Læknablaðið - 15.09.2005, Page 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Öndunarmælingar í heilsugæslu
— tækifæri og takmarkanir
Almennt er viðurkennt að öndunarmælingar
(e. spirometry) eigi að fara fram á heilsugæslu-
stöðvum. Þar eru þær notaðar til greiningar og til
að fylgjast með framvindu og meðferð sjúkdóma
í öndunarfærum og lungum. Óeðlileg öndunar-
mæling er merki um aukna áhættu á ótímabærum
dauðsföllum ekki síður en hár blóðþrýstingur eða
hækkað kólesteról. Öndunarmælingar hafa ekki
náð eins mikilli útbreiðslu í heilsugæslu eins og
blóðþrýstingsmælingar og hjartalínurit hafa gert.
Segja má að öndunarmælingar hafi verið sveipaðar
ákveðinni dulúð sem hafi haldið læknum frá því að
framkvæma þær.
í hverju er öndunarmæling fólgin? Hún mælir
einfaldlega flæði lofts frá lungum sem eru að
fullu útþanin. Þannig er öndunarmæling einföld
og tekur innan við 10 mínútur í framkvæmd og er
auðveld í túlkun (1).
Hvaða tækifæri gefur öndunarmæling í heilsu-
gæslu? Hægt er að nota hana til að greina orsakir
mæði og er hún þar jafn mikilvæg og hjartalínu-
rit er í orsakagreiningu brjóstverkja. Hægt er að
greina langvinna lungnateppu á byrjunarstigi með
öndunarmælingu og þannig forða einstaklingum
frá því að sjúkdómurinn komist á hærra stig með
skerðingu á lífsgæðum, ótímabærum dauðsföllum
og miklum kostnaði fyrir samfélagið (2). Hægt er
að nota þær til reykleysismeðferðar. Þannig hafa
rannsóknir sýnt að fólk sem veit að gildi úr önd-
unarmælingu eru farin að skerðast er líklegra til
að hætta að reykja en þeir sem ekki hafa þessa
vitneskju (3). Öndunarmælingar má nota til grein-
ingar og eftirlits með mörgum lungnasjúkdómum.
Fáum dettur í hug að gefa blóðþrýstingslækkandi
lyf án blóðþrýstingsmælingar eða sykursýkilyf án
blóðsykursmælinga en algengt er að gefa berkju-
víkkandi og bólgueyðandi lungnalyf án öndunar-
mælingar. Þá eru þær hluti af örorkumati fyrir þá
sem þjást af lungnasjúkdómum. Einnig eru þær
mikilvægar í greiningu atvinnusjúkdóma í önd-
unarfærum (1).
Hvaða takmarkanir eru á öndunarmælingum í
heilsugæslu? Lengi vel voru öndunarmælar ekki
til á mörgum heilsugæslustöðvum. Ur því hefur
nú verið bætt (4). Á sumum stöðvum hafa önd-
unarmælar verið illa staðsettir með takmörkuðum
aðgangi. Engin ástæða er til að öndunarmælar
séu hornreka á heilsugæslustöðvum. Allir vilja að
sjúklingur geti komist í hjartalínurit strax ef hann
er með brjóstverk. Sama ætti að gilda um önd-
unarmæla. Læknum finnst öndunarmælingar taka
of langan tíma og þeir geti ekki gefið sér tíma í
þær. Þetta er ekki rétt því þær taka innan við 10
mínútur í framkvæmd og hægt er að þjálfa hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða í framkvæmd þeirra
þannig að læknar þurfa ekki að framkvæma þær
sjálfir. Sumum finnst úrlestur þeirra flókinn. Þetta
er misskilningur því eingöngu þarf að hugsa um
þrjár breytur þegar lesið er úr öndunarmælingu.
Þær eru FVC (forced vital capacity), FEVl (forc-
ed expiratory volume in 1 second) og FEVl/FVC
hlutfallið (1). í greiningu er um þrjá möguleika
að ræða: eðlilega mælingu, herpu (restriction)
eða teppu (obstruction). Þannig er úrlestur þeirra
einfaldur og mun auðveldari en til dæmis úrlestur
hjartalínurits. Ekki er þörf fyrir að horfa á önnur
gildi sem tölvustýrðir öndunarmælar gefa. Þannig
er oft búið með hjálp tækninnar að gera önd-
unarmæla flókna og fráhrindandi að óþörfu (1).
Kennsla í öndunarmælingum hefur löngum verið
minni í Læknadeild Háskóla Islands og hjá náms-
læknum en til dæmis í blóðþrýstingsmælingum og
hvað stjórnar blóðþrýstingi. Þetta er að breytast.
Hjá Læknadeild er nú sambærilegur búnaður
og til er á flestum heilsugæslustöðvum og einnig
notar Landspítali samskonar öndunarmæla. Þá eru
reglulega haldin námskeið í framkvæmd og túlkun
öndunarmælinga af læknum og hjúkrunarfræð-
ingum lungnadeildar Landspítala fyrir starfsfólk
heilsugæslunnar.
Ástæðulaust er fyrir heilsugæslulækna að not-
færa sér ekki þau miklu tækifæri sem öndunarmæl-
ar bjóða upp á í greiningu öndunarfærasjúkdóma.
Þá er einnig ástæðulaust að láta takmarkanir sem
oftast eru heimatilbúnar draga úr notkun þeirra.
Heimildir
1. Petty TL. Benefits of and barriers to the widespread use of
spirometry. Curr Opin Pulm Med 2005; 11:115-20.
2. Gorecka D, Bednarek M, Nowinski A, Puscinska E, Goljan-
Geremek A, Zielinski. Diagnosis of airflow limitation com-
bined with smoking cessation advise increases stop smoking
rates. Chest 2003; 123:1916-23.
3. Zielinski J, Bevmarck M. Early detection in a high risk popula-
tion using spirometry screening. Chest 2001; 119:731-6.
4. Guðmundsson G, Guðmundsson S. Frá landlæknisembættinu.
Öndunarmælingar á heilsugæslustöðvum. Læknablaðið 2002;
88: 928.
Gunnar
Guðmundsson
Höfundur er sérfræðingur
í lyflækningum, lungna- og
gjörgæslulækningum.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Guðmundsson
Lungnadeild Landspítala
E-7 Fossvogi, 108 Reykjavík
sími 543-6876.
ggudmund@landspitali. is
Læknablaðið 2005/91 643