Læknablaðið - 15.09.2005, Side 15
FRÆÐIGREINAR / BÓLUSETNING BARNA
fundið var upplýsingum um bólusetningar þess
safnað. I flestum tilfellum varðveittu foreldrar
bólusetningarkort barnanna og reyndist einfalt
að skrá þessar upplýsingar. Þegar slíku var ekki
til að dreifa var reynt að fá það fram með sögu
hversu margar bólusetningar barnið hefði fengið.
Einnig var metið hvort börnin hefðu fengið berkla-
bólusetningu (BCG) með því að leita eftir örum á
handleggjum þeirra (7). Leitað var eftir ástæðum
þess ef bólusetningu vantaði þar sem það átti við.
Upplýsingarnar voru skráðar á stöðluð eyðublöð
WHO/EPI. Við rannsóknina aðstoðuðu túlkur og
heilbrigðisstarfsmaður í viðkomandi þorpi.
Upplýsingarnar voru færðar inn í tölvuforrit-
ið COSAS (Coverage Survey Analysis System)
hannað af WHO/EPI til tölfræðiúrvinnslu sam-
bærilegra rannsókna og skipt í eftirfarandi flokka:
• Þekjun bólusetningar, það er að segja heild-
arþekjun miðað við upplýsingar af bólusetn-
ingarkortum og sögu ásamt þekjun gildrar
bólusetningar.
• Mat á BCG bólusetningu.
• Mat á DTP/OPV bólusetningu, það er að
segja þekjun fyrstu, annarrar og þriðju bólu-
setningar auk aldursdreifingar barna við
bólusetningu og bils milli bóluselninga.
• Mat á þekjun mislingabólusetningar auk ald-
ursdreifingar.
• Eign bólusetningarkorta.
• Hver gaf bólusetninguna.
Rannsóknin var samþykkt af heilbrigðisráðu-
neyti og vísindanefnd Malaví. Rannsóknin var
fjármögnuð af Þróunarsamvinnustofnun Islands.
Niðurstöður
Alls var rætt við foreldra 217 barna á aldrinum 12-
23 mánaða í 30 klösum á fyrrnefndu svæði. Mæður
188 barna héldu bólusetningakortum barna sinna
til haga. Alls höfðu 215 börn fengið að minnsta
kosti eina bólusetningu og höfðu mæður 27 barna
því tapað kortum þeirra. Tvö börn höfðu ekki
fengið neina bólusetningu. Hlutfall mæðra sem hélt
kortum til haga var 87,4% (95% vikmörk: 83,0%-
91,8%) en heildarhlutfall bólusetningarkortaeignar
var 86,6%. Umtalsverð dreifing var á aldri barna
við fyrstu bólusetningu (niðurstöður ekki sýndar).
Meginniðurstöður rannsóknarinnar má lesa úr
mynd 2 og töflu I. A mynd 2 má sjá heildarþekjun
bólusetningar á svæðinu ef miðað er við alla bólu-
setningu án tillits til gildis hennar með tilliti til
gefinna viðmiða. Ur töflu I má lesa heildarþekjun
bólusetningar, þekjun gildrar bólusetningar miðað
við gefin viðmið, og gildrar bólusetningar við 52
vikna aldur með tilliti til gefinna viðmiða.
Hlutfall barna bólusett
100
BCG DTPl DTP2 DTP3 OPVl 0PV2 0PV3 Mislingar
C] Upplýsingar af kortum | Upplýsingar fengnar meó sögu
Umræða
Þrátt fyrir margs konar framþróun í heiminum á
síðustu öld og stóra sigra læknisfræðinnar er talið
að í heiminum deyi enn um 10-11 milljón börn áður
en þau ná fimm ára aldri. Langflest þessara dauðs-
falla verða í hinum fátækari löndum heimsins (8).
Koma má í veg fyrir tvo þriðju þessara dauðsfalla
með einföldum aðgerðum, svo sem auknu hrein-
læti, bættri næringu, sýklalyfjum og aukinni þekjun
bólusetningar (9). Þó vandamálin séu vel skilgreind
hefur staðið á umbótum. Þrátt fyrir aðgerðir gegn
ungbarnadauða á níunda áratug síðustu aldar hefur
miðað hægt að bæta lífslíkur barna í heiminum. A
vissum svæðum, svo sem í Afríku sunnan Sahara,
hefur jafnvel orðið afturför, og sem dæmi hefur
þekjun bólusetningar farið minnkandi frá 1990
(10). Aðgerða er því þörf með samstilltu átaki
stjórnvalda og samstarfsaðila í þessu löndum.
Bent hefur verið á að fyrsta skrefið til umbóta
sé að meta stöðuna á því svæði sem skal vinna á.
Á þeim grunni má koma auga á leiðir til íhlutunar
sem koma íbúum svæðisins til góða og byggja
markvisst upp þjónustu við þá.
Fyrir rannsóknina var talið að þekjun á svæðinu
væri lág á landsmælikvarða (11). Voru þær upp-
lýsingar byggðar á útreikningum sem gerðir eru
til að meta hlutfall tiltekins aldurshóps sem fær
bólusetningu. Rannsóknin leiddi hins vegar í ljós
að þekjun á svæðinu var almennt meiri en á lands-
vísu miðað við tölur frá 2002 (12). Hátt hlutfall
barna sem fær fyrstu bólusetningu gefur til kynna
að aðgengi að bólusetningu á svæðinu sé almennt
gott og almenningur þiggur þá þjónustu sem í boði
er sem er einn af hornsteinum þess að mögulegt
sé að halda uppi góðri þekjun (13). Aftur á móti
eru mörg börn sem að fá ekki alla þá bólusetningu
Mynd 2. Þekjun bólu-
setningar miðað við bólu-
setningarkort og sögu.
Monkey Bay, Malaví 2003.
BCG = berklar.
DTP = barnaveiki, stíf-
krampi, kíghósti.
OPV = lömunarveiki.
Læknablaðið 2005/91 651