Skessuhorn - 23.04.2014, Side 7
7MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2014
Kynningarfundur vegna breytinga á
aðalskipulagi í Brákarey og breytinga á
aðalskipulagi vegna Sorpförgunar og
efnistöku við Bjarnhóla í landi Hamars
Kynningarfundur vegna breytinga á aðalskipulagi í
Brákarey og breytinga á aðalskipulagi vegna Sorpförgunar
og efnistöku við Bjarnhóla í landi Hamars verður haldinn
þriðjudaginn 29. apríl 2014 kl. 17:00 – 18:00 í Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Brákarbraut 14.
Skipulagsfulltrúi mun kynna breytingarnar.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og
kynna sér skipulagið. SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Lausar stöður umsjónarkennara við
Grunnskólann í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir lausar tvær stöður
umsjónarkennara á miðstigi frá og með 1. ágúst 2014.
Önnur staðan er tímabundin til eins árs.
Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 300 nemendurí
1.–10. bekk.
Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri
fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar
og starfsfólk skólans mynda.
Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í
virku og skapandi skólastarfi með öflugu samstarfsfólki.
Menntun, reynsla og hæfni:
Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla•
Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar•
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð•
Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar•
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skóla-
stjóra, signy@grunnborg.is einnig er hægt að fá
nánari upplýsingar hjá henni í síma 698-9772
S
ke
ss
u
h
o
rn
2
01
4
Lausar stöður deildarstjóra við
Grunnskólann í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir lausar stöður deildar-
stjóra unglingastigs og deildarstjóra yngsta stigs frá og
með 1. ágúst 2014. Skólinn er heildstæður grunnskóli með
um 300 nemendur í 1.–10. bekk.
Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri
fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar
og starfsfólk skólans mynda.
Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt
í virku og skapandi skólastarfi og stýra faglegri þróun í
sterku teymi stjórnenda.
Menntun, reynsla og hæfni:
Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla•
Meistarapróf eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi•
Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar•
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð•
Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar•
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af manna- •
forráðum og verkefnastjórnun
Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skóla-
stjóra, signy@grunnborg.is einnig er hægt að fá
nánari upplýsingar hjá henni í síma 698-9772
Sk
es
su
ho
rn
2
01
4
Safnasvæðið í Görðum
Vestlenski safnadagurinn á sumardaginn
fyrsta þann 24. apríl kl. 15 – 16 í Safna-
skálanum. Sagnakonan Þóra Grímsdóttir
kemur í heimsókn og segir sögur.
Máverkasýning Ragnheiðar Ólafsdóttur
„Lifað í gleði“ er í sýningarsal Safnaskálans.
Kaffi og vöfflutilboð í Garðakaffi.
Frítt inn á söfnin á Vestlenska
safnadeginum.
Opið alla daga 13-17
Vegfarandi tilkynnti um mögulegan
sinubruna í Borgarfirði um klukk-
an eitt á skírdag, einhvers staðar á
milli bensínstöðvarinnar Baulunn-
ar og Bifrastar. Vegfarandinn var á
ferðinni á þessum slóðum en þar sá
hann reyk sem hann taldi af völd-
um sinuelds og lét því neyðarlín-
una vita. Slökkvilið Borgarbyggðar
var umsvifalaust kallað út og héldu
slökkviliðsmenn á bílum frá Borg-
arnesi, Reykholti og Hvanneyri á
vettvang. Að sögn Bjarna Þorsteins-
sonar slökkviliðsstjóra var um mjög
óljósa tilkynningu að ræða því ekki
var vitað hvar eldurinn væri. Því
var fyrsta verk slökkviliðsmanna að
hafa uppi á eldinum. Fljótt fundu
slökkviliðsmenn brunalykt og með
því að renna á lyktina fundu þeir
brunastaðinn skammt frá bænum
Munaðarnesi. Kom í ljós að þar var
maður einn að brenna rusl í róleg-
heitunum og því ekki um sinubruna
að ræða.
Að sögn Bjarna hafði maður-
inn engin leyfi fyrir því að kveikja
opin eld, en leyfi sýslumanns þarf
til að kveikja eld með þessum
hætti. Bjarni segir um að ræða al-
gjört virðingarleysi hjá manninum,
en með því að sækja um leyfi til að
brenna rusl hefðu viðbragðsaðilar
geta brugðist öðruvísi við. Virðing-
arleysi sem þetta kosti skattborg-
ara einfaldlega of mikið. Margir
slökkviliðsmenn eru nú í fríi og því
þurfti að kalla út mannskap frá fyrr-
greindum stöðum til að fullmanna
slökkviliðið. Bjarna vildi því brýna
fyrir fólki að fara eftir lögum í hví-
vetna þegar áform eru uppi um að
kveikja opin eld, t.d. til að brenna
rusl. Dæmin sanna nefnilega að
vegfarendur eru með á nótunum
og láta yfirvöld að sjálfsögðu vita ef
minnsti grunur leikur á eldsvoða.
hlh
Sverrir Karlsson í Grundarfirði tók
þessa skemmtilegu mynd í snjónum
í bænum á dögunum. Suður afrískt
par á ferðinni lét ekki gullið tækifæri
renna sér úr greipum, léku sér að-
eins í snjónum og bjuggu til þennan
flotta snjókarl á torginu milli Sam-
kaupa og Heilsugæslustöðvarinnar.
Heyrst hefur af fleirum sem nýttu
snjóinn til leikja í Grundarfirði og
nágrenni. Snjósleðamenn hafi m.a.
farið upp í Helgrindur á vélfákum
sínum og einnig hafi fjallaskíðafólk
beint ferðum sínum þangað.
þá
Á fundi sínum þriðjudaginn 15.
mars sl. lagði sveitarstjórn Dala-
byggðar fram bókun þar sem hún
hvetur til þess að Póst- og fjar-
skiptastofnun hefjist þegar í stað
handa við gerð áætlunar um ljós-
leiðaravæðingu landsins alls. Í
bókuninni segir að miðað við fyr-
irliggjandi gögn ætti að vera raun-
hæft að tengja þá 1.700 staði/lög-
heimili sem liggja utan svokall-
aðra markaðssvæða á fimm árum.
Sveitarstjórn Dalabyggðar tel-
ur að þessir staðir ættu að njóta
forgangs fram yfir þéttbýlli svæði
sem líkur eru til að fjarskiptafyrir-
tæki tengi á markaðsforsendum á
næstu árum. Sveitarstjórn telur eðli-
legt að sett verði kostnaðarhámörk
á alþjónustuhafa ásamt notenda-
og jöfnunarsjóð og að ekki sé gert
ráð fyrir aðkomu sveitarfélaga enda
málaflokkurinn á forræði ríkisins.
Umræðan á fundi sveitarstjórnar
fór fram í kjölfar þess að Póst- og
fjarskiptastofnun hefur birt um-
ræðuskjal á heimasíðu sinni. Það
er um framtíðarfyrirkomulag al-
þjónustu varðandi þá skyldu inn-
an alþjónustu, að útvega teng-
ingu við almenna fjarskiptanet-
ið. Stofnunin óskar eftir athuga-
semdum við skjalið fyrir 23. apríl
nk. Í bókun sveitarstjórnar Dala-
byggðar segir einnig að fyrir
liggi að Rarik ohf. vinni að því
að koma dreifikerfi sínu í jörð og
hvetur sveitarstjórn ríkisstofn-
anir og félög í ríkiseigu að taka
höndum saman og leita hag-
kvæmra leiða til að koma fjar-
skipta- og rafmagnsmálum dreif-
býlisins í gott horf. Það sé hægt,
til dæmis með því að sameinast um
lagningu jarðstrengja.
þá
Kveikti í rusli í leyfisleysi
Léku sér
í snjónum
Frá ljósleiðaravæðingu Hvalfjarðarsveitar sem
hófst í vetur.
Vilja ljósleiðara um Dalabyggð