Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2005, Síða 14

Læknablaðið - 15.09.2005, Síða 14
FRÆÐIGREINAR / BÓLUSETNING BARNA Mynd 1. Malaví og Monkey Bay (31). algengi HIV smits sé um 15% og meðallífslíkur í landinu eru aðeins 38 ár (1, 2). Þróunarsamvinnustofnun íslands (ÞSSÍ) hefur verið að störfum í Malaví allt frá árinu 1989. Eitt stærsta verkefni ÞSSÍ þar er uppbygging heilsu- gæslu í og við Monkey Bay. Ákvörðun var tekin um að byggja heilsugæslustöð í Monkey Bay árið 1999 og voru fyrstu byggingar hennar teknar í notkun í júní 2002. Auk þess að bæta aðstöðu f Monkey Bay hefur verkefnið miðað að því að auka gæði heilbrigðisþjónustu á svæðinu í kringum Monkey Bay. Auk heilsugæslunnar í Monkey Bay eru á svæðinu fjórar aðrar heilsugæslustöðvar sem reknar eru af ríki og kristilegum samtökum. Hefur ÞSSÍ unnið markvisst að auknum samskiptum og samvinnu allra aðila á svæðinu. Til að meta árangur af starfi ÞSSÍ á svæðinu framkvæmdi stofnunin könnun í samvinnu við læknadeild Háskóla Islands á þekjun bólusetning- ar barna á aldrinum 12-23 mánaða á svæði heilsu- gæslu Monkey Bay. Einstaklingar og aðferðir Úrtak rannsóknarinnar voru 217 börn á aldrinum 12-23 mánaða á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Monkey Bay auk hinna fjögurra heilsugæslustöðva sem tilheyra Monkey Bay héraði. Á svæðinu búa um það bil 105 þúsund manns í 97 þorpum. Börn á svæðinu eiga að fá bólusetningu gegn berklum (BCG) við fæðingu, gegn barnaveiki, stífkrampa, kíghósta (DTP) og lömunarveiki (OPV) við sex, 10 og 14 vikna aldur, og gegn mislingum við níu mánaða aldur. Skömmu áður en rannsókn hófst var einnig byrjað að bólusetja gegn Haemophilus influenzae af sermisgerð b og lifrarbólgu B með DTP (Tritanrix-HB/Hib). Rannsóknin var gerð á tímabilinu frá 6. júní til 4. júlí 2003. Notast var við viðmið sem samþykkt eru af alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og heilbrigðisráðuneyti Malaví, en þau eru: • Lágmarksaldur fyrir bólusetningu gegn misl- ingum: 39 vikur. • Lágmarksaldur fyrir bólusetningu gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (DTP): sex vikur. • Lágmarksaldur fyrir fyrstu bólusetningu gegn lömunarveiki (OPV): sex vikur. • Lágmarkstímabil milli bólusetninga með DTP og OPV: fjórar vikur. Aðferðin til þess að velja börn á svæðinu af handahófi er stöðluð aðferð þróuð af alþjóða- heilbrigðismálastofnuninni og EPI (Expanded Programme on Immunization) og hefur verið í notkun allt frá árinu 1978 við mat á þekjun bólu- setningar víða um heim (3). Aðferðin hentar vel við aðstæður þar sem ekki er hægt að byggja úrtak á manntali eða öðrum gögnum um íbúafjölda. Markmiðið er að meta þekjun bólusetningar á tilteknu svæði á ódýran og einfaldan hátt með skekkju sem er innan við 10% (með 95% vik- mörkum) (4-6). Fyrsta skref rannsóknarinnar var að velja 30 þorp eða klasa (cluster) af handahófi. Sökum stærðar völdust þrír klasar í einu þorpi og urðu því 28 þorp fyrir valinu. Þorpin voru misaðgengi- leg og ekki ökufært til þeirra allra, en notast var við báta og mótorhjól til þess að komast sem næst þeim. Þegar komið var í þorpin var hús valið af handahófi til að hefja leit að barni á þeim aldri sem féll að viðmiðum rannsóknarinnar. Tvær meginað- ferðir voru notaðar til þessa. Þegar fyrir lá nothæft kort af svæðinu var húsum eða húsaþyrpingum gefið númer sem síðan var valið af handahófi með því að nota númer peningaseðils eða „random number table“. Þá var haldið að því húsi og leitin hafin. Ef ekki var barn á aldrinum 12-23 mánaða í húsinu var stefnan tekin á það hús sem næst var og svo koll af kolli. Önnur aðferð var að snúa flösku í miðju þorpsins og velja götu eða gönguleið sem flaskan benti á. Síðan var búið til kort af göngu- leiðinni þar sem öll hús voru merkt inn á þar til enda hennar var náð. Húsin voru síðan merkt með númeri á kort og síðan valið af handahófi það hús eins og áður sem fyrst var heimsótt. Þegar barn í markhópi rannsóknarinnar var 650 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.