. Hann gerir ráð fyrir að hátt í 50 lög verði flutt í Hörpunni eins og í Bíóhöllinni. „Þetta eru svona fjögur vinsælustu lögin frá hverju ári, vinsælustu lög- in okkar og líka lög sem við höfð- um dálæti á,“ segir Jón Trausti sem bætti svo við að lokum: „Ég held það hafi engin hljómsveit í land- inu leikið það eftir sem við gerð- um. Að koma með tvær breiðskífur, mörgum árum eftir að við hættum formlega, sem seldust í alls 15 þús- und eintökum, sú fyrri í tíu þúsund og seinni í fimm þúsund,“ segir Jón Trausti. þá Árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK í Ölveri við Hafnar- fjall, verður haldin næstkomandi sunnudag, 25. ágúst frá klukkan 14-17. Að sögn Axels Gústafsson- ar hefur starfið gengið vel í sum- ar. Margar stúlkur koma í búðirn- ar ár eftir ár, en þær eru á aldrin- um 6 til 13 ára. Annað sumarið eftir margra ára hlé dvaldi strákahópur í sumarbúðunum og gafst það mjög vel í sumar eins og síðasta sumar, að sögn Axels. Að öllu jöfnu er síð- an lokapunktur sumarbúðastarfsins mæðgna- og mæðginahelgi í sept- ember. Sumarbúðastarf hófst í Ölveri fyrir 61 ári en 12 fyrstu árin var það í Skátafelli undir Akrafjalli. Allir eru hjartanlega velkomnir í kaffi- söluna og hvattir til að mæta, gera sér glaðan dag í fallegu umhverfi Ölvers, gæða sér á ljúffengum veit- ingum og styðja við sumarbúðirnar um leið. þá Matvæli sem vottuð eru lífænt ræktuð eru sífellt að verða aðgengi- legri neytendum sem kjósa að „ger- ast grænir“ eins og það er kallað. Karen Jónsdóttir á Akranesi rek- ur fyrirtækið Kaja Organic undir slagorðunum, „lífrænt fyrir alla“ og sérhæfir sig í innflutningi á lífrænt vottuðum matvælum. Stofnaði Kar- en fyrirtækið í apríl á þessu ári og sér hún um alla starfsemi fyrirtæk- isins. „Þetta er í raun lítil heildsala þar sem seldar eru stórar pakkn- ingar af lífrænum matvælum eins og hveiti, hrísgrjón, fræ og hnet- ur ásamt olíum og niðursuðuvör- um til þeirra sem þurfa mikið magn í einu,“ segir Karen aðspurð um starfsemina. Í dag selur Kaja org- anic vörur einkum til mötuneyta í skólum og leikskólum en einnig til framleiðenda sem nota einungis líf- rænt hráefni. Má þar t.d. nefna Sól- heima í Grímsnesi sem framleiða lífrænar matvörur eins og chutney, salsa, marmelaði og fleira úr vörum frá Kaja Organic. Lífrænt dýrara en betra Umræðan um lífræn matvæli er of- arlega á baugi í samfélaginu. Karen telur að það sé mikilvægt að fræða fólk um mikilvægi „hreinna“ mat- væla. „Þróun matvæla í heiminum er bara þannig að við erum stöðugt að fjarlægjast náttúruna til að svara kröfum neytenda um lægra vöru- verð. Það er rétt að lífrænar mat- vörur eru dýrari en neytendur verða líka að spyrja sig, í hvað viltu eyða peningunum? Vitlu fá matvöru sem hefur verið ræktuð við náttúrulegar aðstæður eða matvöru sem spraut- að hefur verið á skordýraeitri, gefin vaxtarhormón og er jafnvel erfða- breytt? Neytendur verða líka að spyrja sig hvernig heilsu viltu hafa á þínum efri árum og hvaða áhættu ertu tilbúin að taka? Ég er allavega alveg sannfærð um að lífrænar vörur eru í alla staði mun betri fyr- ir fólk en þær sem hafa ekki verið framleiddar á lífrænan máta. Það eru því ánægjuleg tíðindi þegar stofnanir eins og leikskólinn Akra- sel og Teigasel á Akranesi og Skýja- borg í Hvalfjarðarsveit hafa ákveð- ið að fikra sig inn á línu lífrænna matvæla,“ segir Karen. Vottaðar vörur og súkkulaði Til að matvæli geti flokkast líf- ræn og seld sem slík þurfa þau að hafa fengið ákveðna viðurkenningu sem vottar lífrænt framleiðsluferli þeirra. „Allt sem ég sel er vottað af viðurkenndum stofnunum og koma þær vörur sem ég er að flytja inn frá Frakklandi, Hollandi, Þýska- landi og Ítalíu,“ segir Karen og bætir við: „Það er aðeins einn vöru- flokkur sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér sem ég sel til verslana. Það er lífrænt súkkulaði sem kemur frá Frakklandi og inniheldur eng- in óþarfa aukaefni eins og til dæm- is soja-lesitín bindiefni sem gjarnan er notað í vörum eins og súkkulaði. Súkkulaðið er komið á 17 sölustaði og hefur salan gengið vel hingað til,“ segir Karen. Draumurinn að fjölga starfsfólki Kaja Organic er ekki fyrirferðar- mikið fyrirtæki enda hefur Karen ákveðið að halda kostnaði af rekstr- inum niðri til að varan verði sem ódýrust. „Það er engin yfirbygg- ing. Eins og er, er ég eini starfs- maður fyrirtækisins. Ég er með vörulager og er það eini hluti fyr- irtækisins sem ekki er hægt að hýsa á skrifstofunni sem er í raun eld- húsið heima hjá mér,“ segir Karen sem ætlar að halda áfram að vinna á sviði lífrænna matvæla í fram- tíðinni. Hún bætir við að lokum: „Fyrirtækið er enn frekar ungt og það tekur tíma að koma sér fyrir á markaði. Ég vonast til að stækka við mig í framtíðinni og geta með því skapað ný störf,“ segir hún að endingu. jsb Lager Kaja Organic á Kalmansvöllum á Akranesi. Stofnaði innflutningsfyrirtæki um lífrænar matvörur Karen Jónsdóttir við eldhúsborðið á heimili sínu þar sem hún stjórnar öllum við- skiptum fyrirtækisins. Dúmbó á æfingu sl. miðvikudagskvöld. Hljómsveitin er eins og hún var lengst af skipuð, nema Gunnar Ringsted gítar- leikari kemur í stað Finnboga Gunnlaugssonar sem lést fyrir tveimur árum. Frá vinstri talið: Trausti Finnsson, Sigursteinn Hákonarson, Ragnar Sigurjónsson, Ásgeir Guðmundsson, Reynir Gunnarsson, Jón Trausti Hervarsson, Brynjar Sigurðsson og Gunnar Ringsted. Hljómsveitin Dúmbó byrjuð að æfa fyrir tónleikana í Hörpunni Kaffisala verður í Ölveri á sunnudaginn 227 ára afmæli Grundarfjarðar

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.