Skessuhorn - 07.05.2014, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Þær Elísabet Sigurðardóttir og
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir eru
elstu núlifandi Akurnesingarn-
ir. Þær eru báðar fæddar 1916 og
búa á Höfða, hjúkrunar- og dval-
arheimili á Akranesi. Þær hugsa
vel um útlitið og fara báðar hálfs-
mánaðarlega í snyrtingu og lagn-
ingu á hárgreiðslustofuna á Höfða.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í
heimsókn á hárgreiðslustofuna
2. maí síðastliðinn en þá vildi svo
skemmtilega til að Elísabet varð
98 ára. Það var líf og fjör á hár-
greiðslustofunni. Í einum hár-
greiðslustólnum sat afmælisbarnið
Elísabet í miðri lagningu en í þeim
næsta sat Ragnheiður í hárblæstri.
Hárgreiðslumeistarinn Guðný Að-
algeirsdóttir nostraði við að greiða
þeim stöllum og snyrta augabrún-
irnar enda er þeim báðum umhug-
að um að líta vel út.
Gott að fá sérrítár
öðru hverju
Elísabet er fædd og uppalin í Bol-
ungarvík en kom ung að árum á
Akranes. „Ég var forstöðukona á
dvalarheimilinu Arnardal í nokkur
ár. Svo bjó ég í tíu ár í Ameríku,“
segir Beta, eins og hún er jafnan
kölluð. Hún situr og nýtur þess að
láta gera hárið fallegt í tilefni dags-
ins en hún kemur hálfsmánaðar-
lega í lagningu til Guðnýjar. Beta
er ágætlega ern og passar ávallt upp
á að vera hugguleg og snyrtileg til
fara. Hún segist vera góð til heils-
unnar, það sé kannski helst heyrn-
in sem sé farin að gefa sig. Hún er
dugleg að sækja viðburði á Höfða
og hefur gaman af. „Mér þykir líka
gott að fá mér sérrítár af og til. Ég
hef ekki hug á að hætta því í bráð,“
segir hún og brosir. Hún sagð-
ist eiga von á ættingjum í heim-
sókn í tilefni dagsins. „Ég veit samt
ekki hvað verður, ég ætla ekkert að
halda upp á afmælið,“ segir hún.
Galdurinn er að
njóta lífsins
Elísabet og Ragnheiður þekkj-
ast ekki einungis í gegnum Höfða
eða hárgreiðslustofuna. Þær hafa
þekkt hvor aðra í fjölda ára. „Það
er nú líkast til að við þekkjumst.
Við unnum saman,“ segir Beta.
„Já, ég vann hjá henni í Arnardal,
hér á árum áður,“ bætir Ragnheið-
ur við. Þær segja báðar að lang-
lífi hafi verið í fjölskyldum þeirra
og átti Ragnheiður systur sem
varð hundrað ára gömul. Aðspurð
að því hvert tilefnið sé fyrir hár-
greiðslunni þennan daginn svar-
ar Ragnheiður: „Það er fastur lið-
ur að reyna að vera hugguleg. Ég
kem hingað hálfsmánaðarlega í
lagningu, það þarf ekkert sérstakt
tilefni til þess.“ Ragnheiður hefur
alla tíð hugsað vel um hárið sitt.
„Mamma hugsaði vel um hárið á
mér þegar ég var ung. Ég var með
sítt hár, tvær stórar fléttur. Ég hef
alla tíð hugsað vel um hárið á mér
og geri það enn. Það er algerlega
ómissandi að koma í hárgreiðslu,“
segir hún.
Ragnheiður er næstelsta konan
á Akranesi, á eftir Elísabetu. Hún
er mánuði yngri en Beta, fædd í
Árna bæ á Akranesi 5. júní 1916.
„Ég er nú lítið fyrir veisluhöld, veit
ekki hvað við gerum í tilefni dags-
ins,“ segir Ragnheiður um afmælið
sem framundan er. Það má þó bú-
ast við því að hún muni líta vel út
á afmælisdaginn enda hugsar hún
vel um sig. Ragnheiður er ræðin
og fróð um sig og sína. Hún hefur
hingað til verið heilsugóð en lenti
þó nýlega í hjólastól. „Ég hef að-
eins fengið í bakið undanfarið og
það er enn að hrjá mig. Þetta er
partur af því að eldast, þetta fylgir
ellinni,“ segir hún og gantast með
aldurinn. Aðspurð segir hún gald-
urinn að langlífinu vera að njóta
þess að lifa. „Jú, eigum við ekki
bara að segja það,“ segir Ragn-
heiður að endingu og hlær.
grþ
Áhugamenn um handbolta í Snæ-
fellsbæ, þeir Pétur Steinar Jóhanns-
son þjónustustjóri VÍS, Björn Hilm-
arsson útibússtjóri Olís og Ólaf-
ur Hlynur Steingrímsson afhentu í
vikunni sem leið formönnum ung-
mennafélaganna Víkings Ólafs-
vík og Reynis Hellissandi ávísum
að upphæð kr 744.451. Þessi pen-
ingaupphæð er ágóði af landsleik
sem fram fór í vor milli Íslands og
Austurríkismanna og spilaður var í
Íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafs-
vík. Á sjöunda hundrað gesta var á
leiknum og stemningin góð. Hug-
myndin að þessum leik kom upp í
vetur þegar ákveðið var að leika tvo
heimaleiki í handbolta á milli land-
anna. Haft var samband við Einar
Þorvarðarson formann HSÍ um að
fá annan leikinn til Ólafsvíkur og
náðust samningar við hann um það.
Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir í
Snæfellsbæ komu auk þess að við-
burðinum. Ákveðið var í upphafi að
ágóði af leiknum færi til hins góða
starfs ungmennafélaganna í bæjar-
félaginu og hefur því nú verið fylgt
eftir.
af
Á myndinni eru þeir Pétur Steinar, Björn og Ólafur að afhenda peningana þeim Fríðu Sveinsdóttur gjaldgeri Umf. Víkings,
Hallveigu Hörn formanni félagsins, Sigursteini Þór Einarssyni formanni Reynis og Rakel Gunnarsdóttir meðstjórnanda í
Víkingi.
Gáfu ungmennafélögunum
ágóða af landsleik
Elstu núlifandi konurnar á Akranesi nýbúnar í lagningu ásamt Guðnýju Aðalgeirs-
dóttur hárgreiðslumeistara. Frá vinstri: Ragnheiður, Guðný og Elísabet.
Elstu konur Akraness
hugsa vel um útlitið
Í skýrslu Rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa frá síðasta ári kem-
ur fram að alvarlegum hjólreiða-
slysum hefur fjölgað undanfarin
ár frá tæplega tíu í um tuttugu á
ári. Reynslan undanfarin ár hefur
sýnt að á þessum árstíma fjölgar
reiðhjólaslysum mest. Það má að
hluta til rekja til aukinnar notkun-
ar reiðhjóla, en um 80% af slysum
verða mánuðina maí til október.
Nú í maí hefst hið árlega átaks-
verkefni ÍSÍ; „Hjólað í vinnuna.“
Því er ætlað að efla hreyfingu á
vinnustöðum um allt land. Það
má því búast við verulegri fjölg-
un hjólandi vegfarendum á næst-
unni, ekki einvörðungu börnum,
heldur fullorðnum einnig en færni
þeirra á hjólum er síst meiri en
barnanna.
Þeir sem ferðast á hjólum þurfa
að hafa í huga að hér á landi eru
stígar oft þröngir og á þeim er
oft mikil umferð gangandi fólks
og farartækja. Úti á götum þurfa
hjólreiðamenn að gæta sín á al-
mennri umferð og fylgja almenn-
um umferðarreglum. Flest slys í
tengslum við hjólreiðar eru vegna
áreksturs við ökutæki eða vegna
samstuðs við aðra á göngustíg-
um. Slys vegna falls af reiðhjóli
t.d. þegar reiðhjólamaður kastast
fram fyrir sig eftir að hafa heml-
að snögglega eru einnig algeng.
Höfuðáverkar eru sem fyrr alvar-
legustu afleiðingar reiðhjólaslysa.
Því er notkun reiðhjólahjálma
mikilvæg, en þeir eru sá öryggis-
búnaður sem dregur mest úr lík-
um á alvarlegum höfuðáverkum.
Ástæða er til að hvetja alla; börn
sem fullorðna til þess að nota allt-
af reiðhjólahjálm. Gangi ykkur
vel í umferðinni! mm
Aðgæsla vegna
aukinnar hjólaumferðar
Svokölluð lögreglumessa fór fram í
Akraneskirkju 1. maí að frumkvæði
Landssambands lögreglumanna.
Messan, sem var öllum opin, var
óvenjuleg að því leyti að Lögreglu-
kór Reykjavíkur sá um alla tónlist
og kom predikarinn einnig úr röð-
um laganna varða, Theódór Þórð-
arson yfirlögregluþjónn í Borgar-
nesi. Sóknarprestur Akurnesinga,
sr. Eðvarð Ingólfsson þjónaði fyrir
altari. Að athöfn lokinni var öllum
kirkjugetum boðið til kaffisamsætis í
safnaðarheimilinu Vinaminni, í boði
Lögreglukórsins og Landssambands
lögreglumanna.
„Vaskar konur úr Kirkjunefnd
Akraneskirkju héldu utan um kaffið
og sáu um meðlætið. Fjöldi kirkju-
gesta fór langt fram úr vonum og var
mál manna að vel hefði tekist til í alla
staði. Veður var líka með eindæm-
um gott og jók á hátíðleik athafnar-
innar,“ segir í fréttatilkynningu frá
Akraneskirkju. Á meðal gesta mátti
til dæmis sjá fyrrum lögreglumenn
og lögregluþjóna á frívakt, auk þess
sem vakthafandi lögregluþjónar á
Akranesi litu við á milli útkalla. Sú
hefð hefur skapast hjá Landssam-
bandi lögreglumanna að standa fyrir
messum 1. maí víðsvegar um land-
ið og hefur Lögreglukór Reykjavík-
ur þá jafnan tekið að sér söng. Áður
hafa slíkar messur meðal annars far-
ið fram í Skálholti, Akureyri og víða
á höfuðborgarsvæðinu. Nú var röð-
in komin að Akranesi og segir í til-
kynningunni að það hafi sannarlega
verið skemmtilegur viðburður að fá
hina söngvísu menn í fullum skrúða
í heimsókn.
grþ/ Ljósm. Guðmundur
Bjarki Halldórsson.
Fjölmenni við lögreglumessu