Skessuhorn - 10.09.2014, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014
Forsvarsmenn Íslandspósts héldu
síðasta miðvikudag opinn kynning-
arfund á Landnámssetrinu í Borg-
arnesi. Fundurinn var opinn öll-
um en einkum voru það fulltrú-
ar sveitarstjórna sem mættu. Þrátt
fyrir að fundurinn tæki á málefni
sem brunnið hefur mjög á mörgum
íbúum, þá sérstaklega í dreifbýli á
Vesturlandi, mættu aðeins þrett-
án auk blaðamanns Skessuhorns.
Tilgangur fundarins var að kynna
breytingar í þjónustu og rekstri
Íslands pósts. Fyrirtækið þarf að
skerða þjónustu sína til að koma í
veg fyrir taprekstur. Rætt var um
afleiðingar þessara breytinga. Ingi-
mundur Sigurpálsson forstjóri Ís-
landspósts hélt kynningu um mál-
ið en honum til halds og traust var
Hörður Jónsson framkvæmdastjóri
pósthúsasviðs.
Fækkun bréfasendinga
kallar á hagræðingu í
rekstri
Ingimundur hóf fundinn með að
kynna ýmsar breytingar sem átt
hafa sér stað í rekstrarumhverfi Ís-
landspósts og tók þar skýrt fram að
póstþjónusta á Íslandi stæði nú á
krossgötum. Íslandspóstur er opin-
bert hlutafélag í eigu íslenska rík-
isins. Hlutverk þess er að sinna al-
þjónustu í póstdreifingu. Útskýrði
Ingimundur væntanlega fækkun
póstdreifingardaga. Hún sé til að
mæta samdrætti í póstsendingum
undanfarin ár og minni tekjum.
Sagði Ingimundur að tækniþróun
síðustu áratuga hafi leitt til fækk-
unar á hefðbundnum póstsending-
um um 41% og alþjónustan, dreif-
ing sendinga undir 20 kílóum, ver-
ið rekin með tapi í nokkur ár. Út-
skýrði Ingimundur að Íslandspóst-
ur væri rekinn eins og hvert annað
fyrirtæki en ábyrgð þjónustunnar
lægi hjá stjórnvöldum. Starfsmenn
Íslandspósts gera ráð fyrir áfram-
haldandi fækkun póstsendinga og
því hafi þurft að grípa til ráðstafana
sem felast í „aðlögun“ dreifingar-
daga, tilfærslu póstkassa í dreifbýli
og fækkun pósthúsa víða um land.
Gerði Ingimundur grein fyrir því
að þrjár kannanir hefðu verið gerð-
ar á vegum mismunandi aðila og
hafi niðurstöður þeirra sýnt að fólki
þætti nóg að fá póst sendan á heim-
ili sín tvisvar til þrisvar í viku. Vissu-
lega gerðu þeir hjá Íslandspósti sér
fyllilega grein fyrir því að fækkun
sendingardaga kæmu sér verr fyrir
fólk í dreifbýli en vegna samdrátt-
ar hefði þessi leið verið farin og
benti á að rafrænar sendingar væru
þegar farnar að fylla í skarðið fyrir
þá daga sem pósturinn berst ekki.
Hins vegar, eins og réttilega var
bent á af einum fundargesti, er fjar-
skiptaþjónustu í dreifbýli Borgar-
byggðar mjög ábótavant og myndi
með engu móti getað komið í stað
þess að fá póstinn afhendan í bréfi
meðan þannig háttar. Við því feng-
ust engin haldbær svör frá forsvars-
mönnum Íslandspósts nema að þeir
væru, eins og áður var tekið fram,
að fylgja kröfu stjórnvalda um hag-
ræðingu í rekstri. Tóku þeir fram
að Íslandspóstur skerði ekki þjón-
ustu án samþykkis Póst- og fjar-
skiptastofnunar.
Póstkassar voru
ranglega staðsettir
Varðandi staðsetningu bréfalúga og
póstkassa útskýrðu þeir Ingimund-
ur og Hörður að það sé stefna Ís-
landspósts að bréfberar muni í
framtíðinni hætta að bera póst
heim að dyrum. Þess í stað verði
komið fyrir póstkössum við lóða-
mörk sérbýla líkt og þekkist víð-
ast hvar erlendis. Með því styttist
gönguleið bréfbera um allt að 20
til 25%. Í dreifbýli hafi hins veg-
ar sú breyting sem gerð hefur verið
að undanförnu verið vegna þess að
fjöldi póstkassa var ranglega stað-
settir samkvæmt reglum sem Ís-
landspóstur vinnur eftir. Færsla
kassanna nær þjóðvegum sparar nú
þegar mörg hundruð þúsund kíló-
metra akstur póstbíla á hverju ári.
Póstbíll í stað pósthúsa
Þá var kynnt fækkun pósthúsa. Í
dag eru 64 pósthús starfrækt víðs-
vegar um landið en Íslandspóst-
ur hefur þegar hafið fækkun þeirra
á fámennum stöðum eins og t.d.
á Vestfjörðum. Byrjað er að veita
þjónustu á þeim svæðum með
póstbílum sem afgreiða eftir þörf-
um. Að sögn Ingimundar hyggjast
þeir hjá Íslandspósti halda áfram
að þróa þá aðferð í minni byggð-
arlögum. Spurt var hvort fækka
ætti pósthúsum enn frekar á Vest-
urlandi og fengust þau svör að það
væri ekki á áætlun nú en mjög lík-
lega myndi koma til þess í framtíð-
inni. Þá yrði póstbílalausnin útfærð
enn frekar.
Enn að þéna á
frímerkjaframleiðslu
Að lokum spurði einn fundargestur
hvort frímerkjaframleiðsla póstsins
væri enn arðbær, með það í huga
að þar væri ef til vill hægt að draga
úr kostnaði án þess að skerða þjón-
ustu við landsbyggðina. Svöruðu
forsvarsmenn Íslandspósts því til
að frímerkjaframleiðsla þeirra væri
enn mjög arðbær þrátt fyrir að
bréfasendingum hafi fækkað veru-
lega síðustu ár. Það eru frímerkja-
safnarar víðsvegar um heiminn sem
eru duglegir að kaupa þau. jsb
Forsvarsmenn Skipavíkur í Stykk-
ishólmi segja að byggingastarfsemi
fyrirtækisins hafi eflst að undan-
förnu. Verkefnastaðan sé góð og
greinilegur vöxtur í byggingaiðnað-
inum. Það sé hins vegar orðin vönt-
un á iðnaðarmönnum til að takast
á við vaxandi verkefni og það geti
orðið vandamál þegar fram í sæk-
ir. Sævar Harðarson framkvæmda-
stjóri og Sigurjón Jónsson stjórn-
arformaður segjast bjartsýnir þegar
horft sé til næstu ára. Stykkishólm-
ur hafi greinilega aðdráttarafl og nú
sé aftur að aukast spurn eftir orlofs-
húsum í bænum eftir að úr henni
dró í bankahruninu. Skipavík hefur
verið að byggja og selja hús. Núna
um þessar mundir er fyrirtækið að
byggja tvö einbýlishús í bænum og
tvö orlofshús í orlofshúsabyggðinni
Arnarborg. Að þeim meðtöldum er
Skipavík búið að byggja og selja 14
hús í Arnarborg og þá verða aðeins
sex lóðir eftir af þeim 20 sem Skipa-
vík fékk úthlutað á sínum tíma. Sig-
urjón Jónsson stjórnarformaður
í Skipavík segir að til dæmis verði
kaup krónubréfaeigenda í gjaldeyr-
ishöftunum á húseignum í Reykja-
vík til að losa um á fasteignamark-
aðnum. Húseigendur í borginni,
meðal annars eldra fólk, kjósi að
kaupa minni og þar með ódýrari
eignir úti á landsbyggðinni. Þar sé
Stykkishólmur góður valkostur.
Fjölbreytt starfsemi hjá
Skipavík
Starfsmenn Skipavíkur eru í dag um
40. Þeim hefur heldur fjölgað að
undanförnu. „Við þyrftum að bæta
við smiðum og iðnaðarmönnum en
þá er bara ekki að fá,“ segir Sævar.
Skipavík starfrækir sem kunnugt er
eina elstu skipasmíðastöð landsins,
þá elstu á sömu kennitölu. Sögu
Skipavíkur má rekja allt aftur til
ársins 1928, til vélsmiðju Kristjáns
Rögnvaldssonar og skipasmíða-
stöðin var stofnuð nokkrum árum
síðar. Starfsemi skipasmíðastöðvar-
innar og vélsmiðjunnar er enn öfl-
ug. Á ársgrundvelli eru tekin upp
40 skip í stöðinni, flest yfir sumar-
ið og í sumar voru á tímabili þrjú
skip uppi í stöðinni og þrjú niðri
við dráttarbrautina. Þegar blaða-
maður Skessuhorns var á ferðinni
var báturinn Matthías frá Rifi uppi
í stöðinni. Skipavík starfrækir einn-
ig rafmagnsverkstæði og skoðun-
arstöð fyrir björgunarbáta. Einn-
ig rekur fyrirtækið bygginga- og
gjafavöruverslun í gamla miðbæn-
um í Stykkishólmi. Starfsemin er
því fjölbreytt.
Treysta á
frjálsa markaðinn
Aðspurðir segja þeir Sævar og Sig-
urjón að ekkert hafi verið um út-
boðsverk síðustu árin, fyrir utan
verkefni við Rjúkandavirkjun í
fyrra. „Við sjáum ekki fram á að
sveitarfélögin eða ríkið muni fram-
kvæma mikið næstu árin. Þess
vegna treystum við bara á okk-
ar fyrirtæki og góða starfsmenn
þess. Það eru útgerðirnar og fyrir-
tækja- og einstaklingsmarkaðurinn
sem við treystum á. Við höfum átt
í þeim hópi trygga viðskiptavini í
gegnum tíðina,“ sögðu þeir Sævar
og Sigurjón að lokum. þá
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts á fundinum í Borgarnesi.
Fámennt á opnum fundi Póstsins
Annað tveggja einbýlishúsa sem
Skipavík byggir í Stykkishólmi, en í
þessu húsi verður einnig Æðarsetur
Íslands.
Góð verkefnastaða en vöntun á
iðnaðarmönnum hjá Skipavík
Sævar Harðarson framkvæmdastjóri og Sigurjón Jónsson stjórnarformaður í skipasmíðastöð Skipavíkur þar sem Matthías
SH frá Rifi var í slipp.
Skip uppi í dráttarbrautinni hjá
Skipavík, en um tíma í sumar voru þar
þrjú skip uppi og önnur þrjú niðri við
dráttarbrautina.