Skessuhorn - 29.10.2014, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Arion banki sagði í síðustu viku upp
18 starfsmönnum. „Nauðsynlegt til
að auka skilvirkni og hagkvæmni í
grunnrekstri bankans,“ segir m.a.
í tilkynningu. Að auki verður af-
greiðslu bankans á Hólmavík lokað
en við það munu tveir starfsmenn
til viðbótar láta af störfum. „Í hag-
ræðingarskyni hefur Arion banki á
undanförnum árum lokað 16 útibú-
um og afgreiðslum víðsvegar um
landið og hefur starfsfólki bank-
ans fækkað um 120 frá árslokum
2009 þrátt fyrir að starfsemi Verdis,
Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Dróma
hafi færst til bankans. Hefur fækk-
un starfsfólks náðst fram að miklu
leyti í gegnum hefðbundna starfs-
mannaveltu með þeim hætti að ekki
hefur verið ráðið aftur í störf sem
losna,“ segir í tilkynningu frá bank-
anum. Eftir lokun afgreiðslunnar á
Hólmavík starfrækir Arion banki
23 útibú og afgreiðslur um land-
ið. „Viðskiptavinir afgreiðslunn-
ar á Hólmavík geta sótt þjónustu
í útibú bankans í Borgarnesi eða
hvert það útibú bankans sem þeir
kjósa, en um helmingur viðskipta-
vina afgreiðslunnar á Hólmavík er
með búsetu á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir að endingu í tilkynningu
frá bankanum.
mm
Undanfarnar vikur hafa stóru
línubátarnir af Snæfellsnesi verið
að veiðum fyrir norðan land. Það
þýðir mikla fiskflutninga frá höfn-
um norðanlands á Snæfellsnesið.
Þegar blaðamaður Skessuhorns
var á ferðinni í Grundarfirði síð-
astliðinn fimmtudag leit hann inn
hjá flutningafyrirtækinu Ragnar
& Ásgeir. Þar var allt á fullu og
greinilega mikið að gera. Náðist
stutt spjall við Ásgeir Ragnarsson
framkvæmdastjóra fyrirtækisins
þar sem hann var á þönum líkt og
bílstjórarnir og aðrir starfsmenn
í ýmsum verkum. Verið var að
setja bretti á bílana með afurðum
frá vinnslu G Run, sem er þarna
við hliðina þannig að stutt var að
ná í vöruna. Bílstjórar voru að
taka til keðjur og annan búnað á
bílana til að vera vel undir vetrar-
færðina búnir á fjallvegum norð-
an heiða. Þennan dag voru fjór-
ir bílar á leið norður á Dalvík og
næsta dag þurfti svo að senda aðra
fjóra norður, líklega á Siglufjörð.
Þennan dag var á leiðinni vestur
einn bíll frá Siglufirði og annar
kom þaðan kvöldið áður.
„Það er núna verið að vinna
fiskinn sem við komum með frá
Siglufirði í gærkveldi hjá Hrað-
frystihúsi Hellissands í Rifi. Þess-
ar afurðir sem við vorum að setja á
bílinn frá G Run fara í Samskip og
við förum aðra ferð þangað seinna
í dag. Þessi fiskur verður vænt-
anlega kominn á borð neytenda
í næstu viku. Svona er hraðinn í
þessu og gerist ennþá meiri þeg-
ar við förum með fisk í flug sem
er mjög oft. Núna er fjórir bílar
á leið á Dalvík. Bílstjórarnir gista
þar í nótt og verða tilbúnir þeg-
ar byrjað verður að landa úr Tjaldi
SH fyrir KG fiskverkun frá Rifi í
fyrramálið. Það koma bílstjórar
frá okkur úr Reykjavík núna seinni
partinn til að taka fiskinn af mörk-
uðunum. Á morgun fara svo aðr-
ir fjórir bílar frá okkur til að flytja
fiskinn úr Örvari til HH. Úr hon-
um veður landað á laugardags-
morgun, líklega á Siglufirði.“ Af
þessu má sjá að í mörg horn er að
líta hjá flutningafyrirtækinu.
Törnin verði kannski
lengri núna
Ásgeir segir að svona tarnir í fisk-
flutningana komi yfirleitt á haust-
in þegar línufiskurinn er ekki í
Breiðafirðinum. „Þetta er venju-
lega frá september og fram í októ-
ber-nóvember. Ég á jafnvel von á
því að þetta vari lengur núna, al-
veg fram í desember,“ segir Ásgeir.
Hann segir að veiðin í Breiða-
firðinum sé frekar treg um þess-
ar mundir. „Þetta eru svona 30-50
tonn af mörkuðunum yfir daginn.
Það köllum við ekki mikið á höfn-
unum hérna á Snæfellsnesi. Svo
er það náttúrlega frysti fiskurinn,
skreiðin og allur annar flutningur
hjá okkur. Þetta er langmest í fisk-
inum og kringum útgerðina sem
við erum að flytja. Samvinnan við
fyrirtækin er líka mjög góð. Skipu-
lagið hjá þeim er mjög gott og það
kemur okkur til góða. Það er til
dæmis alveg frábært að geta geng-
ið að því að Tjaldur í Rifi landi
fimmta hvern dag. Svo fáum við
bara lykla hjá fyrirtækjunum þann-
ig að þeir þurfa oft ekki að ræsa út
mannskap þegar við komum með
hráefni eða tökum vöruna,“ sagði
Ásgeir. Aðspurður sagði hann að
yfirleitt væru 10-15 lestaðir bílar
á ferðinni á sólarhring frá Ragnar
& Ásgeir. Þar er eins og væntan-
lega hjá fleiri fyrirtækjum í þess-
ari þjónustu hægt á skrifstofunni
að fylgjast með öllum ferðum bíla
fyrirtækisins, svo sem að ökuhraði
sé innan marka og ferðin gangi
samkvæmt áætlun miðað við færð
og aðstæður.
þá
Nú er skólaútgáfa af sýningu um
íslenskt atvinnulífi, sem opnuð var
á Bifröst fyrr á þessu ári, komin á
ferð og flug. „Við hófum leikana
í skólunum á okkar heimasvæði.
Sýningin verður svo sett upp víðar í
skólum á Vesturlandi næstu vikurn-
ar, eina viku í senn, og skemmtileg-
ir viðburðir skipulagðir samhliða
henni í hverjum skóla. Sýningin
var sett upp í Grunnskóla Borg-
arfjarðar vikuna 6.-10. október og
af því tilefni fengnir nokkrir gestir
til að segja nemendum frá dagleg-
um störfum sínum. Gestir voru þau
Anna Lísa Hilmarsdóttir kúabóndi
á Sleggjulæk fyrir hönd Landssam-
bands Kúabænda, Lúðvík Hilm-
arsson útibússtjóri Mjólkursam-
sölunnar í Búðardal, Harpa Björg
Guðfinnsdóttir fræðslustjóri Norð-
uráls og Birna K. Baldursdótt-
ir kjúklingabóndi í Eskiholti fyrir
hönd Matfugls,“ segir María Ólafs-
dóttir sýningarstjóri.
„Við erum mjög ánægð með að
hafa fengið sýninguna í heimsókn
og okkur þótti einnig takast vel til
með fyrirlestrana sem nemendur
höfðu bæði gagn og gaman af,“ seg-
ir Ingibjörg Inga Guðmundsdótt-
ir, skólastjóri Grunnskóla Borgar-
fjarðar.
Vikuna 13.-17. október hékk
sýningin uppi í Grunnskóla Borg-
arness og var með henni brotið upp
hefðbundið skólastarf en nemend-
ur leystu ýmis verkefni tengd sýn-
ingunni. Þá tóku nokkrir nemend-
ur í unglingadeild skólans á móti
Rótarýklúbbi Borgarness og röltu
gestir, nemendur og kennarar um
sýninguna. Signý Óskarsdóttir
skólastjóri var ánægð með viðburð-
inn og segir sýninguna hafa vakið
áhuga nemenda. „Það hefur verið
skemmtilegt að fylgjast með nem-
endum hér á göngunum og gott að
geta með þessum hætti kynnt þeim
atvinnulífið og glætt áhuga þeirra á
því sem þau vilja mögulega starfa
við í framtíðinni,“ segir Signý.
„Háskólinn á Bifröst þakk-
ar gestum, nemendum og starfs-
mönnum Grunnskóla Borgarfjarð-
ar og Grunnskóla Borgarness fyrir
ánægjulegar heimsóknir. Framund-
an eru fleiri heimsóknir í skóla á
Vesturlandi fram að jólum og síðan
í Reykjavík og víðar,“ segir María
Ólafsdóttir sýningarstjóri. mm
Áfram halda uppsagnir
í bankakerfinu
Nemendur í Borgarnesi skoða
sýninguna.
Skólaútgáfa af sýningu um
íslenskt atvinnulíf
Nemendur GBF voru áhugasamir og duglegir að spyrja spurninga þegar þeir
hlýddu á röð fyrirlestra um dagleg störf í fyrirtækjum.
Miklir fiskflutningar að norðan á Snæfellsnesið
Hans Sigurbjörnsson einn bílstjóranna á tali við Ásgeir framkvæmdastjóra sem var að vinna á lyftaranum.
Ásgeir Ragnarsson við 750 ha Volvo, einn af nýrri bílum fyrirtækisins. Það eru 10-15 lestaðir bílar sem eru á ferðinni frá
Ragnari & Ásgeiri á sólarhring.