Skessuhorn - 29.10.2014, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Óska eftir
breytingum á
úthlutunar reglum
SNÆFELLSBÆR: Bæjar-
ráð Snæfellsbæjar hefur ósk-
að eftir að gerðar verði breyt-
ingar á úthlutunarreglum fyr-
ir byggðakvóta í Snæfellsbæ.
Um orðalagsbreytingar í
þremur greinum er að ræða
og eru þær settar fram sökum
þeirrar staðreyndar að ekki er
hægt að landa afla til vinnslu
á Arnarstapa og Hellissandi. Í
1. grein reglnanna c-lið, ósk-
ar bæjarráð Snæfellsbæjar eftir
því að í stað orðalagsins „í við-
komandi byggðarlagi“ komi „í
viðkomandi sveitarfélagi“. Í 4.
gr. 1 málsgrein breytist orða-
lagið úr „í þorskígildum tal-
ið innan komandi byggðar-
lags“ í „í þorskígildum talin
innan viðkomandi sveitarfé-
lags.“ Í 6. grein 1. málsgrein-
ar breytist orðalagið úr „inn-
an hlutaðeigandi byggðarlag“
í „innan hlutaðeigandi sveitar-
félags.“ Í lok bréfs bæjarráðs-
ins til atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytisins segir að ef
orðið verður við þessum ósk-
um muni byggðakvótinn nýt-
ast innan sveitarfélagsins. Það
skipti miklu máli fyrir Snæ-
fellsbæ að geta nýtt úthlutað-
an byggðakvóta. –þá
Ágreiningur um
girðingastæði
BORGARFJ: Á fundi byggð-
arráðs Borgarbyggðar nýver-
ið var rætt um ágreining um
girðingarstæði í Krókslandi í
Norðurárdal. Lögð var fram
fundargerð afréttarnefnd-
ar Þverárréttar frá 8. október
þar sem fram kemur að eig-
anda Króks verði boðið sam-
komulag um að girða upp
gömlu girðinguna sem liggur
um hlíðina og að hann eign-
ist um leið núverandi afréttar-
girðingu sem lendi innan þess
hólfs. Að öðrum kosti verði
hugsanlega höfðað mál til að
kanna hvort hefðarréttur sé
ekki kominn á afnot af þessu
landi. Byggðarráð tók und-
ir samþykkt nefndarinnar og
var sveitarstjóra falið að vinna
áfram að málinu. Þess má geta
að dómur hefur fallið vegna
girðingamála í Krókslandi og
var sá dómur landeiganda í vil.
–þá
Haustfundur
Hrossvest
VESTURLAND: Haust-
fundur Hrossaræktarsambands
Vesturlands verður haldinn
sunnudaginn 23. nóvember
kl. 14 á Hótel Borgarnesi. Þar
verður tilnefnt hrossarækt-
arbú Vesturlands, veitt verð-
laun fyrir hæst dæmdu hrossin
í hverjum flokki og útnefndir
einstaklingar til heiðursmerk-
is HROSSVEST, en það eru
einstaklingar sem hafa lagt sitt
af mörkum til félags- og rækt-
unarstarfs í þágu hrossarækt-
ar og hestamennsku á Vestur-
landi. Gestur fundarins verður
Guðlaugur Antonsson, fyrrum
hrossaræktarráðunautur, sem
nú er starfsmaður MATÍS.
Hann mun fara yfir áherslur í
starfi sínu á nýjum vettvangi.
–mm
Notkun endur
skinsmerkja
ábótavant
LANDIÐ: Tæplega sex af
hverjum tíu börnum og full-
orðnum voru ekki með end-
urskinsmerki þegar trygg-
ingafélagið VÍS kannaði
stöðu þeirra mála við einn
grunnskólann í Reykjavík
fyrr í þessum mánuði. Engu
að síður var þetta skárra
hlutfall en á sama tíma í
fyrra þegar þrír af hverjum
fjórum voru án endurskins-
merkja í könnun sem starfs-
menn VÍS gerðu í gang-
brautavörslu. Endurskin
barnanna var oftast á tösk-
um og utanyfirflíkum og þá
fyrir tilstilli framleiðenda.
Með endurskini sést við-
komandi allt að fimm sinn-
um fyrr en ella í myrkri. Sá
tími getur skipt sköpum fyr-
ir ökumann að bregðast við.
Skessuhorn beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til foreldra
og forráðamanna að næla
eða líma endurskinsmerki á
fatnað og skólatöskur barna
sinna. Nú þegar skammdeg-
ið færist yfir og hálka eykst
á götum og vegum er þetta
aldrei mikilvægara.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
18. 24. október.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 11.375 kg.
Mestur afli: Ísak AK: 3.587
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi 6 bátar.
Heildarlöndun: 58.920 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eð-
varðs SH: 21.295 kg í fjór-
um löndunum.
Grundarfjörður 6 bátar.
Heildarlöndun: 155.905 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.480 kg í einni löndun.
Ólafsvík 9 bátar.
Heildarlöndun: 81.955 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
26.427 kg í fjórum löndun-
um.
Rif 10 bátar.
Heildarlöndun: 72.207 kg.
Mestur afli: Guðbjart-
ur SH: 16.939 kg í fjórum
löndunum.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 59.555 kg.
Mestur afli: Hannes Andr-
ésson SH: 26.342 kg í fimm
löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
65.480 kg. 22. október
2. Helgi SH – GRU:
44.465 kg. 18. október
3. Sóley SH – GRU:
42.816 kg. 21. október
4. Kristinn SH – ÓLV:
8.464 kg. 24. október
5. Brynja SH – ÓLV:
6.946 kg. 23. október.
mþh
Snemma í sumar vaknaði sú hug-
mynd hjá stjórn Stjörnuskoðunar-
félagsins á Bifröst að auka við leik-
tækin á Bifröst. Farið var í þá vinnu
að leita að báti sem hægt væri að
standsetja sem leiktæki. Sú leit skil-
aði árangri og fannst bátur sem
fluttur var á svæðið nú í lok sumars.
Á vef skólans kemur fram að und-
anfarið hefur verið unnið að því að
standsetja bátinn með aðstoð góðra
manna á svæðinu. „Nú er þeirri
vinnu lokið í bili og var báturinn
afhentur formlega núna á dögun-
um. Stjörnuskoðunarfélagið á Bif-
röst og Háskólinn á Bifröst vonar
að börn á öllum aldri á Bifröst muni
hafa sem mesta ánægju af bátnum,“
segir í tilkynningu stjörnuskoðun-
armanna. mm
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra og Sigurður Ingi Jó-
hannsson umhverfis- og auðlind-
aráðherra hafa samþykkt tillögu
forstjóra Landmælinga Íslands og
Þjóðskrár Íslands um að gerð verði
frumathugun á samlegð í starfsemi
þessara stofnana. Í athuguninni
verður núverandi starfsumhverfi
Landmælinga og Þjóðskrár greint
og metið hvernig ytri aðstæður
geti haft áhrif á starfsemina á næstu
árum. Þá verða innviðir stofnan-
anna einnig greindir, til að meta
hve vel þær eru búnar undir sam-
þættingu eða sameiningu. Einnig
verður haft til grundvallar við at-
hugunina að lýsa framtíðarsýn og
skilgreina markmið með samþætt-
ingu eða sameiningu og gerðar til-
lögur um valkosti. Verkefnið er í
anda núverandi ríkisstjórnar um
að bæta og einfalda stjórnsýslu og
þjónustu hins opinbera.
Lögð áhersla á að sér
hæfð þekking tapist ekki
Umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið leggur áherslu á að sem best
verði tryggt að sérhæfð þekking á
sviði landupplýsinga sem byggð
hefur verið upp hjá Landmæling-
um Íslands á Akranesi undanfar-
in fimmtán ár tapist ekki. Lögð
er áhersla á að hugað verði vel að
markmiðum núverandi ríkisstjórn-
ar um að fjölga opinberum störf-
um utan höfuðborgarsvæðisins og
að auki leggur ráðuneytið til að
mat verði lagt á hvort mögulega
sé samlegð á fleiri sviðum á starfs-
sviði Landmælinga Íslands, svo sem
í tengslum við aðrar stofnanir sem
falla undir umhverfis- og auðlind-
aráðuneytið. Samhliða þessu verk-
efni mun starfshópur, sem skipaður
hefur verið af innanríkisráðherra,
vinna að stefnumótun og skipulagi
í málaflokkum Þjóðskrár Íslands
og Útlendingastofnunar, þar sem
meðal annars verður kannaður fýsi-
leiki þess að sameina Þjóðskrá Ís-
lands og Útlendingastofnun. grþ
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar var kallað út á fimmta
tímanum aðfararnótt sl. föstudags
um borð í Steinunni AK sem ligg-
ur við Sementsbryggjuna á Akra-
nesi. Mikill reykur var í vélarrúmi
skipsins og voru reykkafarar send-
ir þar inn. Í ljós kom að reykurinn
stafaði frá bilaðri ljósavél. Enginn
eldur var laus en reykræsta þurfti
vélarrúmið. Aðgerðin gekk vel
og tók um það bil klukkutíma að
sögn Þráins Ólafssonar slökkvi-
liðsstjóra.
þá
Landmælingar Íslands var stofnun ársins 2014. Hér eru þrír af forsvarsmönnum
LMÍ með viðurkenningu fyrir það. F.v. Gunnar Kristinsson, Magnús Guðmundsson
forstjóri og Jensína Valdimarsdóttir.
Frumathugun á samlegð
Landmælinga og Þjóðskrár
Börnin á Bifröst fá bát til að leika sér í
Reykur um borð í Steinunni