Skessuhorn - 10.09.2014, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014
Fengu bátsflak í nótina norðaustur af Ólafsvík
Dragnótarbáturinn Ólafur Bjarna-
son SH frá Ólafsvík var á veið-
um norðaustur af heimahöfn eft-
ir hádegið síðastliðinn föstudag.
Óhætt er að segja að veiðiferð-
in hafi í senn verið óvenjuleg og
endasleppt. Í fyrsta hali kom inn
tonn af fiski. Í öðru halinu slitnaði
tógið en í því þriðja fengu skip-
verjar bátsflak í nótina og var þá
ákeðið að sigla í land. Í ljós kom
að í nótina hafði komið flak af báti
sem fórst fyrir 24 árum á svip-
uðum slóðum, nánar tiltekið 7.
febrúar 1990. Báturinn hét Doddi
SH-222 og um borð voru þrír
menn sem öllum var bjargað heil-
um á húfi yfir í Auðbjörgu SH.
Doddi SH 222 fékk á sig brotsjó
út af Rifi um kvöldmatarleytið
7. febrúar 1990 einmitt um hálfa
fjórðu sjómílu frá heimahöfn. Í
fréttum um slysið segir að talið er
að röð kraftaverka hafi bjargað lífi
skipverjanna þriggja, þeirra Þrast-
ar Karlssonar skipstjóra, Ársæls
Ársælssonar og Magnúsar Einars-
sonar. Þröstur segir þannig frá í
viðtali við Morgunblaðið um mið-
nætti sama dag: „Við héldum ró
og yfirvegun í því sem við gerð-
um til að bjarga okkur, þegar þrír
brotsjóir höfðu lagt Dodda á hlið-
ina og hvolft honum eftir stutta
stund,“ sagði Þröstur í viðtalinu.
Eftir að brotsjór hvolfdi Dodda
náðu skipverjar að komast í björg-
unarbát eftir að hafa svamlað í
sjónum hangandi utan á Dodda
á hvolfi. Þremur stundarfjórð-
ungum síðar var þeim bjargað
um borð í Auðbjörgu SH 197, 70
tonna bát undir stjórn Rafns Guð-
laugssonar. Nú er Doddi semsagt
kominn á þurrt eftir að hafa hvílt
í aldarfjórðung á hafsbotni. Doddi
SH var 9 lesta plastbátur, önn-
ur nýsmíði Jóhanns Ársælssonar
hjá Bátasmiðjunni Knörr á Akra-
nesi sem hann smíðaði eftir sömu
teikningu.
mm Doddi SH að komast á bíl á bryggjunni. Á myndinni eru Magnús Jónasson skipstjóri á Ólafi Bjarnasyni SH og Birgir Tryggva-son kranamaður. Ljósm. af.
Misjöfn viðbrögð þingmanna NV kjördæmis við stöðvun makrílveiða
Í ljósi þess hversu umdeild stöðv-
un veiða smábáta á makríl reynd-
ist í síðustu viku var kallað eftir við-
brögðum þingmanna Norðvestur-
kjördæmis við málinu. Fengu þeir
allir svohljóðandi spurningu: „Hver
er ykkar skoðun á stöðvun makríl-
veiða smábáta frá og með 5. sept-
ember 2014 með reglugerð sjávar-
útvegsráðuneytisins?“ Þingmenn
í Norðvesturkjördæmi svöruðu
spurningunni hratt og örugglega.
Tekur undir rök LS
Lilja Rafney Magnúsdóttir þing-
maður VG í kjördæminu segir:
„Mín skoðun er sú að það sé skyn-
samlegt að lengja í veiðunum ef
engin ofveiði blasir við. Ég tek því
að stærstum hluta undir rök Lands-
sambands smábátaeigenda og tel
mikilvægt að stuðla að áframhald-
andi uppbyggingu makrílveiða hjá
smábátum.“
Það var búið að ákveða
þetta svona
Elsa Lára Arnardóttir Framsókn-
arflokki, samflokkskona sjávarút-
vegsráðherra, sendi blaðinu svo-
hljóðandi svar fyrir sína hönd og
samflokksmanna sinna í kjördæm-
inu; þeirra Gunnars Braga Sveins-
sonar, Ásmundar Einars Daðasonar
og Jóhönnu Maríu Sigmundsdótt-
ur: „Þingmenn Framsóknarflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi vita að
makrílveiðar hafa mikla þýðingu
fyrir smábátasjómenn. Hins vegar
er það svo að í júní sl. fundaði sjáv-
arútvegsráðherra með smábátasjó-
mönnum og gerði grein fyrir því
að aflaheimildin yrði 6.817 tonn á
þessu ári. Það er talsverð aukning
frá í fyrra þegar aflaheimild var í
fyrstu ákvörðuð 3.200 tonn en veið-
ar enduðu í tæplega 4.700 tonnum.
Ljóst er að aflanum hefur verið
náð og veiðar því búnar. Þingmenn
Framsóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi hafa verið í og munu
halda áfram viðræðum við sjávarút-
vegsráðherra vegna málsins,“ segir
Elsa Lára.
„Ráðherra hefur stuðn-
ing minn til að auka
kvótann“
Haraldar Benediktssonar segist
taka undir með þeim sem vilja veiða
meiri makríl á smábátum og segir
að ráðherra hafi fengið áskoranir
um slíkt. „Ég hef ekki yfirsýn yfir
hvort allir útgerðarflokkar hafi nýtt
sínar heimildir. Ef svo er ekki, þá
að láta reyna á að færa á milli flokka
– ef það er heimilt samkvæmt lög-
um,“ segir Haraldur. Hann bæt-
ir því við að sjónarmið ráðherra sé
að fara eftir þeim kvóta sem hann
gaf út – og sýna í verki ábyrga nýt-
ingu á stofninum. „Við getum síðan
haft allar skoðanir á hvort stofninn
sé rétt mældur og framvegis. Hitt
ber að muna líka að öllum var ljóst
hvert magnið var sem útgefið var
í kvóta og þegar vel gengur klár-
ast það. Það er skiljanleg gremja
manna sem fjárfesta í búnaði og
vel gengur að veiða – að verða að
hætta. Við getum ekki farið eft-
ir reglum stundum og stundum
ekki. En meginmálið er hvort ráð-
herra getur gefið út meiri heimild-
ir. Hann hefur að sjálfsögðu stuðn-
ing minn til þess,“ segir Haraldur.
Makríllinn er mikið
inngrip í lífríkið
Einar Kristinn Guðfinnsson fv.
sjávarútvegsráðherra og þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins í NV kjör-
dæmi svarað á þessa lund: „Það er
alveg ljóst að það þarf að taka fyrir-
komulag makrílveiðanna til endur-
skoðunar. Sjálfur hef ég verið þeirr-
ar skoðunar að styrkja þyrfti grund-
völl þeirra útgerða sem eru að fiska
til vinnslu í landi, svo sem eins og
smábátanna, en einnig annarra og
stærri báta. Eins og mál hafa ver-
ið undanfarin ár þá hefur ríkt mik-
il óvissa á hverju ári og aldrei verið
ljóst fyrr en verulega er liðið á ver-
tíðina hvað kemur endanlega í hlut
hvers og eins. Þetta gerir það að
verkum að menn hafa hvorki get-
að skipulagt veiðarnar né vinnsl-
una og þess vegna verið hikandi
við að fjárfesta. Þetta er líka brýnt
vegna þess að makrílveiðar í svona
miklu magni eins og undanfarin ár
eru nýtilkomnar og makríll er núna
vaðandi á svæðum sem hann sást
ekki á áður. Það er enginn vafi á að
tilkoma makrílsins er mikið inngrip
í lífríkið og getur haft áhrif á aðra
veiðistofna, eins og sjómenn hafa
bent á. Ég veit að sjávarútvegsráð-
herra hefur verið að vinna í þessum
málum og vonast til að niðurstaða
liggi fyrir sem fyrst,“ sagði Einar
Kristinn í svari sínu.
Hefði viljað meiri heim-
ildir fyrir smábátana
„Ég tel ekki rétt að stöðva veið-
ar smábáta á makríl nú í byrjun
september eins og ráðherra hef-
ur gert. Ég hefði talið eðlilegt að
auka heimildir smábáta til mak-
rílveiða og veita þannig tækifæri
til að veiða og nýta þann makríl,
sem er hér við landsteinana,“ seg-
ir Guðbjartur Hannesson þing-
maður Samfylkingar. „Samfylking-
in hefur talið að úthlutun aflaheim-
ilda úr deilistofnum eins og mak-
ríl eigi að vera með öðrum hætti
en í eldra fiskveiðistjórnunarkerfi.
Um leið höfum við stutt breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu
til að styrkja byggðir landsins s.s.
strandveiðar, makrílveiðar smábáta,
kvótaúthlutun til ákveðinna byggða
auk þess að vilja opna kerfið í heild
m.a. með almennu kvótaþingi.
Þannig studdi ég reglugerðir fyrr-
verandi ríkisstjórnar um skiptingu
aflamarks hvers árs, m.a. um að
smábátar fengju drjúga hlutdeild í
makrílveiðum. Þó tel ég að sá hlut-
ur hefði átt að vera meiri. Þá studdi
ég heilshugar þá áherslu sem fyrr-
verandi ríkisstjórn lagði á að mak-
ríll færi til manneldis, sem jók mjög
verðmæti aflans og skapaði atvinnu.
Ljóst er að óvissa er um hvort lög
um stjórn fiskveiða um kvótasetn-
ingu aflahlutdeilda eða lög um út-
hafsveiðar eiga að gilda um makríl-
inn. Sá ágreiningur og úrskurður
Umboðsmanns Alþingis ætti ekki
að vera rök fyrir að stöðva veiðar
smábáta nú, það mál er í sjálfstæðri
skoðun í ráðuneytinu og er væntan-
lega til skoðunar við endurskoðun
laga um stjórn fiskveiða. Rök fyrr-
verandi ríkisstjórnar voru að úti-
lokað væri að miða úthlutun afla-
heimilda í makríl eingöngu við afla-
reynslu þriggja liðinna ára, engir
alþjóðlegir samningar hefðu náðst
um heildarafla úr stofninum og því
ekki rétt að binda sig við þá reglu,“
segir Guðbjartur. Hann bætir því
við að eins og fram kemur í spurn-
ingu Skessuhorns, þá gengur mak-
ríllinn mjög nærri landi þessa dag-
ana og því sjálfsagt að leyfa smábát-
um að nýta hann. „Þessu til frekari
stuðnings er óljóst hver áhrif auk-
ins makríls hafa á vistkerfi sjávar
og hvort veiðar hans hafa ekki já-
kvæð áhrif á aðra þætti vistkerfisins.
Því verða fagmenn að svara,“ sagði
Guðbjartur.
mm
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Elsa Lára Arnardóttir.
Á strandveiðum úti fyrir Ólafsvík sl. fimmtudag. Ljósm. af
Haraldur Benediktsson.
Einar Kr. Guðfinnsson.
Guðbjartur Hannesson.