Skessuhorn - 29.10.2014, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Þrjár ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Bíldshöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is
fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf
BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR
Framleiðum eftir óskum hvers og eins
Mikið úrval efna, áferða og lita
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Dagatal Lionsklúbbsins
Eðnu komið út
Nýútkomið er dagatal Lions-
klúbbsins Eðnu á Akranesi. Það er
árvisst að Eðnukonur gefi út daga-
tal á þessum tíma árs með mynd-
um frá Akranesi og nágrenni. Að
venju voru það meðlimir áhuga-
ljósmyndafélagsins Vitans sem
tóku myndirnar sem prýða hverja
síðu dagatalsins. Eðnukonur ætla
að bjóða dagatalið til sölu í versl-
unum á Akranesi á næstunni;
Bjargi, Krónunni og Bónus. Auk
þess verður hægt að nálgast þau
hjá félagskonum. Hvert dagatal
kostar 1.500 krónur.
Dagatalið er gefið út til fjár-
öflunar fyrir líknarsjóð klúbbsins
en allur ágóði af útgáfunni renn-
ur óskiptur til sjóðsins.
Lionsklúbburinn hef-
ur um árabil látið gott
af sér leiða á Akranesi.
Sem dæmi má nefna að
í fyrra var veitt úr sjóðn-
um tveggja milljóna
króna styrkur til kaupa
á nýju tölvusneiðmynda-
tæki fyrir Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands sem
hollvinasamtök stofnun-
arinnar eru að safna fyr-
ir. Einnig gáfu Eðnukon-
ur í fyrra hjartastuðtæki
til FEBAN til að hafa til
taks í sal félagsins. Í hitt-
eðfyrra gaf Lionsklúbb-
urinn Eðna tæki til kvið-
sjáraðgerða á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands.
Hefur það tæki komið að
góðum notum við lækn-
ingu fjölda kvenna frá
þeim tíma. „Við viljum
koma á framfæri þökk-
um til þeirra fyrirtækja og stofn-
ana sem styrkt hafa útgáfuna fjár-
hagslega og til Prentmets sem sá
um prentunina. Sérstakar þakkir
fá félagar í áhugaljósmyndafélag-
inu Vitanum á Akranesi en þeir
styrktu okkur með þeim einstöku
myndum sem prýða dagatalið. Að
lokum fá bæjarbúar þakkir fyrir
góðar viðtökur,“ segja félagskonur
í Eðnu í tilefni útgáfu dagatalsins.
Lionsklúbburinn Eðna var stofn-
aður 1997 en var áður Lionessu-
klúbbur sem var stofnaður 1981.
Klúbburinn er sjálfstætt starfandi
og hittast félagskonur einu sinni
í mánuði, en þær eru um fjörutíu
talsins. þá
Forsíðu dagatalsins í ár prýðir falleg vetrarmynd af
Akrafjalli. Ljósm. Finnur Tómasson.
Síðastliðinn mánudag var dagur
iðjuþjálfunar haldinn hátíðlegur
um allan heim. Tilgangurinn með
slíkum degi er að vekja athygli á
starfinu og halda gildi þess á lofti.
Hér á landi er iðju-
þjálfun frekar ung
grein og það eru lík-
lega nokkuð marg-
ir sem vita ekki al-
veg um hvað starf-
ið snýst. Iðjuþjálfum
hefur reyndar fjölgað
nokkuð hratt undan-
farin ár vegna til-
komu iðjuþjálfanáms
hér á landi og þekk-
ing á starfinu þess
vegna aukist. Á Vest-
urlandi starfa ekki
margir iðjuþjálfar og
því kærkomið að fá
að birta þetta grein-
arkorn í tilefni dags-
ins og veita Vestlend-
ingum dálitla innsýn í starfið. Von-
andi verður það hvatning til fólks
að leita eftir þjónustu iðjuþjálfa og
eins vona höfundar að áhugi kvikni
hjá fleirum á þessu svæði að fara í
iðjuþjálfanám.
Saga iðjuþjálfunar hófst út í
heimi á fyrri hluta 19. aldar en hér
á landi var vakin athygli á iðjuþjálf-
un rúmri öld síðar. Þá var fjallað
um jákvæð áhrif vinnu og iðju
á sál og líkama fólks og hvernig
mætti nota slíka starfsemi í lækn-
ingaskyni. Í dag getur fagið státað
af sterkri hugmyndafræði sem sam-
einar iðjuþjálfa um allan heim þrátt
fyrir störf á ólíkum vettvangi.
Störf iðjuþjálfa felast í því að efla
heilsu, iðju og þátttöku fólks í sam-
félaginu með fjölbreytilegum að-
ferðum. Þegar talað er um iðju er
átt við allt sem fólk tekur sér fyrir
hendur, hvort sem þar er að annast
sig og sína, njóta lífsins eða leggja
sitt af mörkum til samfélagsins.
Flestir iðjuþjálfar hér á landi starfa
á sjúkrahúsum og endurhæfingar-
stofnunum en á síðari árum hef-
ur mikil áhersla verið lögð á að
færa þjónustuna út í samfélagið til
fólksins og veita því stuðning og
ráðgjöf á þá staði þar sem það er að
takast á við daglegt líf. Iðjuþjálf-
ar starfa með öllum aldurshópum
og aðstoða fólk við að finna leiðir
svo það geti gert það sem það vill
og þarf að geta gert. Leiðirnar eru
mismunandi og felast m.a. í því
að breyta aðferðum við iðju, nýta
hjálpartæki og breyta umhverfinu
og alltaf er lögð áhersla á að vinna
út frá styrkleikum fólks.
Iðjuþjálfar veita ráðgjöf sem
tengist vinnuvistfræði, heilsuefl-
ingu og forvarnarstarfi. Þeir starfa
líka hjá hinu opinbera við skipu-
lagningu heilbrigðis -og félags-
þjónustu og hönnun umhverfis.
Þar að auki sinna þeir ýmis konar
verkefnum sem tengjast embætt-
um eins Vinnueftir-
liti ríkisins og Emb-
ætti landlæknis.
Háskólinn á Ak-
ureyri býður upp á
nám í iðjuþjálfun.
Námið er fjögur ár
og lýkur með BS
gráðu. Boðið upp á
staðarnám og fjar-
nám og fjarnemar
koma í kennslulotur
þar sem þeir sækja
kennslu og þjálfun.
Vettvangsnám er
samtals 25 vikur og
fer fram í fjölbreyti-
legu starfsumhverfi
víða um land.
Iðjuþjálfun er
mikilvægur þáttur í þjónustu
á vegum heilbrigðis, félags og
menntamála, bæði innan og utan
stofnana samfélagsins. Iðjuþjálf-
ar eru sveigjanlegir og skapandi
í störfum sínum og nálgast verk-
efni á heildrænan hátt. Við hvetj-
um fólk til að skoða heimasíðu
Iðjuþjálfafélagsins ii.is, og heima-
síðu Háskólans á Akureyri unak.is
þar sem hægt er að nálgast nán-
ari upplýsingar um störf og nám
iðjuþjálfa.
Aldís Eiríksdóttir, Júlíana Petra
Þorvaldsdóttir, Rósa María Sigur-
geirsdóttir og Vilborg Lárusdóttir.
Höfundarnir eru nemar á fjórða
ári í iðjuþjálfun.
Dagur iðjuþjálfunar 27. október
Pennagrein