Skessuhorn


Skessuhorn - 10.09.2014, Side 21

Skessuhorn - 10.09.2014, Side 21
21MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 Stöðvun makrílveiða kom sem reiðarslag fyrir smábátasjómenn Landssamband smábátaeigenda (LS) fundaði síðastliðinn miðviku- dag með Sigurði Inga Jóhannssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra. Á fundinum fylgdi LS eft- ir erindi sínu um framhald makríl- veiða smábáta þar sem óskað var eftir auknum veiðiheimildum til að koma í veg fyrir stöðvun veiða, að auka kvóta smábátanna í tíu þúsund tonn úr 6.800 tonnum. „Krafa LS er því hógvær þar sem 10 þúsund tonn eru innan við 6% af fyrirhug- uðum heildarafla Íslendinga. Þrátt fyrir góð rök sem LS hafði fram að færa kvaðst ráðherra ekki ætla að bæta við veiðiheimildir smábáta,“ segir Örn Pálsson framkvæmda- stjóri LS. Ráðherra lét ekki þar við sitja heldur birti Fiskistofa sama dag og smábátasjómenn ræddu við ráðherra, auglýsingu í Stjórnar- tíðindum um stöðvun makrílveiða smábáta. Þar segir að frá og með 5. september 2014 séu makrílveiðar með línu og handfærum bannaðar. „Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir makrílveiðimenn og hundruðir að- ila sem haft hafa atvinnu við um- setningu hans. Flestir áttu von á að ráðherra mundi taka vel í erindi LS, ekki síst vegna þeirra góðu tíðinda frá Hafrannsóknastofnun um að mælingar sýni að í íslenskri lögsögu hafi aldrei verið jafn mikill mak- ríll,“ segir Örn Pálsson hjá LS. Ráðherra ekki haggað Í tilkynningu frá sjávarútvegs- ráðuneytinu sl. fimmtudag sagði: „Stöðvun veiðanna samræmist al- mennri framkvæmd fiskveiðistjórn- unar þar sem byggt er á viðmiðun- ar- eða heildarafla. Í upphafi hverr- ar vertíðar sem stýrt er með þessum hætti má því vera ljóst hvað er til ráðstöfunar. Vertíðin hefur gengið vel í ár og hefur metfjöldi báta verið á veiðum og því nokkur þrýsting- ur á að veiðitímabil smábáta verði lengt.“ Um þetta sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráherra: „Við leggjum ríka áherslu á í okk- ar fiskveiðistjórnun, og höfum gert í makrílsamningaviðræðum á al- þjóðlegum vettvangi, að veiðum sé stýrt á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Í þessu felst að fara eftir aflaviðmið- unum og því er heildarafla ráðstaf- að til skipa eða flokka áður en veið- ar hefjast á hverju veiðitímabili. Var það gert við ákvörðun viðmiðun- arafla smábáta í makríl fyrir þessa vertíð. Honum er nú náð og veið- um því að ljúka.“ Kom sjómönnum í opna skjöldu Síðasti fimmtudagur var því síðasti dagurinn sem smábátar máttu veiða makríl á þessari vertíð. Skessuhorn var á bryggjunni síðdegis þann dag sem stöðvun veiðanna fór að ber- ast manna á millum. Skemmst er frá því að segja að tíðindi þessi komu mönnum í opna skjöldu en mok- veiði hafði verið dagana og vikurn- ar áður. Gerðu menn almennt ráð fyrir að leyft yrði að veiða út sept- ember og að ráðherra myndi gefa út viðbótarkvóta fyrir smábátana. Sjó- menn krókabátanna voru undrandi yfir vinnubrögðum stjórnvalda og hversu skamman tíma þeir fengu til að ljúka veiðunum. Síðdegis á mið- vikudaginn ræddi tíðindamaður Skessuhorns við þrjá makrílveiðisjó- menn á bryggjunni í Ólafsvík. Þeir voru rasandi yfir þessari fyrirvara- lausu stöðvun, enda var mokveiði á makríl í hafnarkjaftinum í Ólafsvík. „Ég má ekki vera að því að tala við þig“ Guðbjartur Gissurarson skipstjóri á Emmu II SI var ósáttur og vildi skora á ráðherra sjávarútvegsmála að auka kvótann hið snarasta, enda mjög blóðugt að hætta í mokveiði. „Þetta er fíflaskapur i ráðamönnum og ekkert annað. Að auki er mak- ríllinn ránfiskur sem étur seiðin frá LÍÚ! Ég verð að drífa mig út aft- ur,“ sagði Guðbjartur og mátti ekki vera að því að ræða við blaðamann. „Það er skammur tími til stefnu og mokveiði á miðunum,“ bætti hann við og var þar með rokinn um borð í bát sinn. Á að veiða sem mest af þessum ránfiski Þorvarður Jóhann Guðbjartsson útgerðamaður Guðbjarts SH, var alls ekki ánægður með þau tíðindi að stöðva makrílveiðar svona fyr- irvaralaust. „Auðvitað á að veiða meðan fiskurinn er hér alveg upp í bæjarlæknum,“ segir Þorvarður. „Það er mokveiði og ég skil ekki þessa ákvörðun en það var svo sem viðbúið í þessum skrípaleik stjórn- málamanna,“ bætir Þorvarður við. „Makrílveiðarnar hafa komið vel út í sumar hjá okkur þrátt fyrir að vera aðeins um einn mánuð að veiðum, er aflinn kominn vel yfir 100 tonn. Auðvitað á að veiða sem mest af þessum ránfiski,“ sagði Þorvarður Jóhann. „Þetta er bara til að bæta gráu ofan á svart. Síðustu ár hef ég gert út tvo báta á línuveiðar en ýsu- skerðingin var mikil og er ég aðeins með 68 tonn af ýsu en 457 tonn af þorski og get því ekki gert út ann- an bátinn á næstu vertíð. Hvernig á að gera út tvo báta með svona litlar heimildir í ýsu,“ spyr Þorvarður og svarar sjálfum sér; „Það er bara ekki hægt. Ég varð að segja upp fjórum starfsmönnum hjá mér út af þessari vitleysu fiskifræðinga,“ sagði hann að lokum. Fengu bara fjóra daga „Þetta er bara fáránlegt og blóð- ugt,“ sagði Ólafur Friðbert Einars- son skipstjóri á Ólafi HF. „Þetta er tóm steypa að hætta í svona mok- veiði og einmitt þegar makríll- inn er sem verðmætastur. Við vor- um að bíða eftir löndun og fengum 300 kíló í hafnarkjaftinum á með- an við vorum að bíða. Það er mak- ríll allsstaðar,“ segir Ólafur enn- fremur og bætti við að ekki megi gleyma þeim strandveiðibátum sem ætluðu á makrílveiðar en fá einung- is fjóra daga á veiðum. „Þetta kost- aði þá margar miljónir að græja sig á þessar veiðar. Ég get ekki séð bet- ur en að þetta sé ólögleg aðgerð stjórnvalda að stöðva þetta svona fyrirvaralaust.“ Aðspurður um afla- brögð í sumar segir Ólafur þá vera komna með 180 tonn. „Ég verð að drífa mig út aftur,“ sagði Ólafur og tók stefnuna á miðin að kvöldi næstsíðasta dags makrílveiða smá- bátanna. af Makríll á hafnarbakkanum í Ólafsvík. Ásmundur Skeggjason á Álfi SH-414 er hér að draga inn síðustu fiskana á vertíð- inni sl. fimmtudag.Guðbjartur Gissurarson á Emmu II. Þorvarður Jóhann Guðbjartsson á Guðbjarti SH. Ólafur Friðbert Einarsson á Ólafi HF. Súlu bjargað úr netadræsu Félagarnir Jón Einarsson og Gunn- ar Ingi Gunnarsson á Glaumi SH voru á siglingu rétt utan við Ólafs- vík í síðustu viku þegar þeir rák- ust á súlu sem var flækt í netstubb. Komu þeir súlunni til bjargar og náðu henni upp í bátinn. Heldur lét fuglinn ófriðlega þegar um borð var komið og beit súlan Gunnar Inga hressilega í fingurna. Þrátt fyrir það var netið losað af vængnum og súl- unni síðan gefið frelsi. Flaug hún á vit ævintýranna á ný. af

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.