Læknablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 25
FRÆÐIGREINAR / TUNGURÓTARSKJALDKIRTILL
Tungurótarskjaldkirtill (lingual thyroid)
- sjúkratilfelli: kona með fyrirferð í tungurót
Ágrip
Birgir Briem
DEILDARLÆKNIR
Anna Björk
Magnúsdóttir
SÉRFRÆÐINGUR
í HÁLS-, NEF- OG
EYRNALÆKNINGUM
Tungurótarskjaldkirtill er meðfæddur galli þar sem
villtur (ectopic) skjaldkirtilsvefur finnst í tungurót.
Skjaldkirtilsfrumur sem myndast í foramen cecum
(botnristilsgati) fóstursins stansa nálægt uppruna
sínum í tungurótinni í stað þess að halda áfram
för sinni niður skjaldtungurásina (thyroglossal
duct). Þannig komast þær aldrei á áfangastað sinn
framan á barka. Þessar frumur geta einnig endað á
öðrum stöðum á leið sinni, svo sem við tungubein-
ið, í vélinda, gollurshúsi, miðmæti og þind (1, 2,
3, 4). Villtan skjaldkirtilsvef er algengast að finna
í tungurót og endar þar í 90% þeirra tilvika sem
ferðalag skjaldkirtilsfrumnanna fer úrskeiðis (3).
Ekki er ljóst hvað veldur því að frumurnar villast
af leið en líklegar skýringar eru taldar vera sýking-
ar móður snemma á meðgöngu, mótefnamyndun
gegn skjaldkirtilsfrumum í blóði móður og stökk-
breytingar á genum (4, 5). Tungurótarskjaldkirtill
er fjórfalt til sjöfalt algengari í konum en körlum
og meðalaldur við greiningu er 40,5 ár (3, 4).
Einkenna verður helst vart kringum kynþroska,
við þungun og á breytingaskeiði. Talið er að hækk-
un á skjaldvakakveikja (TSH, thyroid stimulating
hormone) á þessum tímabilum hvetji vöxt skjald-
kirtilsvefs (6-8). Hægt er að hafa skjaldkirtilsvef
á fleiri en einum stað en 75% einstaklinga með
tungurótarskjaldkirtil hafa engan annan skjald-
kirtilsvef (7,9).
ENGLISH SUMMARY
Briem B, Magnúsdóttir AB
Lingual thyroid - case report: A woman with a
tumor at the base of the tongue
Læknablaðið 2005; 91:661-3
We report a case of lingual thyroid. A woman presented
with a few years history of mild dysphagia, cough and
uncomfortable breathing when going to sleep at night.
Laryngostroboscopia showed a mass lesion at the base
of the tongue. A CT scan and thyroid scanning revealed
a bilobar mass of thyroid tissue, compatible with a lingual
thyroid. No thyroid gland was found at its usual location.
The woman was euthyroid and since her symptoms were
mild she was treated with thyroxin and observation.
Lingual thyroid is a rare phenomenon caused by abnormal
migration of thyroid cells during the first weeks of fetal life.
Females are affected more often than males and although
this condition is often asymptomatic, symptoms can occur,
most often during puberty, pregnancy and menopause. On
examination a mass is noted at the base of the tongue and
the diagnosis is then confirmed with CT/MRI and thyroid
scanning. Treatment can vary from observation to thyroxin
medication, radioactive iodine and complicated surgical
intervention, depending on the symptoms and the overall
health of the patient.
Keywords; lingual thyroid, ectopic thyroid.
Correspondence: Anna Björk Magnúsdóttir,
abmagnus@landspitali.is
Tilfelli
HNE-deiId Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Anna Björk Magnúsdóttir,
HNE-læknir,
Landspítala Fossvogi.
abmagnus@landspitali.is
Saga: 43 ára kona leitaði á göngudeild HNE-
deildar Landspítala Fossvogi að ráði gigtlækna
með tveggja vikna sögu um sármyndanir í munni
og kyngingartruflanir. Hún hafði undanfarin ár
fundið fyrir óþægindum í koki sem hún lýsti sem
kverkaskít, hóstakjöltri og öndunaróþægindum
Lykilorð: tungurótarskjaldkirt-
ill, villtur skjaldkirtill.
Mynd 1. Bein speglun á koki (laryngostroboscopia). Mynd 1A sýnir tungurótarskjaldkirtil en til samanburðar er eðlileg
speglun á koki (mynd 1B).
Læknablaðið 2005/91 661