Skessuhorn - 21.08.2013, Side 35
35MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
Eftir að hafa haft opið í 25 ár mun
Snyrti- og fótaaðgerðastofu Önnu
í Rifi verða lokað tímabundið í
vetur, að minnsta kosti, eða þar til
annað verður ákveðið. Anna Hösk-
uldsdóttir er eigandi stofunnar.
Hún er fædd og uppalin á Vopna-
firði, varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri en fór til
náms til Reykjavíkur þar sem hún
lærði snyrtifræði. Eftir nám 1987
flutti hún til Rifs og í upphafi árs-
ins 1988 hóf hún búskap með Árna
Jóni Þorgeirssyni. Þau Árni Jón
eiga þrjá syni sem allir eru vaxn-
ir úr grasi. „Það var ekki endilega
ætlunin að opna hérna snyrtistofu,
en stuttu eftir að ég flutti hringdu
í mig tvær konur, þær Jenný Guð-
mundsdóttir og Ingibjörg Steins-
dóttir. Í framhaldi af því opnaði ég
svo stofuna í lok janúar 1988 í her-
bergi á heimili þeirra í Rifi. Hef-
ur stofan alla tíð síðan verið þar
til húsa þótt ég hafi nú stundum
hugsað um að flytja mig út í bæ.
Alltaf hef ég hins vegar hætt við og
fundist gott að hafa stofuna heima.
Opnunartíminn miðaðist alltaf við
þann tíma sem drengirnir mínir
voru í leikskóla eða grunnskóla og
gat ég því alltaf tekið á móti þeim
að skóla loknum.“
Anna segir að vinnan hafi alltaf
verið skemmtileg og nóg að gera
þessi 25 ár sem stofan hefur ver-
ið opin og ekki hefur verið önnur
snyrtistofa þar til nýverið. Henni
er minnisstætt að þegar hún hóf
aftur vinnu eftir sitt fyrsta fæð-
ingarorlof, eftir þrjá mánuði, vann
hún á kvöldin og átti þrjú fríkvöld
fyrsta árið, svo mikil var eftirspurn-
in. Spurð um ástæðu lokunarinnar
nú segir Anna að henni hafi fund-
ist kjörið tækifæri að breyta til nú
þegar yngsti sonur hennar er að
fara til náms í Borgarholtsskóla.
Hún ætlar að fylgja honum eftir
að minnsta kosti í vetur. Anna vill
koma á framfæri þakklæti til við-
skiptavina sinna og hlakkar til að
sjá þá síðar.
þa
Anna lokar snyrtistofunni eftir 25 ár
Bikarmót Vesturlands í hestaí-
þróttum var haldið á félagssvæði
Glaðs í Búðardal sl. laugardag.
Hestamannafélögin á Vesturlandi
skiptast á um að halda mótið sem
fer fram árlega. Þetta árið kom það
í hlut Glaðs að halda mótið sem er
einstaklingskeppni en einnig stiga-
keppni á milli hestamannafélag-
anna. Skráningarnar voru rúmlega
70 og fór mótið vel fram á sólrík-
um degi í Dölunum. Helstu styrkt-
araðilar mótsins voru Hrísdalshest-
ar, dýralæknirinn í Búðardal og BS
þjónustan Búðardal og vill Glaðs-
fólk þakka þeim sérstaklega veitt-
an stuðning. Bikarmeistari Vest-
urlands að þessu sinni var Hesta-
mannafélagið Skuggi með 114,61
stig. Samanlagðir fjórgangssigur-
vegarar voru Halldór Sigurkarls-
son Skugga í opnum flokki og
Klara Sveinbjörnsdóttir Faxa í ung-
mennaflokki. Helstu úrslit á mótinu
voru þessi:
Tölt-opinn flokkur
1. Siguroddur Pétursson, Hrók-
ur frá Flugumýri II, Snæfellingur,
7,72
2. Ámundi Sigurðsson, Mardöll frá
Miklagarði, Skuggi, 7,28
3. Iðunn Svansdóttir, Kolfreyja frá
Snartartungu, Skuggi, 6,72
4. Gunnar Halldórsson, Eskill frá
Leirulæk, Skuggi, 6,33
5. Lárus Ástmar Hannesson, Hátíð
frá Hjarðarfelli, Snæfellingur, 5,89
Tölt-ungmennaflokkur
1. Klara Sveinbjörnsdóttir, Óskar
frá Hafragili, Faxi, 6,67
2. Axel Ásbergsson, Sproti frá
Hjarðarholti, Skuggi, 6,11
3. Hrefna Rós Lárusdóttir, Hnokki
frá Reykhólum, Snæfellingur, 6,00
4. Berglind Ýr Ingvarsdóttir, Tandri
frá Ferjukoti, Skuggi, 5,83
5. Þórdís Fjeldsted, Snjólfur frá
Eskiholti, Faxi, 5,28
Tölt-unglingaflokkur
1. Atli Steinar Ingason, Diðrik frá
Grenstanga, Skuggi, 6,44
2. Guðný Margrét Siguroddsdótt-
ir, Háfeti frá Hrísdal, Snæfelling-
ur, 6,22
3. Þorgeir Ólafsson, Frigg frá
Leirulæk, Skuggi, 6,11
4. Þóranna Hlíf Gilbertsdótt-
ir, Kolbakur frá Syðri-Reykjum,
Glaður, 5,78
5. Anna Soffía Lárusdóttir, Krummi
frá Reykhólum, Snæfellingur, 5,06
Tölt-barnaflokkur
1. Arna Hrönn Ámundadóttir, Bíld-
ur frá Dalsmynni, Skuggi, 5,44
Fjórgangur-opinn flokkur
1. Iðunn Svansdóttir, Kolfreyja frá
Snartartungu, Skuggi, 6,67
2. Halldór Sigurkarlsson, Nasa frá
Söðulsholti, Skuggi, 6,47
3. Ámundi Sigurðsson, Mardöll frá
Miklagarði, Skuggi, 6,07
4. Guðmundur Margeir Skúlason,
Krapi frá Steinum, Snæfellingur,
6,07
5. Lárus Ástmar Hannesson, Hátíð
frá Hjarðarfelli, Snæfelling-
ur, 5,77
Fjórgangur-ungmennaflokkur
1. Hrefna Rós Lárusdóttir, Hnokki
frá Reykhólum, Snæfellingur, 6,07
Bikarmót Vesturlands í Búðardal
2. Klara Sveinbjörnsdóttir, Óskar
frá Hafragili, Faxi, 5,97
3. Berglind Ýr Ingvarsdóttir, Tandri
frá Ferjukoti, Skuggi, 5,90
4. Axel Ásbergsson, Sproti frá
Hjarðarholti, Skuggi, 5,77
5. Þórdís Fjeldsted, Miðey frá For-
sæti, Faxi, 3,40
Fjórgangur-unglingaflokkur
1. Sigrún Rós Helgadóttir, Kaldi
frá Hofi I, Skuggi, 6,20
2. Guðný Margrét Siguroddsdótt-
ir, Vordís frá Hrísdal, Snæfelling-
ur, 6,03
3. Þóranna Hlíf Gilbertsdótt-
ir, Kolbakur frá Syðri-Reykjum,
Glaður, 6,03
4. Atli Steinar Ingason, Diðrik frá
Grenstanga, Skuggi, 5,93
5. Anna Soffía Lárusdóttir, Krummi
frá Reykhólum, Snæfellingur, 5,53
Fjórgangur - barnaflokkur
1. Arna Hrönn Ámundadóttir, Bíld-
ur frá Dalsmynni, Skuggi, 5,40
Fimmgangur – opinn flokkur
1. Lárus Ástmar Hannesson, Atlas
frá Lýsuhóli, Snæfellingur, 6,36
2. Styrmir Sæmundsson, Ása frá
Fremri-Gufudal, Glaður, 5,88
3. Astrid Skou Buhl, Fannar frá
Hallkelsstaðahlíð, Snæfellingur,
5,45
4. Gunnar Halldórsson, Þröm frá
Þverholtum, Skuggi, 5,43
Fimmgangur - ungmennaflokk-
ur
1. Klara Sveinbjörnsdóttir, Abel frá
Hlíðarbergi, Faxi, 5,95
2. Þorgeir Ólafsson, Frigg frá
Leirulæk, Skuggi, 5,60
3. Guðný Margrét Siguroddsdóttir,
Rós frá Bergi, Snæfellingur, 3,81
Gæðingaskeið
1. Klara Sveinbjörnsdóttir, Abel frá
Hlíðarbergi, Faxi, 6,58
2. Lárus Ástmar Hannesson, Atlas
frá Lýsuhóli, Snæfellingur, 6,42
3. Styrmir Sæmundsson, Skjóni frá
Stapa, Glaður, 5,50
4. Gunnar Halldórsson, Þröm frá
Þverholtum, Skuggi, 5,21
5. Styrmir Sæmundsson, Ása frá
Fremri-Gufudal, Glaður, 3,08
Skeið, 100m (fluguskeið)
1 Styrmir Sæmundsson, Skjóni frá
Stapa, Glaður, 7,94
2. Lárus Ástmar Hannesson, Atlas
frá Lýsuhóli, Snæfellingur, 8,94
3. Klara Sveinbjörnsdóttir, Abel frá
Hlíðarbergi, Faxi, 9,16
Liðakeppni hestamannafélag-
anna:
1. Hestamannafélagið Skuggi,
114,61
2. Hestamannafélagið Snæfelling-
ur, 98,34
3. Hestamannafélagið Glaður ,
72,55
4. Hestamannafélagið Faxi, 51,47
ss/ljósm. is.
Hrefna Rós Lárusdóttir sigurvegari í fjórgangi ungmenna á þeysireið.
Klara Sveinbjörnsdóttir vann til fjögurra gullverðlauna, fékk eitt silfur og eitt brons.
Fimm efstu knapar í tölti ásamt Halldóri Sigurkarlssyni sem var fjórgangsmeistari
í samanlögðu.