Skessuhorn - 07.05.2014, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Bjarki Jóhannesson lífefnafræðing-
ur frá Akranesi náði þeim merka
áfanga í lok apríl að fá grein eft-
ir sig og samstarfsfélaga sína birta
í hinu virta vísindatímariti Nature.
Birtingin er mikill áfangasigur fyr-
ir rannsóknir Bjarka og félaga. Í
greininni er fjallað um rannsókn á
stofnfrumum sem Bjarki vann að
undir handleiðslu Dr. Dieter Egli
hjá Stofnfrumurannsóknarstofu
New York borgar (e. New York
Stem Cell Foundation) í Banda-
ríkjunum. Bjarki sagði í samtali
við Skessuhorn að rannsóknin sem
greinin fjallar um snerti stofnfrum-
ur en Dr. Egli og aðrir eru búnir að
vinna að því að búa til stofnfrum-
ur með klónunartækni í mörg ár. ,,Í
greininni sem birtist í Nature lýs-
um við því t.d. hvernig við notuð-
um klónunartækni til þess að búa
til stofnfrumur úr fullorðnum syk-
ursýkis sjúklingi. Þar skiptum við
erfðaefni eggfrumu út fyrir erfða-
efni húðfrumu frá fullorðnum ein-
staklingi sem er með sykursýki 1.
Eftir að eggið hafði skipt sér örfá-
um sinnum tókst yfirmanni mín-
um að einangra stofnfrumurnar.
Mitt hlutverk í rannsókninni var
að sýna fram á að þetta væru full-
gildar stofnfrumur og að þeim væri
hægt að breyta í virkar insúlínfram-
leiðandi frumur. Dr. Dieter Egli
stjórnaði rannsókninni en ég og
vinnufélagi minn Dr. Mitsutoshi
Yamada erum fyrstu höfundar að
greininni,” segir Bjarki.
Mikilvæg rannsókn
Rannsóknin hefur vakið mikla at-
hygli og hafa stærstu fjölmiðlar
heims fjallað um niðurstöðu henn-
ar, m.a. CNN og NBC. ,,Við þótt-
umst vita að þessi grein myndi
vekja einvherja athygli en það kom
mér opna skjöldu að margir af
stærstu fjölmiðlum heims skyldu
gera þessu jafn góð skil og raun
bar vitni.” Hann segir stofnfrum-
ur geta orðið að hvaða líkamsvef
sem er og er því um ákaflega mikil-
vægar rannsóknir að ræða. ,,Stofn-
frumur geta til dæmis orðið að
þeim insúlínframleiðandi frumum
sem vantar í sjúklinga með sykur-
sýki. Vonir standa til að einhvern
tíma verði hægt að koma þessum
frumum fyrir aftur í sjúklingun-
um. Þetta er hins vegar framtíðar-
draumur og mikil vinna á eftir að
eiga sér stað áður en það kemur í
ljós hvort að það sé fýsilegt,” segir
Bjarki. ,,Hægt er að búa til stofn-
frumur á fleiri en einn hátt og fyr-
ir höndum er mikil vinna við það
að bera saman kosti og galla fruma
sem gerðar eru með þessarri nýju
tækni og öðrum aðferðum.”
Frá Akranesi til
New York
Bjarki er fæddur og uppalinn Ak-
urnesingur, sonur hjónanna Guð-
rúnar J. Guðmundsdóttur augn-
læknis og Jóhannesar Guðjónsson-
ar endurskoðanda. Hann stund-
aði nám á náttúrufræðibraut í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
og lauk þaðan stúdentsprófi. Það-
an fór hann í BS nám í lífefnafræði
við Háskóla Íslands og í kjölfarið í
mastersnám í frumulíffræði undir
handleiðslu Guðmundar H. Guð-
mundssonar og Þórarins Guðjóns-
sonar. Eftir masterinn tók við dokt-
orsnám við Evrópsku sameindalíf-
fræðistofnunina (EMBL) í Heidel-
berg í Þýskalandi. Bjarki útskrifaðist
þaðan 2010 með sameiginlega dokt-
orsgráðu frá EMBL og HÍ. ,,Ég hef
verið mjög heppinn með kennara og
leiðbeinendur í gegnum tíðina og
ég hef alltaf fengið mikinn stuðning
bæði heima og í skólanum. Ég var
nú ekki með nein fastmótuð fram-
tíðarplön þegar ég var í FVA um árið
þó ég hafi hafi haft mikinn áhuga á
efnafræði og líffræði, enda oft erfitt
að hugsa langt fram í tímann þeg-
ar maður er svona ungur. Það mætti
því segja að eitt hafi leitt af öðru í
þessum málum.”
Kemur í ljós hvar
maður endar
Sem nýdoktor starfaði Bjarki í tvö ár
á starfsstöð EMBL í útjaðri Rómar-
borgar á Ítalíu áður en hann flutt-
ist vestur um haf. ,,Ég kom hingað
til New York fyrir rúmu ári síðan
og fór að vinna fyrir Dr. Dieter Egli
hjá NYSCF. Þetta er lítil stofnun
sem sérhæfir sig í stofnfrumu rann-
sóknum og er að miklu leyti rekin
á frjálsum framlögum, mestmegnis
frá efnameiru hugsjónafólki,” segir
Bjarki sem verður áfram hjá NYSCF
á næstu misserum. ,,Þegar maður
stundar rannsóknir þá stoppar mað-
ur til að byrja með frekar stutt við
á hverjum stað, lærir nýjar aðferðir
og nær sér í reynslu áður en maður
flytur sig yfir á næsta stað. Ég verð í
fyrirsjáanlegri framtíð áfram hérna í
New York en svo á það eftir að koma
í ljós hvar maður endar,” segir hann
að lokum. hlh
Skagamaður þátttakandi í merkum stofnfrumurannsóknum
Dr. Bjarki Jóhannesson.
Aðalfundur Límtrés Vírnets fór
fram á Hótel Borgarnesi 16. apríl
síðastliðinn. Afkoma fyrirtækisins á
síðasta ári var kynnt á fundinum og
nam hagnaður af rekstri 13,8 millj.
kr. Heildarvelta á síðasta ári var ríf-
lega 1.810 millj. kr. en heildareign-
ir eru samkvæmt efnahagsreikningi
metnar á 1.053 millj. kr. Eiginfjár-
hlutfall félagsins er um 27,9%. Að
sögn Stefáns Loga Haraldssonar
framkvæmdastjóra Límtrés Vírnets
varð raunaukning á tekjum fyrir-
tækisins um 8,4% frá rekstrarárinu
2012 sem verður að teljast ásættan-
legt miðað við ganginn í hagkerf-
inu. ,,Við gerðum ráð fyrir meiri
vexti í okkar áætlunum, eða 14,5%
aukningu. Sú tala miðaðist við þann
efnahagsbata sem menn voru byrj-
aðir að tala um í upphafi síðasta árs
sem í raun varð ekkert verulegur.
Þó árið 2013 hafi farið mun bet-
ur af stað hjá okkur en árið 2012
þá datt botninn töluvert úr þegar
leið á árið. Síðustu þrír mánuðirn-
ir urðu síðan lakari en árið áður,”
segir Stefán Logi. Nokkur stærri
verkefni sem unnin voru á vegum
fyrirtækisins höfðu þó jákvæð áhrif
á verkefnastöðu fyrirtækisins og
nefnir Stefán sem dæmi byggingu
reiðhallanna á Kjóavöllum í Kópa-
vogi og að Lækjarmótum í Vestur-
Húnavatnssýslu.
Framleiðsluaukning í
flestum deildum
Starfsemi Límtrés Vírnets fer fram
á fjórum starfsstöðvum; í Kópavogi,
Reykholti í Bláskógabyggð, Flúð-
um í Hrunamannahreppi og loks í
Borgarnesi þar sem höfuðstöðvarn-
ar eru. Stefán segir að á síðasta ári
hafi meðalfjöldi heilsársstarfa ver-
ið 77 hjá fyrirtækinu samanborið
við 72 störf árið áður. Hann segir
starfsmenn fyrirtækisins hafi skil-
að mjög góðu starfi á síðasta ári
sem endranær. ,,Fyrirtækið er lán-
samt að njóta starfskrafta tryggra,
traustra og góðra starfsmanna,
sem margir hverjir eiga orðið lang-
an starfsferil að baki hjá fyrirtæk-
inu. Það er ómetanleg þekking og
reynsla sem býr í þessu fólki,” seg-
ir Stefán Logi. Framleiðsluaukning
var í nær öllum deildum fyrirtæk-
isins, utan límtrésverksmiðjunn-
ar á Flúðum þar sem hún minnk-
aði lítillega. ,,Um einungis 3,54%
minnkun á framleiðslumagni var á
Flúðum milli ára en rétt er að geta
þess að árið 2012 var það lang-
besta þar síðan 2008. Í yleininga-
verksmiðjunni í Reykholti nam síð-
an heildaraukning á framleiðslunni
um 23,4%. Velta byggingadeildar
jókst yfir heildina séð um 9% milli
ára. Þá var aukning í öllum deild-
unum í Borgarnesi. ”
Áhersla á markaðs-
setningu
Spurður út í rekstur fyrirtækisins
í ár og næstu misseri segir Stefán
Logi að rekstrarskilyrði séu ennþá
frekar mótdræg starfseminni. Fyr-
irtækið býr hins vegar yfir mikilli
framleiðslugetu og sé vel í stakk
búið til að takast á við aukin um-
svif á íslenska byggingamarkaðn-
um. ,,Aðstæður á fyrstu mánuðum
þessa árs hafa ekki verið neitt til að
kætast yfir og voru fyrstu þrír mán-
uðirnir heldur daprir. Það er ennþá
hörð samkeppni á frekar verkefna-
snauðum markaði og erfitt að fá
eðlilega framlegð á verkefni og
vörusölu. Ljósið er þó eitthvað að
birtast við sjóndeildarhringinn og
hefur byggingadeildin verið að fá
verkefni fyrir verksmiðjunar á Flúð-
um og í Reykholti, einhverja fjóra
mánuði fram í tímann. Endursölu-
aðilar sem við eigum í samstarfi við
eru nú orðnir bjartsýnir á komandi
misseri sem gefur fyrirheit um að
eitthvað sé að fara vænkast á mark-
aðinum,” segir Stefán sem bætir
því við að töluverðar vísbending-
ar séu um að margir hafi hug á að
ráðast í framkvæmdir í batnandi
efnahagsástandi. ,,Hér mætti nefna
sem dæmi að fjöldi fyrirspurna um
verkefni jókst nokkuð frá 2012 hjá
byggingadeildinni. Þetta gefur til-
efni til að ætla að menn séu að bíða
eftir að ástandið batni til að hefja
framkvæmdir.”
Stefán segir að fyrirtækið hafi
lagt mikið púður í markaðsmál á
síðasta ári sem vonandi á eftir að
skila frekari vexti í framtíðinni.
,,Við ákváðum að stórefla mark-
aðssetningu fyrirtækisins á net-
inu, í bæklingum og í almennum
kynningum á flestum verksviðum
okkar. Við réðum til liðs við okk-
ur ungan og vel menntaðan mark-
aðsmann sem hefur verið í fullu
starfi hjá okkur til að sinna þess-
um verkefnum. Bindum við von-
ir við að þessi aukna áhersla okk-
ar á markaðsmálin skili sér í náinni
framtíð.”
Verðum áfram
í fararbroddi
Stefán er þrátt fyrir ýmsar áskor-
anir bjartsýnn fyrir hönd fyrirtæk-
isin. ,,Við höfum verið að búa okk-
ur undir meiri umsvif og bæta að-
stöðu okkar á markaðinum, t.d.
með áherslunni í markaðsmálum,
en ekki má gleyma því að á síðasta
ári ákváðum við einnig að bretta
upp ermar í þróunar- og nýsköpun-
arverkefnum í fyrirtækinu. Við réð-
um til starfa verktaka til að sinna
þeim málum sérstaklega, í þrjú af-
mörkuð verkefni. Í framhaldinu
höfum við síðan ráðið starfsmann
í fullt starf hjá okkur til að sinna
þessum málum áfram og bindum
við miklar vonir við að sú vinna
komi okkur uppá tærnar í vöruþró-
un, auknu rekstrarhagræði og nýj-
ungum í tækjabúnaði, svo eitthvað
sé nefnt. Ástæða ætti því að vera
til að horfa björtum augum fram á
veginn og trúa því að sérstaða okk-
ar og þjónustustyrkur skili okkur
áfram í fararbroddi í okkar fram-
leiðslu- og söluvörum.” hlh
Stefán Logi Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Límtrés Vírnets.
Hagnaður hjá Límtré Vírneti þrátt fyrir hægan efnahagsbata
Höfuðstöðvar Límtrés Vírnets í Borgarnesi.